Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 21
„Hvar er betra að vera um versl-
unarmannahelgi en á Unglinga-
landsmóti UMFÍ? Sennilega hvergi.
Mótið er vímulaus íþrótta- og
fjölskylduhátíð sem hefur fyrir
löngu sannað gildi sitt sem for-
varnar- og fjölskylduhátíð. Það
er einstök upplifun að taka á
móti ungmennum sem koma á
Unglingalandsmót UMFÍ. Þangað
koma þátttakendur á mismunandi
forsendum, sumir til að keppa en
aðrir til að njóta þess að takast á
í íþróttum. Þátttakendur koma
til að hitta vini, eignast nýja vini,
safna góðum minningum og síðast
en ekki síst að verja helginni með
fjölskyldunni,“ segir Ómar Bragi
Stefánsson, framkvæmdastjóri
móta UMFÍ
„Það skiptir gríðarlega miklu
máli að taka þátt í skipulögðu
íþrótta- og tómstundastarfi. Þar
hefur UMFÍ lagt sitt á vogarskál-
arnar í áratugi og stendur vaktina
enn. Forvarnir skipta máli og þar
þurfum við öll að standa saman.
Við þurfum ávallt að vera vakandi.
Ungt fólk í dag er frábært. Það er
svo miklu meðvitaðra um mikil-
vægi lýðheilsu en þegar við hin
vorum ung. Þau munu senn taka
við keflinu og halda áfram að gera
samfélagið enn betra.“ n
Frábært forvarnarverkefni
Ómar Bragi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri móta UMFÍ.
Þórir Haraldsson hefur
staðið vaktina nokkur ár
í röð sem formaður fram-
kvæmdanefndar Unglinga-
landsmóts UMFÍ. Hann mun
vinna með fjölda sjálfboða-
liða við fjölbreytt störf um
verslunarmannahelgina.
„Við búumst við miklum fjölda
keppenda og gesta á Selfoss um
verslunarmannahelgina þegar
mótið hefst. Unglingalandsmót
UMFÍ krefst mikils af mótshöldur-
unum, bæði aðstöðu og síðan
þarf margar hendur til að vinna
við það,“ segir Þórir Haraldsson,
formaður framkvæmdanefndar
Unglingalandsmóts UMFÍ á Sel-
fossi.
Þetta er þriðja árið í röð sem
Þórir stendur í stafni við undir-
búning mótsins. Eins og áður hefur
komið fram var því frestað síðast-
liðin tvö ár af völdum faraldursins.
Þórir segir alla aðstöðu til fyrir-
myndar á Selfossi. „Hér er frábær
aðstaða fyrir fjölbreyttar keppnis-
greinar, stórt tjaldsvæði verður
við Suðurhóla þar sem keppendur
og fjölskyldur þeirra gista frítt en
greiða eingöngu fyrir rafmagn,
risastórt samkomutjald, leiktæki
og önnur aðstaða. En það sem
skiptir máli er að flest keppnis-
svæði eru í góðu göngufæri frá
tjaldsvæðinu og flestar greinar
verða á íþróttavallarsvæðinu við
Engjaveg.
Ókeypis strætó fyrir mótsgesti
Til að einfalda allar samgöngur
og draga úr bílaumferð mun móts-
strætó ganga á milli tjaldsvæðis og
íþróttasvæðisins ókeypis.
Þórir leggur áherslu á mikilvægi
þess að allir leggi sitt af mörkum,
dragi úr notkun einkabíla. „Til að
forðast raðir á mestu ferðahelgi árs-
ins bendum við þeim sem geta á að
aka vestan frá um Þrengsli og inn
að tjaldsvæðum frá Eyrarbakka-
vegi um Suðurhóla,“ segir hann og
bætir við að auk þess sem mælst sé
til þess að fólk noti aðrar leiðir til
að fara á milli staða, verði mótið
kolefnisjafnað með skógrækt.
Þátttakendur á mótinu og aðrir
mótsgestir geta lagt sitt af mörkum
með plöntun birkiplantna sem
mótið leggur til og verður plantað
á golfvöll Golfklúbbs Selfoss. Þegar
nær dregur móti verður sagt frá
á hvaða tíma hægt er að koma og
skemmta sér við að gróðursetja
plönturnar.
