Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 28
Nú geta ferðalangar á Héraði heimsótt hreindýrskálfana Garp og Mosa í fyrsta hrein- dýragarði lýðveldisins á Vínlandi. thordisg@frettabladid.is „Hann pabbi minn, Björn Magnús- son, hefur verið áhugamaður um hreindýr í árafjöld. Hann er auðvitað í skýjunum með hrein- dýrskálfana á heimilinu, þá Garp og Mosa, og dæsti einn daginn stundarhátt: „Já, draumar geta ræst“. Hann sótti eitt sinn um leyfi til að halda grænlenska hreindýra- hjörð á Íslandi, en fékk neitun. Svo kom þetta upp í hendurnar á honum og víst að kálfarnir hefðu aldrei lifað af án hans.“ Þetta segir Ásdís Sigríður Björns- dóttir, ferðaþjónustubóndi og átta barna móðir á bænum Vínlandi í Fellabæ, vestan Lagarfljóts. Ásdís hefur verið hreindýra- mamma síðan í fyrravor. „Þá var systir mín í vélsleðaferð uppi á heiði og rakst á tvo agnar- smáa og móðurlausa hreindýrs- kálfa. Engin önnur hreindýr voru nærri og þegar vélsleðafólkið kom aftur að kálfunum um klukku- stund síðar voru ekki heldur nein hreindýr í augsýn. Því var brugðið á það ráð að hringja í pabba og leita ráða. Sá var ekki lengi að hugsa sig um og sagði: „Komið með kálfana til mín og sjáum hvort okkur takist að halda í þeim lífinu“. Þessir umkomulausu hreindýrskálfar voru svo pínulitlir að þeir komust fyrir í bakpoka ferðalanganna og strax var ljóst að þeir voru ekki sammæðra, því Garpur var um þriggja daga gamall og Mosi um viku eldri,“ upplýsir Ásdís. Broddur og saltaður rjómi Fyrstu nóttina voru hreindýrskálf- arnir litlu í bílskúrnum hjá Birni en það gekk nú ekki vel. „Þar sem við hjónin keyptum jörð með skóglendi hér á Vínlandi fyrir fjórum árum var ákveðið að koma með kálfana til okkar og við höfðum líka húsaskjól sem ég hafði hugsað fyrir kamínu og til að sitja við eld, en því var snarlega breytt í hreindýrahús. Við tók svo óskapleg vinna,“ greinir Ásdís frá. Hún segir hreindýr með ein- dæmum viðkvæmar skepnur og algengt að þau drepist úr hræðslu þegar þau óttist um líf sitt, eins og þegar þau eru elt á vélsleða, en búið sé að finna lyf sem kemur í veg fyrir slíkt sé því sprautað strax í dýrin. „Það er erfitt að segja hvað varð um mæður kálfanna, en ekki er óalgengt að hreindýrskálfar finnist einir og yfirgefnir af einhverjum orsökum. Í tilviki Mosa og Garps eru líkur á að snjósleðafólk hafi fælt hjörðina og kálfarnir ekki getað hlaupið á eftir, en eftir á kom í ljós að kálfarnir voru sýktir af mjög slæmum hnýsli og mæð- urnar gætu hafa drepist úr því, því nýfæddir hreindýrskálfar drekka af spena og hafa fengið hnýsilinn í meltingarkerfið með móðurmjólk- inni,“ segir Ásdís. Fyrstu mánuðina stóð líf kálfanna Garps og Mosa oft tæpt. „Til að byrja með þurfti að finna út úr því hvað ætti að gefa þeim að drekka. Þá var hringt á kúabú og athugað hvort til væri broddur, sem er feit og fyrsta mjólkin úr nýbornum kúm. Síðan var broddi safnað saman á bæjunum og meira að segja keyrt alla leið í Skagafjörð eftir broddi. Allt gekk það vel og kálfarnir brögguðust um tíma, en svo fóru þeir að veikjast og fá drullu. Var þá brugðið á það ráð að gefa þeim lamba- og kálfaduft og blanda gæsaeggjum út í, sem og ýmislegt fleira, en þeir Garpur og Mosi hressust lítið af því. Á endanum hafði pabbi samband við Sama sem hann hafði kynnst í Lapplandi og þeir ráðlögðu honum að gefa kálfunum lambaduft og saltaðan rjóma að drekka, því hreindýramjólkin er sölt,“ útskýrir Ásdís sem gaf þeim lýsi upp á hvern dag og sýklalyf þegar í ljós kom að þeir væru með hnýsil. „En svo versnaði þeim enn og aftur og þá reyndust þeir vera með hnýsil sem er tiltölulega nýkominn í íslensk hreindýr og talinn koma úr gæsum. Þá þurftu þeir tíu sinnum sterkari sýklalyfja- skammt.