Fréttablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 42
KVIKMYNDIR
Lightyear
Pixar
Leikstjóri: Angus MacLane
Nína Richter
Pixar, vinsælasta kvikmyndaver
Hollywood, hefur framleitt ástsælar
fjölskyldumyndir á borð við Leik-
fangasögu-fjarkann Toy Story, Mon-
sters Inc., Wall-E, Inside out og Coco.
Lightyear er fyrsta Pixarmyndin
síðan 2020 sem ratar í kvikmynda-
hús, en Soul, Luca og Turning Red
fóru allar þráðbeint inn á streymis-
veituna Disney+. Aðsókn á Lightyear
hefur verið slök á heimsvísu, til að
mynda minni en á Pixar myndina
Cars 3 sem kom út 2017.
Lightyear er eins konar dóttur-
mynd Toy Story, þar sem hún fjallar
um persónuna Bósa Ljósár – en ekki
leikfangið Bósa, sem við þekkjum úr
myndunum heldur sögupersónuna
sem leikfangið á að byggja á. Hug-
myndin er í sjálfu sér ekki hræðileg,
en handritshöfundum bregst boga-
listin í ýmsu sem varðar framvindu
og takt í sögunni, og persónugall-
erí. Og hefur þá klúðrast f lest sem
klúðra má.
Lightyear er hreinræktuð vísinda-
skáldsaga. Hún fjallar um fólk sem
festist á óvinveittri plánetu og lang-
ar að komast heim og þarf að nota
til þess framtíðartækni og tíma-
ferðalög. Leitin að leiðinni heim er
þema sögunnar og spurningin hvað
sé heimili er lykilspurningin. Allt
er þetta matreitt fyrir unga áhorf-
endur, eða það er að minnsta kosti
hugmyndin.
Undirrituð horfði á myndina
með syni og dóttur, fimm og sjö
ára gömlum. Sagan gerir ráð fyrir
því að börn þekki til alls konar
minna úr vísindaskáldskap. Tíma-
f lakkshugmyndin er þokkalega
útskýrð en ásetningur persóna og
framvinda er þó svo illa matreidd
að meira að segja fullorðnir gætu
ruglast.
Persónurnar eru grunnar, Bósi
sjálfur er ekkert hræðilega spenn-
andi aðalpersóna og áhorfendum
er slétt sama um örlög hans. Sam-
bönd hans við lykilpersónur, einn-
ig óspennandi, eru grunn og byggja
á engu. Það var gott að sjá opinber-
lega samkynhneigða aukapersónu
í Pixarmynd en þar eru kostirnir
upp taldir. Gömul gildi Bósa, sem
sagan gengur út á að endurskoða,
eru ekkert sérstaklega vel fest eða
sannfærandi. Þegar lykilspurning-
unni um heimilið er svarað, verður
svarið eins og þunn afsökun fyrir
lengd myndarinnar. ■
NIÐURSTAÐA: Óháð heimferð
Bósa langaði áhorfendur bara
sjálfa að komast heim.
Hálfbakaður Bósi Ljósár
Ljósár hefur ekki staðið undir væntingum hvað aðsóknartölur varðar.
MYND/PIXAR
Helga Lilja Magnúsdóttir
fatahönnuður endurvekur
fatamerkið Helicopter með
útgáfu nýrrar línu sem kemur
út í Kiosk á Granda í dag. Flúr
af félögum hönnuðarins eru
innblástur nýju línunnar.
ninarichter@frettabladid.is
Helga Lilja Magnúsdóttir lagði hið
geysivinsæla Helicopter fatamerki
á hilluna árið 2017. Aðspurð segir
hún ástæðuna margþætta. „Hitt
merkið mitt er Heritage, þar sem
ég vinn alltaf með sama mynstrið.“
Hún segir hönnunarþörfina hrein-
lega hafa öskrað á sig fyrir tveimur
árum. „Þá virkilega fann ég að ég
varð að koma með Helicopter til
baka.“
Tattúvélin tekin upp í partíi
Kveikjan að nýju línunni var sím-
tal frá vinkonu Helgu Lilju. „Hún
hafði verið í gleðskap kvöldið áður
og sagði: Guð minn góður, ég fór á
svo brjálæðislega réttum tíma úr
þessu partíi, þremur mínútum áður
en tattú-vélin var tekin upp,“ segir
hún og hlær. Helga Lilja lýsir því að
nokkrir einstaklingar hafi vaknað
með húðf lúr á líkamanum eftir
kvöldið og hún hafi séð ljósmynd af
slíku flúri.
