Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 34

Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 34
Það er draumur hvers Íslendings að heim- sækja þessar slóðir. Þetta er annar heimur. Svavar Pétur EysteinssonÁ farsælum ferli keppti Schumacher fyrir Jor- dan, Benetton, Ferrari og Mercedes. Prins póló og Moses High­ tower leiða saman hesta sína á tónleikum í Gamla bíói á föstudag. Um verslunar­ mannahelgina skella með­ limir sér til Gimli í Kanada og spila fyrir Vestur­Íslendinga. ninarichter@frettabladid.is Prins póló er verkefni hins fjölhæfa Svavars Péturs Eysteinssonar, sem hefur getið sér gott orð fyrir tón­ list og myndlist. Flestir Íslendingar þekkja sálarsveitina Moses High­ tower sem hefur framleitt hvern dægurlagasmellinn á fætur öðrum frá stofnun sveitarinnar árið 2007. „Við spiluðum saman á Airwaves 2017, þá vorum við plataðir til að spila og síðan höfum við átt í mjög dulúðlegu samstarfi, ekkert mjög fókuseruðu,“ segir Svavar Pétur íbygginn, aðspurður um tildrög samstarfsins. Andri Ólafsson, for­ söngvari Moses Hightower, tekur undir það. „Já, því var haldið uppi af væntingum frekar en hittingum.“ Fjalla um hversdagslegt ógeð Samstarf verkefnanna tveggja hefur þannig staðið yfir í nokkur ár. „Við höfum aðeins verið að hittast og aðeins verið að semja lög,“ segir Svavar Pétur. „Við gáfum út eitt lag á dögunum, það lag heitir Maðkur í mysunni og fjallar um það sem foreldrar lenda í svona á síðkvöldi. Maður ætlar að taka rólegt kvöld og svona hafa það náðugt og þá kemur tölvupóstur frá kennaranum um að það hafi fundist lús í bekknum, eða jafnvel njálgur. Þá þarf að fara að vekja allt slotið og jafnvel kemba allt,“ segir hann. „Við fjölluðum svo­ lítið um þetta í síðasta laginu sem við gáfum út og ætlum að halda áfram að fjalla um þetta hversdags­ lega ógeð.“ Þarf alltaf að halda þessi jól Svavar Pétur segir að rekstrar aðilar Hljómahallarinnar hafi spurt hann um árið hvort Prinsinn vildi koma og halda tónleika. „Mér fannst ótækt að gera það án þess að hafa þá félaga með, þannig að við héld­ um tónleika í Hljómahöll í maí sem gengu glimrandi vel. Þarna bak­ sviðs gírast maður allur upp og fer í stuð: Gerum þetta aftur, það þarf að endurtaka þetta allt!“ Hann segir endurtekninguna ríkjandi. „Það er alltaf þessi hug­ mynd um að ef maður gerir eitt­ hvað, þá geri maður það alltaf aftur. Þú heldur ekki bara ein jól og svo búið. Þarft alltaf að vera haldandi þessi jól.“ Andri kinkar kolli. „Það var einhugur um að telja í sem fyrst aftur.“ Þá varð úr að skipuleggja tónleika í Gamla bíó sem fram fara á föstudag. „Miðasala er búin að fara mjög vel af stað og það er nánast að verða uppselt.“ Væri verra með leiðinlegu bandi Aðspurðir hvort Prins póló og Moses Hightower deili mengi hlust­ enda, svarar Svavar Pétur að líklega séu sömu aðdáendur á ferðinni. „Ég held að við séum svolítið heppnir með það.“ Andri svarar og segir að skörunin sé mjög mikil. „Og sú skörun er jákvæð. Ég dýrka Moses sem band og það er svo heppilegt að áheyrendahópur Prinsins er sama sinnis,“ segir Svavar Pétur. „Það væri leiðinlegt ef ég væri að fíla einhverja hundleiðinlega hljómsveit og væri í bullandi samstarfi með henni.“ Andri segir Móses­meðlimi hafa kunnað lög Prinsins, meira og minna, þegar samstarfið hófst. „Við erum búnir að vera að syngja með þessum lögum í áratugi.“ Prins Póló í Móses-búning Tónlist Prins póló má lýsa sem frekar hráu alþýðupopprokki á meðan Moses Hightower er þekkt fyrir flóknar djassaðar og útpældar útsetningar. Þó deila sveitirnar fágætum kosti sem kristallast í hnyttnum og vönduðum texta­ smíðum á íslensku. En hvernig lýsa meðlimir afurðinni úr samstarfinu? „Þeir taka sín lög af því að ég hef engu við þeirra lög að bæta. Eða mjög litlu,“ segir Svavar Pétur sposkur. „En svo koma þeir og bæta alveg helling við mín lög og setja þau í sinn búning,“ segir hann. „Ég fæ mest út úr þessu samstarfi.“ Andri beinir orðum sínum til Svavars Péturs. „Prins póló kata­ lógurinn ber þess ánægjuleg merki að vera: Þú í þínum tíma að gera hlutina eins og nákvæmlega bara þér sýnist,“ segir hann, en tekur fram að hlutunum sé öðruvísi farið í fimm manna hljómsveit. „En á þessum vettvangi eru fimm aðrir einstaklingar sem útgangspunkt­ urinn mótast af. Allir finna sér eitt­ hvað að gera sem er stundum eftir forskrift Prinsins og stundum ekki.“ Andri segir að á upptökum Prinsins sé unnið með einfaldleikann. „Við Móses­drengirnir reynum að gera það.“ Svavar Pétur svarar: „Þeir f lækja hlutina alveg svakalega en ég dýrka hvað þeim tekst að halda einfald­ leikanum, en samt f lækja hlutina mjög mikið.