Fréttablaðið - 26.07.2022, Blaðsíða 1
Ég vænti þess að málin
gegn mínum umbjóð-
anda verði nú felld
niður.
Almar Möller, lögmaður
1 5 0 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 2 6 . J Ú L Í 2 0 2 2
VHS-spólur að
verða dýrgripir
Ísabella segist
elska örið sitt
Lífið ➤ 28 Lífið ➤ 30
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur
Škoda Kodiaq
Vinsæli ferðafélaginn!
Verð frá 7.590.000 kr. Eigum nokkra lausa bíla á lager!
Fjórhjóladrifinn, mjög vel útbúinn með 2.5 tonna dráttargetu
Uppsteypu nýbyggingar þinghússins á horni Vonarstrætis og Tjarnargötu er að ljúka. Fimmta hæðin er að taka á
sig mynd. Þar verður nýtt mötuneyti þingsins ásamt fundarsölum. Alþingi fær húsið afhent um mitt næsta ár og er
áætlað að starfsemi verði komin þar á fullt er þing kemur saman þá um haustið. Skrifstofur þingmanna og fundar
aðstaða þingnefnda verður í nýbyggingunni sem leysir þá af hólmi leiguhúsnæði í nálægum húsum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Matsmenn hafa skilað af sér
rannsókn vegna gruns um
stórfelld og glæpsamleg brot
tveggja lækna. Lögmaður
annars læknisins telur að
málin verði felld niður.
bth@frettabladid.is
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA Lögmaður
læknis, sem grunaður var um að
hafa veitt sjúklingum tilefnislausa
lífslokameðferð á Suðurnesjum,
væntir þess að rannsókn verði felld
niður. Störf tveggja lækna á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja eru til
rannsóknar.
Dómkvaddir matsmenn hafa
skilað af sér matsgerð til Héraðs-
dóms Reykjaness. Þeir rannsök-
uðu meðferðir á sjúklingum eftir
að Lögreglan á Suðurnesjum fór
fram á matsgerðir vegna ásakana
um stórfelld brot tveggja lækna
og áttu að svara spurningum er
snúa að læknisfræðilegri meðferð
sjúklinganna.
Aðstandendur látinna einstakl-
inga töldu að læknarnir kynnu að
vera sekir um tilefnislausa lífsloka-
meðferð.
Rannsókn málsins er ólokið
en hinir matsmennirnir telja að
skráning læknismeðferða á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja í tölvu-
kerfum hafi verið með öðrum hætti
en á öðrum sjúkrastofnunum. Ekki
hafi alltaf verið samræmi milli
skráninga í tölvukerfum og þeirra
meðferða sem í raun hafi verið
veittar.
„Ég vænti þess að málin gegn
mínum umbjóðanda verði nú felld
niður í kjölfar niðurstöðu mats-
mannanna og að rannsókn verði
hætt,“ segir Almar Möller, lögmað-
ur annars læknisins, og staðfestir
að matsgerðum hafi verið skilað.
Um nokkra einstaklinga var að
ræða og málin bar að með ýmsum
hætti. Eftir að grunur kviknaði
um brot heyrðu ættingjar annarra
látinna af því að eitthvað óeðlilegt
kynni að vera í gangi. Að minnsta
kosti ein kæra barst og fleiri ábend-
ingar fylgdu. Skylt er að skrá mál
og rannsaka ef grunur kviknar um
óeðlilegt dauðsfall. Hlutverk dóm-
kvöddu matsmannanna var ekki að
úrskurða um sekt eða sýknu.
Embætti landlæknis taldi í áliti
18. febrúar síðastliðinn að þjónustu
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
við sjúkling, sem lést á sjúkradeild-
inni árið 2019, hefði verið verulega
ábótavant. Meðferðin hefði verið
ófagleg og ekki samræmst viður-
kenndu verklagi. Þar var um að ræða
áttræða konu sem sagt var að væri
ekki lífshættulega veik en hefði
fengið líknandi meðferð.
Læknirinn var færður um set og
starfaði hjá Landspítalanum áður
en hann fór í leyfi. ■
Ný gögn talin
bæta réttarstöðu
grunaðra lækna
F E R ÐA ÞJ Ó N U S TA „Vörumerk ið
Ísland er í rauninni ónýtt,“ segir Þrá-
inn Lárusson, hóteleigandi og einn
umsvifamesti eigandi fyrirtækja í
ferðaþjónustu á Austurlandi.
Þráinn vill að hið opinbera breyti
um stefnu. Ríkisfé sé illa varið með
of einhliða markaðssetningu á svæði
nálægt höfuðborginni.
„Feiti unginn situr á Suðurlandinu
og afétur okkur hin,“ segir Þráinn.
„Það er margt til í þessu hjá Þráni,“
segir Skarphéðin Berg Steinarsson
ferðamálastjóri. SJÁ SÍÐU 4
Hóteleigandi segir Suðurland afætu