„Ég ætla ekki að segja hvaða flúr
þetta er, en það er í línunni. Ég fékk
þetta flúr fullkomlega á heilann og í
tvo mánuði pældi ég eiginlega ekki í
neinu öðru. Ég áttaði mig á því að ég
varð að gera eitthvað við þetta.“
Helga Lilja fór því á stúfana og
spurði manneskjuna sem bar flúrið
hvort að hún mætti vinna með það.
Það var auðsótt mál. Í framhaldinu
kviknaði neisti hjá hönnuðinum. „Þá
fór ég í huganum að fara yfir gömul
tattú sem ég hef séð í gegnum tíðina.“
Undarlega stór ákvörðun
Helga Lilja kveðst sjálf vera óflúruð
en segist alla tíð hafa haft mikinn
áhuga á tattúum. „Ég skil ekki hvern-
ig fólk getur tekið ákvörðunina um
að setja tattú á líkamann sinn. Ég á
erfitt með að ákveða hvað á að vera
í kvöldmat og í hvaða fötum ég á að
vera,“ segir hún. „Og stundum finnst
mér ég skrýtin í því sem ég ákveð að
klæða mig í.“
Hún segir að hér sé um að ræða
ákvörðun um að setja eitthvað á
líkama sinn sem endist lengur en
manneskjan sjálf inni í líkamanum.
„Það er bara ótrúlegt,“ segir hún, en
bætir við að fyrirbærið fylli hana
innblæstri á sama tíma.
Helga Lilja segir áhugaverðustu
tattúin að sínu mati þau sem gerð
séu með „stick and poke“ aðferð í
hita augnabliksins, umfram þau sem
stefnt hefur verið að með löngum
fyrirvara.
Stefnir á að stækka
Hún segir viðbrögðin hafa verið
jákvæð þegar hún falaðist eftir notk-
un flúranna í verkefninu, aðeins einn
hafi afþakkað þátttöku. „Ég veit ekki
hvort að þeir sem játtu því að vera
með í þessu verkefni viti almenni-
lega hvað það gengur út á,“ segir hún
sposk. „En ég gerði heila línu út frá
húðflúrum á líkömum kunningja
og vina minna.“
Aðspurð hvort að teiknararnir eða
tattúlistafólkið sé „krediterað“ sér-
staklega svarar hún að svo sé ekki á
þessum tímapunkti.
„Ég hugsaði út í að þetta myndi
vera verkefni sem yrði miklu stærra.
Að ég myndi í rauninni bara gefa út
bók með fólkinu. Ég veit að ég má
segja það, að Hildur Guðna er með
eitt af tattúunum, hún er vinkona
mín,“ segir Helga Lilja. Ótrúlega
gaman gæti verið að stækka verk-
Flúrin af félögunum rötuðu á fötin
Helga Lilja
Magnúsdóttir
endurvekur
Helicopter-
línuna í Kiosk
á Grandagarði
í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Fyrirsætan klæðist galla úr silki með
útsaumi. MYND/ATLI ÞÓR ALFREÐSSON
Nýja línan var ljósmynduð í Aþenu
fyrr á árinu. MYND/ATLI ÞÓR ALFREÐSSON
toti@frettabladid.is
Guðný Ósk
Laxdal
enskukennari og
sérfræðingur í
kóngafólki
„Fyrir fimm-
tugt? Ú, þetta er
góð spurning.
Ég held ekki.