“ Kominn tími til að dansa Andri segir Prins póló­samstarfið draga Móses Hightower sjálfkrafa í meiri rokk­átt heldur en þeir séu vanir að stefna í sjálfir. „Ég held að þetta verði skemmti­ legir tónleikar upp á það að vera standandi,“ segir Svavar Pétur um tónleikana í Gamla bíói á föstudag. „Fólk getur hreyft sig og dansað með og ég held að það sé alveg kominn tími á að standa upp og dilla mjöðmunum.“ Koma fram á Íslendingadeginum Aðspurðir um frekara tónleikahald og plön fyrir verslunarmannahelg­ ina setja félagarnir upp leyndar­ dómsfullan svip. Svo segjast þeir vera með skúbb. „Prins póló tekur með sér tvo meðlimi Móses Hightower til Gimli í Manitoba og kemur þar fram á Íslendingadeginum,“ segir Andri. „Það verður verslunarmannahelgin hjá okkur.“ Svavar bætir við: „Það er draumur hvers Íslendings að heimsækja þessar slóðir. Þetta er annar heimur. Ég er sjúklega spenntur að upplifa þetta á eigin skinni og finna hvernig fólkið er þarna úti. Þessir afkom­ endur okkar, ef svo má segja.“ n Prins og Móses úr Gamla bíói til Gimli Andri Ólafsson segir meðlimi sálarsveitar- innar Moses Hightower hafa kunnað lög Prins póló þegar sam- starfið hófst. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR odduraevar@frettabladid.is Hvar er hitabylgjan okkar? Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur „Þær eru fátíðar og koma varla fyrir,“ segir Einar, en hitabylgja hefur leikið Evrópu misgrátt undanfarna daga þar sem hitinn hefur meðal annars farið upp í 30 stig hjá frændum okkar í Noregi. Á Íslandi hefur hitinn hins vegar verið pikkfastur í kringum 10 gráður. „Í fyrsta lagi vegna þess hvað við liggjum norðarlega. En aðallega þó vegna þess að við erum eyja úti í miðju hafi sem temprar allar svona hitasveiflur,“ segir Einar um málið. Spurður út í norska frændur okkar sem fá töluvert meiri hita en við, segir Einar: „Jafnvel norðar en á Íslandi! Þá er það vegna þess að loftið kemst bakdyramegin að þeim af landi og er kannski upp- runnið einhvers staðar í Rússlandi eða sunnan megin í álfunni og fer aldrei yfir stórt og mikið úthaf. En að íbúar í Norður-Noregi fái hita- bylgju af hafi er nánast óhugsandi.“ Einar segir hitabylgjur á Íslandi ekki óhugsandi með hitastigi upp á 28–30 gráður. „En slíkar koma kannski á tíu til tuttugu ára fresti, svona ef maður horfir heilt yfir síðustu hundrað árin.“ Síðast hafi slíkt gerst í júlí 2008 þegar það mældust 27,9 gráður á Þingvöllum. Einar segist skilja söknuð Íslendinga eftir heitara loftslagi. „En veðrið það sem af hefur verið sumri hefur ekki verið leiðinlegt, við höfum að mestu leyti sloppið við stórrigningar og hitinn verið í tæpu meðallagi,“ segir Einar. „Svo taka sumir það nú fram að það sé okkar gæfa að þurfa ekki að búa við svona hitasvækju en auð- vitað eru flestir á því að það mætti vera aðeins hærra, að við sæjum kannski oftar 20 eða 25 stiga hita, sem gerir engum neitt.“ n Atlantshafið eyðileggur enn eitt sumarið n Sérfræðingurinn Þó að Íslendingar þrái hærra hitastig myndu Bretar eflaust þiggja 10 gráður. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY ninarichter@frettabladid.is Corinna Schumacher, eiginkona fyrrverandi Formúlu 1­kappans Michael Schumacher, og dóttir þeirra, Gina Schumacher, tóku við Norðurrínar­Vestfalíu heiðursverð­ launum fyrir hans hönd á tilfinn­ ingaþrunginni stund í Motorworld­ höllinni í Köln í gær. Michael Schumacher er fyrr­ verandi Formúlu 1­meistari og lík­ lega frægasti ökuþór heims. Hann er sömuleiðis meðal frægustu íþrótta­ manna Þýskalands síðustu áratugi. Á farsælum ferli keppti hann fyrir Jordan, Benetton, Ferrari og Merce­ des. Schumacher lagði ökuhanskana á hilluna árið 2012 og hélt þá heims­ metum, bæði einstaklingsmetum og sameiginlegum. Í desember 2013 lenti Schumac­ her í alvarlegu skíðaslysi. Hann var í lyfjadái í sex mánuði, þar til í júní 2014. Hann dvaldi í endurhæfingu á sjúkrahúsi þar til í september 2014. Fjölskylda Schumachers hefur lítið gefið upp um líðan öku­ meistarans en fyrir liggur að hann hafi hlotið alvarlegan heilaskaða í slysinu. Fyrir slysið sinnti Schumacher mannúðarstarfi og var meðal ann­ ars góðgerðasendiherra UNESCO. Verðleikareglan í Norðurrín­ Vestfalíu var stofnuð 11. mars 1986. Heiðursorðan er veitt borgurum af svæðinu fyrir framúrskarandi árangur á sínu sviði. Viðurkenn­ ingin er takmörkuð við 2.500 núlif­ andi einstaklinga. n Michael Schumacher heiðraður í Köln Corinna og Gina Schumacher tóku við verðlaununum í gær. MYND/GETTY 22 Lífið 21. júlí 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 21. júlí 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.