Fréttablaðið - 21.07.2022, Side 22

Fréttablaðið - 21.07.2022, Side 22
Okkur finnst svo skemmtilegt að krakkarnir eru ekki í harðri keppni heldur er vinátta og gleði í fyrir- rúmi. „Fyrir nokkrum árum var sonur minn, þá tólf ára, með örstuttum fyrirvara, beðinn að vera með í fótboltaliði á Unglingalandsmóti UMFÍ. Við ákváðum að slá til. Við höfðum aldrei farið á Unglinga- landsmót, svo það var ekki seinna vænna,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir frá Akranesi, sem er formaður Samtaka ferðaþjónust- unnar. „Fjölskyldan sér ekki eftir því að hafa skellt sér,“ segir hún. „Drengurinn keppti í fótbolta, sundi og stafsetningu og hafði gríðarlega gaman af þessu. Mótið var mjög vel skipulagt, stemningin Hvet allar barnafjölskyldur til að fara á Unglingalandsmót UMFÍ Bjarnheiður Hallsdóttir á Akranesi. „Það var aldrei spurning að fara á Unglingalandsmót hjá okkur, þetta var bara sjálfsagður hlutur, rétt eins og að jólin koma alltaf þá kom alltaf að Unglingalands- móti. Þetta var ekki bara íþrótta- keppnin heldur líka tónleikarnir á kvöldin og stemningin á tjald- svæðinu,“ segir frjálsíþrótta- og afreksstelpan Eva María Baldurs- dóttir. Hún er fædd árið 2003 og býr ásamt fjölskyldu sinni á Selfossi. Eva María var um tíu ára þegar hún byrjaði að æfa frjálsar íþróttir. Hún hefur haldið sig að mestu við þær síðan. Hástökk hefur verið hennar sérgrein og á hún Íslandsmet í f lokki 16–17 ára (1,81 metri). Hún stefnir þó á að slá gamalt met Þórdísar Gísla- dóttur sem er 1,88 metrar. Eva María fór fyrst á Unglinga- landsmót UMFÍ á Sauðárkróki árið 2014 og hefur síðan þá farið árlega á mótin með fjölskyldu sinni. Hún mælir með því að allir skelli sér á Selfoss um versl- unarmannahelgina og taki þátt í Unglingalandsmótinu. „Þetta eru geggjuð mót! Það er svo rosalega gaman að það ættu allir að upplifa það. En svo má líka bara taka rúntinn á Selfoss og fylgj- ast með, hitta fólk og skoða bæinn okkar,“ segir hún að lokum. n Unglingalandsmótin eru geggjuð Eva María Baldursdóttir er frá Selfossi. Það hefur verið mesta til- hlökkunarefni sumarsins í mörg ár hjá okkur að fara á Unglingalandsmót UMFÍ. Mótin eru frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna yfir verslunarmannahelgina. „Við eigum fjögur börn á aldrinum 4–15 ára sem öll hafa alist upp við það að skemmta sér víðs vegar um landið um verslunarmannahelgina í vernduðu umhverfi með enda- lausri afþreyingu og skemmtun. Það sem okkur finnst frábært er að það er svo margt í boði sem ekki er endilega verið að gera um hverja helgi allt sumarið. Þetta er ekki „enn eitt íþróttamótið“ heldur er þetta sannkölluð fjölskylduhátíð,“ segir Jóhanna Íris Ingólfsdóttir frá Höfn í Hornafirði. Beðið eftir að verða 11 ára Tvö eldri börnin í fjölskyldunni æfa fótbolta og körfubolta. Jóhanna Íris segir mestu spennuna vera fyrir því að taka þátt í greinum sem ekki er verið að æfa. Þau hafi þess vegna tekið þátt í mörgu ólíku eins og upplestri, strandblaki, strandhandbolta, kökuskreytingum, pílukasti, bog- fimi og frjálsum íþróttum. „Það hefur fylgt því mikil til- hlökkun að verða 11 ára og mega loksins taka þátt í keppninni. Nú bíður sá sem er 7 ára á kantinum og telur niður í 11 ára afmælið. Yngri strákarnir tveir sitja þó ekki