“ Mega ekki fara út í náttúruna Á tímabili leist dýralækninum á Héraði svo á að Mosi hefði það varla af. Hann var lengi óþrosk- aðri og minni vöxtum en Garpur, og horn hans voru minni. „En svo tók Mosi vaxtarkipp og nú eru þeir svipað stórir. Okkur tókst að hjúkra þeim til bata og losa þá við hnýsilinn og þeir virðast hafa það mjög gott.“ Ásdís segir stundum spurt hvers vegna Garpi og Mosa sé ekki sleppt út í náttúruna, nú þegar þeir eru orðnir frískir, en sannleikurinn sé sá að ekki megi sleppa villtum dýrum í náttúruna sem verið hafa í eldi hjá mann- fólki. „Við vissum alltaf að kálfarnir yrðu aflífaðir ef við fengjum ekki leyfi til að hafa þá, en á sama tíma eru lögin þannig að ekki má fanga hreindýr, sem við gerðum ekki; önnur lög banna að ganga í burtu frá deyjandi dýri, og einnig er bannað að sleppa dýrum aftur út í náttúruna. Allt var þetta því á gráu svæði en nú höfum við leyfi fyrir því að hafa kálfana og ein- beitum okkur að því að láta þeim líða sem allra best, förum með þá í göngutúra og bjóðum þeim góða aðstöðu til beitar í skóg- lendi okkar. Þeir eru fyrir löngu orðnir hluti af heimilishaldinu og óborganlegt þegar Garpur var lítill og elti pabba alla leið inn í stofu til mín,“ segir Ásdís og hlær. Tvö börn úr óvæntri átt Í sumarbyrjun var Hreindýra- garður opnaður í Vínlandi sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. „Hér kemst fólk í návígi við kálfana. Þeir eru ljúfir og geð- góðir og koma þegar kunnuglegar raddir kalla. Við höfum leyft fólki að gefa þeim Cheerios úr lófa og spari fá þeir rúgbrauð sem er í uppáhaldi. Við vitum auðvitað ekkert hvernig þeir verða um kynþroskaaldurinn en finnum þá lausn á því. Það væri draumur að vera með hreindýra stelpu og sorglegt að annar kálfur sem við fengum í vor drapst, en hann var stelpa,“ segir Ásdís, sem á sér f leiri hreindýradrauma. „Það er eins og fallegt jólakort að horfa á hreindýrskálfana í snjónum. Við erum að byrja að venja þá á múla og draumurinn að kenna þeim á sleða og fara með þá í jólaferð niður í bæ.“ Ásdís er borinn og barnfæddur Vopnfirðingur. Maður hennar, Ólafur Björnsson, stöðvarstjóri Bílaleigu Akureyrar, var bóndi undir Eyjafjöllunum þegar þau kynntust og þau bjuggu lengi á Selfossi. „Við eigum átta börn saman en nú eru f lest börnin að verða uppkomin og þrjú eftir heima. Það er tómlegt á bænum þegar börnin tínast úr hreiðrinu og erfitt. Ég veit ekki hversu lengi ég var að læra að elda minni matar- skammta og sat þá uppi með mat sem dugði alla vikuna. Það má segja að ég hafi fengið Garp og Mosa í sárabætur; tvö börn úr óvæntri átt sem þurftu á móður að halda. Þeir þekkja raddirnar okkar og gaman að geta kallað á þá: „Komiði strákar!“ og þeir koma eins og hlýðin börn.“ Hreindýragarðurinn er opinn alla daga frá klukkan 11 til 17, en ferðalöngum er einnig velkomið að hringja í síma 842 2519 ef þeir eru í nágrenninu og langar að koma við. Hreindýragarðurinn er líka á Facebook og Instagram @icelandreindeers og @vinland_ guesthouse. ■ HÁLENDISRÚTAN HÁLENDISPASSI SKÓGAR LANDMANNALAUGAR FIMMVÖRÐUHÁLS ÞÓRSMÖRK FARÐU Í DAGSFERÐ, VERTU YFIR NÓTT EÐA LABBAÐU LAUGAVEGINN! Hálendisrútan keyrir daglega inn í Landmannalaugar, Þórsmörk, að Skógum og til baka. Því er hægt að fara í dagsferð, vera yfir nótt, ganga Fimmvörðuháls eða Laugaveginn, allt eftir hentugleika! BÓKAÐU Á RE.IS Já, draumar geta ræst Hreindýrapabbinn Björn Magnússon með Garp og Mosa sem hér maula rúgbrauð úr hendi hans. MYNDIR/AÐSENDAR Pétur, sonur Ás- dísar, knúsar hér litla Garp sem þurfti mikla um- hyggju. Ásdís Sigríður Björnsdóttir varð óvænt hreindýramamma í fyrravor. 10 kynningarblað 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFERÐAST UM ÍSLAND

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.