Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 26
Iceland Travel getur sett saman viðburði af öllum
stærðum, en hefur helst þjónustað hópa innan heil-
brigðis-, mennta- og vísindageirans. MYND/AÐSEND
Glöggt er gests augað og
stundum getur verið gaman
að vera túristi í eigin landi
og reyna að sjá heimaland
sitt með augum erlendra
gesta.
oddurfreyr@frettabladid.is
Þetta eru þeir tíu staðir sem
útlendingar eru hrifnastir af að
heimsækja á Íslandi, samkvæmt
erlendu ferðasíðunni TripAdvisor,
þar sem ferðalangar gefa ólíkum
upplifunum og stöðum einkunn.
Perlan
Perlan býður upp á ýmsar
skemmtilegar upplifanir og
sýningar. Þar er hægt að læra mikið
um náttúru Íslands og njóta frá-
bærs útsýnis.
Hringvegurinn
Að fara hringinn er klassísk upp-
lifun sem flestir Íslendingar hafa
einhvern tímann notið. Það er
margt að sjá á okkar fallega landi
og það er um að gera að fara
reglulega hringinn og drekka í sig
fjölbreytta upplifun.
Kerið
Kerið er mikilfenglegur gígur í
Grímsnesi sem er alltaf gaman að
heimsækja. Talið er að það sé leifar
frá eldgosi sem átti sér stað fyrir
um 6.500 árum.
Gunnuhver
Gunnuhver er fallegur hver á
Reykjanesi. Það er áhugavert að
hann sé í þriðja sæti þrátt fyrir að
vera almennt ekki mjög umtalaður.
Þangað er stutt að fara frá höfuð-
staðnum og Keflavíkurflugvelli.
Harpa
Tónleika- og ráðstefnuhöllin Harpa
er einstaklega falleg bygging í
hjarta Reykjavíkur. Þar fara alls
kyns tónleikar og viðburðir fram
og þar eiga Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, Íslenska óperan og Stór sveit
Reykja víkur heima.
Reynisfjara
Reynisfjara hefur aðallega fengið
umfjöllun að undanförnu vegna
mannskæðra slysa en fjaran er
einn vinsælasti og fallegasti ferða-
mannastaður landsins. Dýralífið,
bergið og öldurnar mikilfenglegu
eru öll þessi virði að skoða.
Geysir
Geysir er einn þekktasti ferða-
mannastaður landsins og kannski
bara skrítið að hann sé ekki ofar á
listanum, því okkur Íslendingum
finnst svo klassískt að fara með
ferðalanga í dagsferð þangað og á
Gullfoss, sem er ekki einu sinni á
topp 10 lista TripAdvisor.
Goðafoss
Fossinn er þægilega staðsettur við
hringveginn, skammt frá Akureyri.
Hann er er einn af vatnsmestu
fossum landsins og án vafa einn
sá fallegasti. Hann er ólíkur í útliti
eftir vatnsmagni, veðurfari og árs-
tíð og sumum finnst hann jafnvel
fallegri á veturna en sumrin.
Hallgrímskirkja
Kirkjan, sem er sú stærsta á
landinu, er eitt þekktasta kennileiti
landsins og vel staðsett í miðborg-
inni. Frá 73 metra háum turninum
er frábært útsýni og fjöldi manns
kemur þangað daglega til að njóta
þess.
Þjóðminjasafnið
Safnið var stofnað árið 1863 og
geymir um 2.000 menningar-
sögulega dýrgripi, meðal annars
Valþjófsstaðahurðina frá því um
1200 og Þórslíkneskið, sem var gert
í kringum árið 1000. n
Að vera túristi í eigin landi
Perlan er efst á
lista TripAdvisor
yfir staði til að
heimsækja á
Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Geysir er mikilfenglegur staður sem öllum finnst gaman að heimsækja.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Iceland Travel er elsta
ferðaþjónustufyrirtækið á
Íslandi og sinnir erlendum
ferðamönnum að miklu
leyti. En það er líka með
afar öfluga ráðstefnu- og
viðburðadeild sem sér um
viðburði og ráðstefnur fyrir
hópa og fyrirtæki af öllum
stærðum og gerðum um
allt land.
„Iceland Travel var stofnað árið
1937 og er elsta ferðaþjónustufyr-
irtækið á Íslandi. Það kemur inn á
allar tegundir ferðaþjónustu, allt
frá einstaklingum upp í hvata- og
ráðstefnuferðir og yfir í skemmti-
ferðaskip,“ segir Sesselja Dag-
björt Gunnarsdóttir, yfirmaður
hvata- og ráðstefnudeildar. „Þessi
fjölbreytta þjónusta, áratugalöng
reynsla okkar og fjöldi tungumál-
anna sem starfsmenn tala, er það
sem gefur fyrirtækinu sérstöðu á
markaðnum.“
„Það má segja að við höfum
verið fremst í f lokki í áratugi,“
segir Heiður Dögg Sigmarsdóttir,
kerfisstjóri ráðstefnudeildar. „Við
erum líka hluti af svo stóru ferða-
þjónustufyrirtæki að við erum
vel sett til að bjóða upp á sérupp-
lifanir fyrir okkar gesti sem önnur
fyrirtæki eiga erfitt með að veita.
