Fréttablaðið - 21.07.2022, Side 15

Fréttablaðið - 21.07.2022, Side 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT FIMMTUDAGUR 21. júlí 2022 Ætli sokkabuxur úr plöntunæloni verði aðeins minna einnota en þær eru í dag? FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY jme@frettabladid.is Fyrirtækin Genomatica (Geno) og Aquafil hafa nú fullklárað fyrstu prufuframleiðslu á nylon-6 sem framleitt er með hjálp plantna. Plöntunæloninu er ætlað að hafa veruleg áhrif á 300 billjarða króna iðnað, sem telur allt frá framleiðslu á fatnaði til bílahluta og gólfmotta. Geno beislar líffræði til þess að endurgera hversdagslega hluti og hráefni í þágu plánetunnar. Í baráttunni gegn loftslagsvánni þróar Geno sjálfbær hráefni sem eru unnin úr úrgangi eða plöntum í stað jarðefnaeldsneytis. Aquafil var stofnað árið 1965 og er einn helsti framleiðandi nælons á Ítalíu og á alþjóðavísu. Fyrirtækið er staðsett í sjö löndum í þremur heimsálfum. Uppfylla kröfur neytenda Christopher Schilling, fram- kvæmdastjóri Geno, segir: „Nú taka vörumerki á alþjóðavísu almenni- lega þátt í að nota sjálfbær hráefni í vörur sínar. Við byggjum stefnu- fastar, rekjanlegar og gagnsæjar aðfangakeðjur, í þessu tilfelli fyrir nylon-6, til þess að uppfylla kröfur neytenda um sjálfbærari vörur og bjóða upp á hráefnislausnir sem hjálpa vörumerkjum að uppfylla ESG (Environmental, Social and Governance) markmið sín. Giulio Bonazzi, framkvæmda- stjóri Aquafil, segir: „Heimurinn þarf á allri nálgun að halda sem snýr að því að gera aðfangakeðjur sjálfbærari, að búa til nælon með líf- rænum hætti er lykilatriði í því.“ n Framtíðin er úr plöntunæloni VATNASVÆÐI UM ALLT LAND 36 FYLGIRIT VEIÐIKORTSINS 18. árgangur - Kr. 8.900 - frelsi til að veiða! 00000 Aðeins 8.900 Frelsi til að veiða B Ä S T A I T E S T Bäst-i-Test 2022.s e BESTA SÓLARVÖRNIN 7 ár Í RÖÐ Fæst í Apótekum, Hagkaup, Fríhöfninni og víðar | nánar á evy.is og celsus.is Tónlistarkonan Salka Valsdóttir segir að stíllinn hennar heima við og stíllinn hennar þegar hún spilar á tónleikum, sé mjög ólíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Það eru miklir pólar í mínum stíl Salka Valsdóttir er í hljómsveitunum Reykjavíkur ­ dætrum og Cyber og hefur gert tónlist fyrir verk í Þjóðleikhúsinu. Hún er hrifin af notuðum fötum og finnst gaman að leika sér með stíl. oddurfreyr@frettabladid.is Það er mikið að gera hjá Sölku um þessar mundir. Reykjavíkurdætur gefa út nýtt lag á morgun og eru að spila mikið þessa dagana ásamt því að vinna í nýrri plötu og Cyber er líka að vinna að nýrri plötu. Salka er einnig að vinna að nýju verki fyrir Þjóðleikhúsið, ásamt því að sinna verkefnum fyrir kvik- myndir. Mikill húmor í nýja laginu Nýja lagið frá Reykjavíkurdætrum heitir Sirkus. „Við sömdum þetta lag í heima- stúdíóinu mínu. Okkur fannst fyndið að semja lag þar sem við erum allar eins og atriði í farand- sirkus, ein væri kraftakona, önnur væri skeggjuð kona og svo framvegis. Það var upphaflega hugmyndin en svo síuðust önnur þemu hægt og rólega inn,“ segir Salka. „Við erum að gera alls konar fyndnar vísanir í sirkustónlist og það er fyndin dýnamík í laginu og Steiney leikur sirkuskynni sem kynnir alltaf næsta vers inn. Við þurfum eiginlega að gera eitthvert rosalegt myndband fyrir þetta. Við ætlum að gefa út nokkrar smáskífur á þessu ári og svo kemur plata á næsta ári. Við vorum að koma úr stuttum Evróputúr og erum að fara til Bandaríkjanna í október og svo ætlum við í stærri túr til að fylgja nýju plötunni eftir,“ segir Salka. „Við erum líka að spila mjög mikið innanlands núna. Við spilum á Druslugöngunni á laugar- daginn og svo á Þjóðhátíð og á Innipúkanum. Þegar við byrjuðum fengum við misjafnar viðtökur og það var eiginlega ljóst að það var ekki mikið pláss fyrir okkur á Íslandi, en núna erum við að fá það mikið af giggum á Íslandi að við gætum verið að vinna við þetta hér, sem er alveg mjög nýtt.“ Smáskífa frá Cyber í ágúst Salka segir að Cyber, sem spilaði á LungA um síðustu helgi, sé að vinna að nýrri plötu sem heitir Sad. „Þetta er svona „teenage angst“ plata, þannig að við erum eigin- lega að skipta um tónlistarstefnu, en það er svo sem ekkert nýtt fyrir Cyber,“ segir hún. „Það verður spennandi og fyrsta smáskífan kemur út í næsta mánuði, en við erum búin að leka henni á hina og þessa, svo hún er á sveimi.“ Styrkleikarnir nýtast í leikhúsi Salka hefur líka verið að vinna fyrir Þjóðleikhúsið. „Ég var ráðin til að tónlistar- stýra Rómeó og Júlíu, sem var verk á Stóra sviði Þjóðleikhússins á síðasta leikári. Upphaflega stóð til að þetta væri þriggja mánaða verk- efni, en svo kom Covid sem lengdi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.