aðgerðalausir því nóg er um að vera fyrir systkini sem ekki hafa náð keppnisaldrinum. Við foreldrarnir skemmtum okkur svo konunglega með börnunum í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur. Við sameinumst líka á skemmtidagskránni á kvöldin þar sem fjöldinn allur af tónlistarfólki kemur fram. Þar er oft mikið stuð,“ heldur Jóhanna Íris áfram. Mælir með tjaldsvæðinu Fjölskyldan hefur bæði verið á tjaldsvæði mótsins og í gistingu annars staðar. Tjaldstæðin eru merkt hverju íþróttahéraði. Aðgangur fyrir alla fjölskylduna að tjaldstæðinu er innifalinn í þátttökugjaldi mótsins og eins öll önnur afþreying. Jóhanna Íris mælir með því að fjölskyldur tjaldi því þar myndast oft skemmtileg stemning. „Það sem einkennir þessa frá- bæru fjölskylduhátíð er gleði. Það er alltaf gaman, alveg sama hvort keppandi er 11 ára eða eldri. Allir geta tekið þátt á sínum forsendum. Okkur finnst svo skemmtilegt að krakkarnir eru ekki í harðri keppni heldur er vinátta og gleði í fyrirrúmi. Krakkarnir hafa þess vegna eignast marga nýja vini eftir mótin,“ segir hún og rifjar upp að í minningunni lifi ekki veðrið eða úrslit í einstökum greinum heldur ánægjan af mótinu. „Það er því aldrei spurning á okkar heimili hvar við munum eyða verslunarmannahelginni. Við mælum svo sannarlega með því að fjölskyldur skelli sér á Unglinga- landsmót UMFÍ og skemmti sér saman í vernduðu umhverfi með gleðina í fararbroddi,“ segir Jóhanna Íris. n Gaman að prófa nýjar greinar Jóhanna Íris á fjögur börn og allir bíða spenntir eftir Unglingalandsmótinu. Það er heilmikil upplifun fyrir alla fjölskylduna að taka þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ. Þar keppa 11–18 ára í íþróttum á daginn og svo getur öll fjölskyldan farið á tónleika á tjaldsvæðinu á kvöldin sem Unglingalandsmótið stendur fyrir. Tónlistarsnillingar koma fram á Unglingalandsmót- inu. Við verðum með Birni, Bríeti, DJ Dóru Júlíu, Friðrik Dór, Hr. Hnetusmjör, Sprite Zero Klan Jón Arnór og Baldur, Jón Jónsson, Siggu Ósk og Stuðlabandið. Allar upplýsingar um Unglingalandsmót UMFÍ eru á ulm.is. n Flott tónlistaratriði Frikki Dór og Bríet eru meðal þeirra tónlistarmanna sem koma fram á mótinu á Sel- fossi. góð og upplifunin frábær fyrir alla fjölskylduna.“ Bjarnheiður segir snilldina við Unglingalandsmót UMFÍ skýrast af því að það er við allra hæfi. Afreksfólk sem ætli sér stóra hluti geti tekið þátt með sama hætti og þau sem ekki leggi stund á hefð- bundnar íþróttir. „Síðan er dagskráin ótrúlega fjölbreytt og skemmtileg, allir geta tekið þátt á eigin forsendum,“ segir hún. „Ég get af heilum hug mælt með landsmóti UMFÍ og hvet því allar barnafjölskyldur til að prófa og eiga saman ógleymanlega helgi.“ n UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS UNGMENNASAMBAND KJALARNESÞINGS ALLT UM HLAUPIÐ Á BODHLAUP.IS BOÐHLAUP BYKO HLUTI AF ÍÞRÓTTAVEISLU UMFÍ OG 100 ÁRA AFMÆLI UMSK KÓPAVOGI 1. SEPTEMBER ALLT UM HLAUPIÐ Á ITHROTTAVEISLA.IS DRULLU HLAUP KRÓNUNNAR HLUTI AF ÍÞRÓTTAVEISLU UMFÍ OG 100 ÁRA AFMÆLI UMSK MOSFELLSBÆ 13. ÁGÚST UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS UNGMENNASAMBAND KJALARNESÞINGS 4 kynningarblað 21. júlí 2022 FIMMTUDAGURUNGLINGALANDSMÓT UMFÍ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.