Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 24

Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 24
Lady Gaga skipti reglulega um alklæðnað en hver og einn þeirra sagði sína sögu. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun @frettabladid.is Lady Gaga vakti að venju mikla athygli fyrir klæðnað sinn á tónleikum í Düssel- dorf á sunnudagskvöldið. Hún var í fötum eftir bæði þekkta hátískurisa og upp- rennandi hönnuði. Biðin eftir The Chromatica Ball, tónleikaferð Lady Gaga, er loks á enda. Tónlistarkonan þurfti að fresta tónleikaferðinni tvisvar en upprunalega átti hún að vera sumarið 2020. Aðdáendur söng- konunnar hafa því beðið óþreyju- fullir eftir tónleikunum í tvö ár, en tónleikaferðin er til að fylgja eftir hinni geysivinsælu plötu Chroma- tica, sem kom út í maí árið 2020. Lady Gaga hóf tónleikaferðina í Düsseldorf í Þýskalandi á sunnu- daginn en stefnan er að halda tónleika í 18 borgum. Ekkert er til sparað á tónleikunum. Sviðið er hannað af tískustjóranum Nicola Formichetti og stílistunum Söndru Amador og Tom Erebout, en tón- leikagestir í Spiel-höllinni í Düssel- dorf höfðu á orði að sviðið hefði verið stórkostlegt. Það kemur eflaust fáum á óvart, en klæðnaður söngkonunnar á sviðinu á sunnudagskvöldið er þegar farinn að valda miklu umtali vegna djarfrar og margslunginnar hönnunar. Lady Gaga skipti reglu- lega um alklæðnað en hver og einn þeirra sagði sína sögu og endur- speglaði framúrstefnulegt cyber- pönk sem Lady Gaga hefur verið að þróa síðustu ár. Leður og rautt siffon Lady Gaga klæddist þessum púff- erma leðurfatn- aði frá haustlínu Gareth Pugh frá 2018 þegar hún söng Poker Face. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Lady Gaga skartar gullkjól frá Alexander McQueen. Svartur leður- klæðnaður var áberandi á tón- leikunum. Hér er Lady Gaga í fötum frá Vex Latex, fatamerki frá Chigago. Sérstaklega verðmæt föt Í uppafsstefinu er sviðsmyndin innblásin af grimmilegu lands- lagi og söngkonan skartaði fötum eftir enska hönnuðinn Gareth Pugh sem er þekktur fyrir dökka, framúrstefnulega hönnun. Alexander McQueen hannaði mótorhjólajakka og kristalsbelti sem Lady Gaga skartaði á tónleik- unum og einnig var hún í hátísku- klæðnaði eftir Christian Lacroix frá haustinu 2007 og 2009. Mikið af klæðnaði Lady Gaga á sviðinu var hannað af Versace og heimildir segja að fötin séu sérstaklega verð- mæt þar sem þau voru sérhönnuð á hana. Sum þeirra eru vöktuð allan sólarhringinn svo þau verði ekki fyrir skemmdum. En Lady Gaga klæddist ekki bara fötum eftir þekkta hönnuði. Hún var líka klædd fötum úr vorlínu Bradley Sharpe sem er upprenn- andi hönnuður í London. Systir Lady Gaga, Natali Germanotta, sem er með tískumerkið Topi Studio, hannaði á hana rauð siffon- föt sem hún var í þegar hún söng lagið Alice. Það er því greinilegt að fleiri í fjölskyldunni hafa listræna hæfileika. Lofuð af gagnrýnendum The Chromatica Ball er sjötta tónleikaferðin sem Lady Gaga fer í undir eigin nafni. En Chroma- tica er sjötta plata söngkonunnar í fullri lengd. Platan hefur hlotið mikið lof meðal gagnrýnenda sem og almennings. Gagnrýnendur hafa meðal annars hrósað Lady Gaga fyrir að prófa ólíka stíla í tón- listinni og fyrir að gefa henni til- finningalegt vægi, þar sem platan er mjög persónuleg. Næstu tónleikar í þessari tón- leikaferð Lady Gaga eru í kvöld í Stokkhólmi og því næst fer hún til Parísar og þaðan til Arnheim í Hollandi. Fyrir þau sem hafa áhuga á að sjá þessa miklu stjörnu á tónleikum er enn möguleiki að krækja sér í miða á einhverja af tónleikunum, en síðustu tónleik- arnir verða í Miami í september næstkomandi. n 6 kynningarblað A L LT 21. júlí 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.