Þórir býst sjálfur við að verða
mikið á mótinu ásamt fjölda ann-
arra sjálfboðaliða. Störf þeirra
eru fjölbreytt og geta verið allt
frá framkvæmd keppnisgreina til
þjónustu við mótsgesti, þátttak-
endur og aðra gesti. „Það verður
nóg um að vera og nóg að gera. Við
bjóðum ungmenni og fjölskyldur
þeirra velkomin til keppni og
skemmtunar á Selfossi um versl-
unarmannahelgina!“ segir Þórir
Haraldsson að lokum. n
Búist við mörgum á Selfossi
Þórir Haralds-
son, formaður
framkvæmda-
nefndar
Unglingalands-
móts UMFÍ á
Selfossi.
Atli Steinn Stefánsson frá Sauðárkróki.
„Ég mun ávallt eiga góðar minn-
ingar frá Unglingalandsmótunum
og hvet alla til að mæta á það,“ segir
Skagfirðingurinn Atli Steinn Stef-
ánsson. Hann er fæddur árið 2005
og býr á Sauðárkróki. Atli Steinn
var aðeins þriggja ára gamall þegar
hann fór á sitt fyrsta Unglinga-
landsmót ellefu ára gamall í Borgar-
nesi árið 2016. Atli hefur tekið þátt í
öllum mótunum síðan þá.
Hann fór reyndar með liðsfélög-
um sínum í fyrsta skipti og keppti
með þeim. Eftir það hefur hann
farið einn úr liðinu með fjölskyld-
unni. Hann fór ekki í liði heldur
var settur í lið með jafnöldrum og
kynntist hann þeim vel.
Atli hefur aðallega keppt í körfu-
bolta og fótbolta en hefur líka
keppt í skák og kökuskreytingum
auk þess að prófa hitt og þetta sem
í boði er á mótunum. Hann segir
mikilvægt að fara aðeins út fyrir
þægindarammann. Unglingalands-
mót UMFÍ séu frábær vettvangur
til þess.
Fjölskylda Atla hefur alltaf verið
á tjaldsvæði mótanna og segir Atli
að það sé gaman að vera þar, enda
myndist þar útilegustemning sam-
hliða keppninni.
„En síðan má ekki gleyma öllum
kvöldvökunum í stóra tjaldinu þar
sem frábært tónlistarfólk hefur
komið fram. Unglingalandsmótið
er svo mikið meira en mót. Það er
viðburður fyrir alla fjölskylduna
og það þurfa allir að upplifa,“ segir
hann. n
Góðar minningar frá
Unglingalandsmótum
Undanfarna mánuði hefur stór og
öflugur hópur sjálfboðaliða unnið
að undirbúningi Unglingalands-
móts UMFÍ á Selfossi.
Í raun má segja að undirbún-
ingurinn hafi hafist haustið 2019
en vegna Covid-faraldursins var
mótinu frestað í tvö ár. Síðasta
haust var svo þráðurinn tekinn
upp að nýju og nú verður loksins
blásið til móts.
Gera má ráð fyrir að hátt í 400
sjálfboðaliðar komi að mótinu á
einn eða annan hátt. Við eigum
ykkur allt að þakka!
Við hvetjum þátttakendur og
aðra mótsgesti til að bera virðingu
fyrir sjálfboðaliðum á Unglinga-
landsmóti UMFÍ.
Mótshaldarar
Unglingalandsmóts
Mótshaldarar Unglingalandsmóts-
ins á Selfossi um verslunarmanna-
helgina 2022 eru Ungmennafélag
Íslands (UMFÍ), Héraðssambandið
Skarphéðinn (HSK) og Sveitar-
félagið Árborg. n
Takk, sjálfboðaliðar
Um 400 sjálfboðaliðar koma til með að vinna á landsmótinu á Selfossi.
UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS
UNGMENNASAMBAND KJALARNESÞINGS
ALLT UM HLAUPIÐ Á ITHROTTAVEISLA.IS
HUNDA
HLAUP
HLUTI AF ÍÞRÓTTAVEISLU UMFÍ
OG 100 ÁRA AFMÆLI UMSK
SELTJARNARNESI
25. ÁGÚST
kynningarblað 3FIMMTUDAGUR 21. júlí 2022 UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