Ég held hann verði kominn yfir
fimmtugt. Ég held að við munum
sjá Karl verða konung en þetta er
bara alltaf spurning um hversu
lengi Elísabet ætlar að halda sér
á lífi,“ segir Guðný Ósk Laxdal
enskukennari sem lengi hefur
deilt yfirburðaþekkingu sinni á
bresku konungsfjölskyldunni sem
@roylaicelander á Instagram, um
Vilhjálm prins sem varð fertugur á
þriðjudaginn.
Kóngur vill hann verða …
Karl, faðir Vilhjálms, er fremstur
í röð ríkisarfa og vel rúmlega sjö-
tugur bíður hann enn. Guðný Ósk
bendir þó á að Camilla, eiginkona
Karls, njóti augljósrar velþóknunar
Elísabetar og hún telji hana vera
framtíðardrottningu. „Það er svo
augljóst að það er vilji Elísabetar
að Karl taki við og ljóst að það
verður aldrei hoppað yfir hann.
En hversu lengi Karl mun lifa
er síðan allt annað mál. Ef maður
horfir til næstu tíu ára þá held ég
nú að Karl verði konungurinn.“
Fullkomin konungshjón
Guðný Ósk segist, Vilhjálms
vegna, vona að hann þurfi ekki
að bíða jafn lengi og faðir hans
og efast ekki um að þegar þar að
kemur verði Vilhjálmur og Katrín
fyrirmyndarkonungshjón.
„Ég veit ekki hvað þetta er en
þau eru eiginlega bara orðin full-
komin og virðast ekki geta gert
neitt rangt og ef þau gera það
þá fer það einhvern veginn ekki
í fjölmiðla. Þú sérð bara muninn
á Harry og Meghan þar sem fjöl-
miðlar eru alltaf svolítið að vinna
gegn þeim en með Villa og Kötu.“
Þá bendir Guðný Ósk á að
Vilhjálmur og Katrín hafi yngri
kynslóðirnar með sér og Karli
muni reynast mjög erfitt að halda
uppi vinsældum konungsfjöl-
skyldunnar án þess að vera með
þau í sviðsljósinu.
„Við sáum þetta sérstaklega á
valdaafmælinu þar sem krakkarnir
þeirra voru að koma mikið fram
og verið að sýna fjölskylduna.
Það vekur alltaf mikla lukku og
þau verða einhvern veginn „fjöl-
skyldan okkar“ í hugum fólks.“ ■
Verður Vilhjálmur konungur
fyrir fimmtugt?
■ Lykilspurningin
efnið en hún ætli að einbeita sér að
fötunum fyrst um sinn.
Hún segir eldri útgáfur Helicopter-
merkisins hafa gengið út á digital-
prentun að stóru leyti. „Þetta snýst
mikið um litagleði og mynstur. Mér
finnst fara mínum líkama best að
vera í einföldum sniðum, kassa-
sniðum úr þungum fallegum efnum.
Beinum buxum og t-shirtum. Það
fer mínum líkama best,“ segir hún.
Því vinni hún út frá þeim einföldu
sniðum, en leiki sér þá í staðinn með
mynstrin.
Glimmerprent og útsaumur
Í nýju línunni eru þrjár flíkur digi-
tal-prentaðar. En Helga Lilja notast
einnig við glimmerprent sem hún
segir glitra eins og yfirborð sjávar-
ins í sólinni. „Það er alveg bilað,“
segir hún. Þá sé mikið um útsaumuð
mynstur í nýju línunni. „Af því að
tattú eru gerð með nál. Í anda þess
er ég með aðalflík, silkisett, sem er
kveikjan að þessu öllu saman. Það er
úr brjálæðislega fínu silki-satín efni
og svo eru öll tattúin „embroiduð“ á
gallann.“
Helga Lilja segist hafa tekið með-
vitaða ákvörðun um að gera aðeins
það sem hana sjálfa langaði að gera, í
þetta sinn. „Þetta endurspeglar minn
stíl. Ég var aðeins farin að sigla frá
honum þarna undir endann og það
var ein af ástæðum þess að ég þurfti
aðeins að hvíla mig,“ segir hún, en
hún segist hafa gefið út síðustu Heli-
copter-línuna fram að þessu árið
2017. ■
22 Lífið 23. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 23. júní 2022 FIMMTUDAGUR