Fréttablaðið - 23.06.2022, Page 28
Nú geta ferðalangar á Héraði
heimsótt hreindýrskálfana
Garp og Mosa í fyrsta hrein-
dýragarði lýðveldisins á
Vínlandi.
thordisg@frettabladid.is
„Hann pabbi minn, Björn Magnús-
son, hefur verið áhugamaður
um hreindýr í árafjöld. Hann er
auðvitað í skýjunum með hrein-
dýrskálfana á heimilinu, þá Garp
og Mosa, og dæsti einn daginn
stundarhátt: „Já, draumar geta
ræst“. Hann sótti eitt sinn um leyfi
til að halda grænlenska hreindýra-
hjörð á Íslandi, en fékk neitun.
Svo kom þetta upp í hendurnar á
honum og víst að kálfarnir hefðu
aldrei lifað af án hans.“
Þetta segir Ásdís Sigríður Björns-
dóttir, ferðaþjónustubóndi og átta
barna móðir á bænum Vínlandi í
Fellabæ, vestan Lagarfljóts.
Ásdís hefur verið hreindýra-
mamma síðan í fyrravor.
„Þá var systir mín í vélsleðaferð
uppi á heiði og rakst á tvo agnar-
smáa og móðurlausa hreindýrs-
kálfa. Engin önnur hreindýr voru
nærri og þegar vélsleðafólkið kom
aftur að kálfunum um klukku-
stund síðar voru ekki heldur nein
hreindýr í augsýn. Því var brugðið
á það ráð að hringja í pabba og leita
ráða. Sá var ekki lengi að hugsa sig
um og sagði: „Komið með kálfana
til mín og sjáum hvort okkur
takist að halda í þeim lífinu“. Þessir
umkomulausu hreindýrskálfar
voru svo pínulitlir að þeir komust
fyrir í bakpoka ferðalanganna og
strax var ljóst að þeir voru ekki
sammæðra, því Garpur var um
þriggja daga gamall og Mosi um
viku eldri,“ upplýsir Ásdís.
Broddur og saltaður rjómi
Fyrstu nóttina voru hreindýrskálf-
arnir litlu í bílskúrnum hjá Birni
en það gekk nú ekki vel.
„Þar sem við hjónin keyptum
jörð með skóglendi hér á Vínlandi
fyrir fjórum árum var ákveðið að
koma með kálfana til okkar og
við höfðum líka húsaskjól sem ég
hafði hugsað fyrir kamínu og til
að sitja við eld, en því var snarlega
breytt í hreindýrahús. Við tók svo
óskapleg vinna,“ greinir Ásdís frá.
Hún segir hreindýr með ein-
dæmum viðkvæmar skepnur og
algengt að þau drepist úr hræðslu
þegar þau óttist um líf sitt, eins
og þegar þau eru elt á vélsleða, en
búið sé að finna lyf sem kemur í
veg fyrir slíkt sé því sprautað strax
í dýrin.
„Það er erfitt að segja hvað varð
um mæður kálfanna, en ekki er
óalgengt að hreindýrskálfar finnist
einir og yfirgefnir af einhverjum
orsökum. Í tilviki Mosa og Garps
eru líkur á að snjósleðafólk hafi
fælt hjörðina og kálfarnir ekki
getað hlaupið á eftir, en eftir á kom
í ljós að kálfarnir voru sýktir af
mjög slæmum hnýsli og mæð-
urnar gætu hafa drepist úr því, því
nýfæddir hreindýrskálfar drekka
af spena og hafa fengið hnýsilinn í
meltingarkerfið með móðurmjólk-
inni,“ segir Ásdís.
Fyrstu mánuðina stóð líf
kálfanna Garps og Mosa oft tæpt.
„Til að byrja með þurfti að finna
út úr því hvað ætti að gefa þeim
að drekka. Þá var hringt á kúabú
og athugað hvort til væri broddur,
sem er feit og fyrsta mjólkin úr
nýbornum kúm. Síðan var broddi
safnað saman á bæjunum og meira
að segja keyrt alla leið í Skagafjörð
eftir broddi. Allt gekk það vel og
kálfarnir brögguðust um tíma,
en svo fóru þeir að veikjast og fá
drullu. Var þá brugðið á það ráð
að gefa þeim lamba- og kálfaduft
og blanda gæsaeggjum út í, sem
og ýmislegt fleira, en þeir Garpur
og Mosi hressust lítið af því. Á
endanum hafði pabbi samband
við Sama sem hann hafði kynnst í
Lapplandi og þeir ráðlögðu honum
að gefa kálfunum lambaduft og
saltaðan rjóma að drekka, því
hreindýramjólkin er sölt,“ útskýrir
Ásdís sem gaf þeim lýsi upp á
hvern dag og sýklalyf þegar í ljós
kom að þeir væru með hnýsil.
„En svo versnaði þeim enn og
aftur og þá reyndust þeir vera
með hnýsil sem er tiltölulega
nýkominn í íslensk hreindýr og
talinn koma úr gæsum. Þá þurftu
þeir tíu sinnum sterkari sýklalyfja-
skammt.“
Mega ekki fara út í náttúruna
Á tímabili leist dýralækninum á
Héraði svo á að Mosi hefði það
varla af. Hann var lengi óþrosk-
aðri og minni vöxtum en Garpur,
og horn hans voru minni.