Ef þú vilt búa til sérupplifun,
hvort sem það er viðburður, gala-
dinner, partí eða ferð út á land,
getum við gert það á einstakan
hátt, nokkuð sem önnur fyrir-
tæki eiga erfitt með að skapa, því
við höfum bæði þessa gríðarlegu
reynslu og mjög sterka innviði.“
Glænýtt og nútímalegt
stjórnkerfi
„Við erum líka komin með glæ-
nýtt og mjög öflugt viðburða-
stjórnunarkerfi sem heldur utan
um ráðstefnur að öllu leyti fyrir
þátttakendur, en kerfið var tekið í
gagnið í fyrra,“ segir Sesselja. „Það
heldur meðal annars utan um
skráningu þátttakenda, notenda-
virkni og ágrip sem er hægt að
móttaka ef svo ber undir. Kerfið
býður upp á APP, skoðunarkann-
anir og einnig þann möguleika
að hafa ráðstefnuna stafræna,
í persónu, eða blöndu af hvoru
tveggja.“
„Það er það nýjasta í bransanum
að hafa ráðstefnur bæði á netinu
og í persónu. Með þessu nýja
kerfi getum við boðið upp á alla
þjónustu sem fylgir ráðstefnum,
hvernig sem þær eru haldnar, á
mjög þægilegan og aðgengilegan
hátt,“ bætir Heiður við.
Sjá um allt frá A-Ö
„Ráðstefnu- og viðburðadeild
Iceland Travel hefur séð um inn-
lendar og erlendar ráðstefnur í
áratugi, margar hverjar innan
heilbrigðis- og vísindageirans.
Við höfum til að mynda séð um
loftslagsráðstefnuna Arctic Circle,
Læknadaga, ýmiss konar nor-
rænar ráðstefnur og Sjávarútvegs-
sýninguna í Laugardalshöll, ásamt
smærri viðburðum fyrir ráðu-
neyti og aðra aðila. Sem dæmi má
nefna alls kyns vísindaráðstefnur
fyrir Veðurstofuna, sem fjalla um
allt sem viðkemur jöklum, lofts-
lagsbreytingum, jarðhræringum
og eldgosum,“ segir Sesselja.
„Við teljum okkur vera eina
fyrirtækið sem getur boðið allt frá
A-Ö. Við getum skipulagt allt
sem viðkemur verkefnastjórn svo
sem: skráningu, þátttöku, bókun
á mat og drykk, ferðir, bókanir á
innanhússrýmum, ásamt f lugi og
gistingu fyrir gestafyrirlesara en
nefndir sjá um faglega tengingu,“
segir Sesselja. „Fyrirtækið í
heild hefur mikið verið að þjóna
erlendum gestum, en ráðstefnu-
og viðburðadeildin á meira erindi
við Íslendinga.
Við tökum á móti beiðnum af
öllum stærðum og gerðum og það
skiptir í raun engu máli hver á í
hlut, þó við höfum helst verið að
þjónusta hópa innan heilbrigðis-,
mennta- og vísindageirans. Við
störfum ekki einungis í Reykjavík,
heldur erum við til dæmis að sjá
um viðburði á Akureyri og Siglu-
firði í haust og svo á Egilsstöðum
á næsta ári,“ segir Sesselja. „Við
getum boðið þjónustu okkar um
allt land og kappkostum að veita
bestu, mögulegu þjónustuna á
sem hagstæðasta verði hverju
sinni.“
„Við bjóðum líka upp á almenna
viðburði fyrir fyrirtæki og alls
konar hópa, ársfundi, vorferðir,
árshátíðir og slíkt. Alls konar hóp-
efli og húllumhæ,“ segir Heiður. n
Hægt er að hafa samband við
Iceland Travel í gegnum heimasíðu
fyrirtækisins, www.icelandtra-
vel. is eða í netfangið mice@
icelandtravel.is
Iceland Travel sinnir viðburðum
og ráðstefnum að öllu leyti
Starfsfólk ráðstefnudeildar Iceland Travel hefur séð um innlendar og erlendar ráðstefnur í ára-
tugi og getur skapað sérupplifanir sem önnur fyrirtæki eiga erfitt með að veita. MYND/AÐSEND
8 kynningarblað 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFERÐAST UM ÍSLAND