Fréttablaðið - 23.06.2022, Side 30
starri@frettabladid.is
Lítið hefur farið fyrir bæjarhá-
tíðum hér á landi undanfarin tvö
sumur vegna heimsfaraldursins.
Nú eru þær komnar á fullt aftur og
tilvalið fyrir ferðalanga að heim-
sækja þær á ferðalagi um landið
næstu vikurnar.
Næstu helgi, 25.-26. júní, verða
margar bæjarhátíðir haldnar. Á
Humarhátíðinni á Höfn í Horna-
firði verður boðið upp á humar-
súpu og fjölbreytta dagskrá og í
Borgarnesi verður haldin Brákar-
hátíð til heiðurs Brák, kvenhetj-
unni miklu frá víkingatímum. Þar
verður meðal annars boðið upp á
bílasýningar, markaði og Lata-
bæjarsafnið verður opið.
Sömu helgi verða Lummudagar
haldnir í Skagafirði, Hamingju-
dagar fara fram á Hólmavík og
bæjarhátíðin Hofsós heim verður
haldin á Hofsósi, þar sem boðið
verður upp á varðeld, sjósund,
markaði og fleira.
Meðal hátíða sem haldnar
verða helgina 2.-3. júlí má nefna
Markaðshelgina í Bolungarvík
sem er blanda af öflugu markaðs-
torgi og tónlistar- og fjölskyldu-
skemmtun og Goslokahátíð Vest-
mannaeyja en þar er endalokum
eldgossins á Heimaey 1973 fagnað.
Á Þingeyri fara fram sömu helgi
Dýrafjarðardagar og á Stokkseyri
verður Bryggjuhátíð haldin, þar
sem verður boðið upp á varðeld
og bryggjusöng ásamt fjölbreyttri
fjölskyldudagskrá. ■
Bæjarhátíðir
haldnar aftur
Brákarhátíð er ein fjölmargra
bæjarhátíða sem fara fram næstu
vikurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Þarna væri lúxus að gista.
FRÉTTABLADID/GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Það er alltaf gaman að prófa eitt-
hvað nýtt á ferðalagi um landið.
Bæði að sjá nýja staði en líka að
prófa nýjungar í gistingu. Fyrir þau
sem vilja fara í útilegu en nenna
ekki stússinu sem fylgir því að setja
upp tjald, eða draga ferðavagn á
eftir sér er hægt að prófa gistingu í
lúxustjaldi. Það eru nokkrir aðilar
hér á landi sem bjóða upp á slíka
gistingu. Til dæmis eru slík tjöld
í Húsadal í Þórsmörk og á Suður-
landi eru gegnsæjar uppblásnar
kúlur þar sem hægt er að gista og
horfa á stjörnurnar.
Lúxustjöldin er upphituð og
notaleg og upplifunin er einskonar
blanda af útilegu og hótelgistingu.
Með því að gista í lúxustjaldi er
hægt að njóta náttúrunnar en um
leið að njóta þæginda eins og hlýs
rúms og upphitaðs svefnrýmis.
Með því að slá orðinu “Glamping”
inn á Google leitarvélina er hægt
að sjá hvaða staðir á Íslandi bjóða
upp á lúxustjaldgistingu. Það er
um að gera að prófa! ■
Lúxusútilega
oddurfreyr@frettabladid.is
Götubitinn verður á ferð um land-
ið í sumar og um helgina verða
þrír viðburðir á ólíkum stöðum,
á Selfossi, Í Reykjavík og í Borgar-
nesi, og verða ólíkir matarvagnar
í boði. Aðdáendur götumatar geta
því notið þess að gæða sér á slíku
góðgæti á nýjum stöðum og íbúar
í nágrenninu fá smá tilbreytingu í
heimsókn.
Götubitinn sérhæfir sig í við-
burðum og annarri þjónustu
tengdri mat, hátíðum, matar-
mörkuðum, matarvögnum og
„pop up veitingastöðum“.
Götubitinn fer næst í heimsókn
á Selfoss föstudaginn 24. júní.
Þá verður hann við bílastæðin
hjá Byko frá klukkan 17 til 19.30.
Á svæðinu verða matarvagnar,
hoppukastalar og létt götubita-
hátíðarstemmning.
Á laugardaginn 25. júní verður
Götubitinn svo með nokkra
matarvagna, hoppukastala og
götubita-hátíðarstemmningu við
Norðlingaskóla í Norðlingaholti
milli klukkan 17 og 19.30.
Á sunnudag fer Götubitinn
síðan í heimsókn í Borgarnes
þar sem nokkrir matarvagnar
verða með dýrindis matkrásir við
Hjálmaklett, aftur milli klukkan
17 og 19.30. ■
Götubiti á ferð um landið í sumar
Götumatur nýtur mikilla vinsælda.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
12 kynningarblað 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFERÐUMST UM ÍSLAND