„En svo tók Mosi vaxtarkipp og
nú eru þeir svipað stórir. Okkur
tókst að hjúkra þeim til bata
og losa þá við hnýsilinn og þeir
virðast hafa það mjög gott.“
Ásdís segir stundum spurt
hvers vegna Garpi og Mosa sé
ekki sleppt út í náttúruna, nú
þegar þeir eru orðnir frískir, en
sannleikurinn sé sá að ekki megi
sleppa villtum dýrum í náttúruna
sem verið hafa í eldi hjá mann-
fólki.
„Við vissum alltaf að kálfarnir
yrðu aflífaðir ef við fengjum ekki
leyfi til að hafa þá, en á sama tíma
eru lögin þannig að ekki má fanga
hreindýr, sem við gerðum ekki;
önnur lög banna að ganga í burtu
frá deyjandi dýri, og einnig er
bannað að sleppa dýrum aftur út
í náttúruna. Allt var þetta því á
gráu svæði en nú höfum við leyfi
fyrir því að hafa kálfana og ein-
beitum okkur að því að láta þeim
líða sem allra best, förum með
þá í göngutúra og bjóðum þeim
góða aðstöðu til beitar í skóg-
lendi okkar. Þeir eru fyrir löngu
orðnir hluti af heimilishaldinu
og óborganlegt þegar Garpur var
lítill og elti pabba alla leið inn í
stofu til mín,“ segir Ásdís og hlær.
Tvö börn úr óvæntri átt
Í sumarbyrjun var Hreindýra-
garður opnaður í Vínlandi sá
fyrsti sinnar tegundar á Íslandi.
„Hér kemst fólk í návígi við
kálfana. Þeir eru ljúfir og geð-
góðir og koma þegar kunnuglegar
raddir kalla. Við höfum leyft fólki
að gefa þeim Cheerios úr lófa og
spari fá þeir rúgbrauð sem er í
uppáhaldi. Við vitum auðvitað
ekkert hvernig þeir verða um
kynþroskaaldurinn en finnum
þá lausn á því. Það væri draumur
að vera með hreindýra stelpu og
sorglegt að annar kálfur sem við
fengum í vor drapst, en hann var
stelpa,“ segir Ásdís, sem á sér f leiri
hreindýradrauma.
„Það er eins og fallegt jólakort
að horfa á hreindýrskálfana í
snjónum. Við erum að byrja að
venja þá á múla og draumurinn að
kenna þeim á sleða og fara með þá
í jólaferð niður í bæ.“
Ásdís er borinn og barnfæddur
Vopnfirðingur. Maður hennar,
Ólafur Björnsson, stöðvarstjóri
Bílaleigu Akureyrar, var bóndi
undir Eyjafjöllunum þegar þau
kynntust og þau bjuggu lengi á
Selfossi.
„Við eigum átta börn saman
en nú eru f lest börnin að verða
uppkomin og þrjú eftir heima.
Það er tómlegt á bænum þegar
börnin tínast úr hreiðrinu og
erfitt. Ég veit ekki hversu lengi ég
var að læra að elda minni matar-
skammta og sat þá uppi með mat
sem dugði alla vikuna. Það má
segja að ég hafi fengið Garp og
Mosa í sárabætur; tvö börn úr
óvæntri átt sem þurftu á móður
að halda. Þeir þekkja raddirnar
okkar og gaman að geta kallað
á þá: „Komiði strákar!“ og þeir
koma eins og hlýðin börn.“
Hreindýragarðurinn er opinn
alla daga frá klukkan 11 til 17, en
ferðalöngum er einnig velkomið
að hringja í síma 842 2519 ef þeir
eru í nágrenninu og langar að
koma við. Hreindýragarðurinn
er líka á Facebook og Instagram
@icelandreindeers og @vinland_
guesthouse. ■
HÁLENDISRÚTAN
HÁLENDISPASSI
SKÓGAR
LANDMANNALAUGAR
FIMMVÖRÐUHÁLS ÞÓRSMÖRK
FARÐU Í DAGSFERÐ, VERTU YFIR NÓTT
EÐA LABBAÐU LAUGAVEGINN!
Hálendisrútan keyrir daglega inn í Landmannalaugar,
Þórsmörk, að Skógum og til baka. Því er hægt að
fara í dagsferð, vera yfir nótt, ganga Fimmvörðuháls
eða Laugaveginn, allt eftir hentugleika!
BÓKAÐU Á RE.IS
Já, draumar geta ræst
Hreindýrapabbinn Björn Magnússon með Garp og Mosa sem hér maula rúgbrauð úr hendi hans. MYNDIR/AÐSENDAR
Pétur, sonur Ás-
dísar, knúsar hér
litla Garp sem
þurfti mikla um-
hyggju.
Ásdís Sigríður Björnsdóttir varð
óvænt hreindýramamma í fyrravor.
10 kynningarblað 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFERÐAST UM ÍSLAND