Fréttablaðið - 26.07.2022, Side 4
Það fæðist enginn
erlendur ferðamaður
með þá hugsun að
skoða bara Gullfoss og
Geysi,.
Þráinn Lárusson,
eigandi fyrir-
tækja í ferða-
þjónustu
JEEP.IS • ISBAND.IS
PLUG-IN HYBRID
FÆRÐIN ER
ALLTAF GÓÐ
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Leyfðu Jeep® Wrangler Rubicon
Plug-In Hybrid að spreyta sig á krefjandi
slóðum. Leiðin verður rafmögnuð.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ LAUGARDAGA
Einn umsvifamesti eigandi
fyrirtækja í ferðaþjónustu
á Austurlandi auglýsir eftir
brýnum breytingum í stefnu
hins opinbera. Vörumerkið
Ísland sé í raun ónýtt.
bth@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Ríkisfé er illa varið
með of einhliða markaðssetningu
á svæði nálægt höfuðborginni. Það
leiðir til þess að aðrir landshlutar
stríða annaðhvort við ládeyðu eða
þá að allt húsnæði úti á landi bókast
upp og svæði verða uppseld nokkrar
vikur á ári. Þetta segir Þráinn Lárus-
son, eigandi fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu.
Þráinn er með 140-150 manns
á launaskrá nú um stundir. Hann
rekur ýmis veitingahús og hótel og
staðfestir að Austurland sé uppselt
sem stendur. Hins vegar sé sá galli
á gjöf Njarðar að innan nokkurra
vikna verði mörgum ferðaþjón-
ustufyrirtækjum lokað, enda enn
eftir litlu að slægjast utan háannar.
Dreifa þurfi ferðamönnum miklu
betur um landið á ársgrunni og
kynna landshluta fjær höfuðborgar-
svæðinu betur, skerpa á sérstöðu
hvers fjórðungs.
„Það fæðist enginn erlendur ferða-
maður með þá hugsun að skoða bara
Gullfoss og Geysi,“ segir Þráinn. „Það
er búið að fara með hundruð millj-
óna í markaðssetningu á Reykjavík
og á Suðurlandi með opinberu fé
og eins af hálfu stærra fyrirtækja,“
bætir hann við. „Á meðan fáum við
hér fyrir austan kannski fjárhæð
sem nemur kostnaði við eina aug-
lýsingu á einni síðu í dagblaði.“
Þráinn segir að enginn einn geti
markaðssett heilu landshlutana.
„Feiti unginn situr á Suðurland-
inu og afétur okkur hin. Nú er þetta
ástand að koma okkur í koll,“ segir
Þráinn og vísar til þess að ýmist sé í
ökkla eða eyra hvað varði annríkið
fyrir austan.
„Vörumerkið Ísland er í rauninni
ónýtt,“ segir Þráinn þar sem Ísland
í dag sé aðeins markaðssett sem
Reykjavík og nágrenni og þar sé að
hluta hinu opinbera um að kenna.
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri segir ástæðu til að
hlusta á gagnrýni Þráins.
„Það er margt til í þessu hjá
Þráni,“ segir Skarphéðinn.
Skar phéðinn telur rey ndar
ofmælt að tala um Ísland sem ónýtt
vörumerki. Sannarlega megi þó
gera betur, leggja meiri áherslu er
kemur að opinberu fé á markaðs-
setningu á fjölbreytileika ólíkra
svæða og landshluta. „Austurland er
vitaskuld á margan hátt ólíkt þeim
svæðum sem eru nálægt höfuð-
borgarsvæðinu,“ segir Skarphéðinn.
Kannanir sýna að langf lestir
ferðamenn koma til Íslands nátt-
úrunnar vegna. Oft er rætt um
mikilvægi þess að opna fleiri gáttir
í gegnum Akureyri og Egilsstaði.
Ferðamálastjóri segir jákvæð teikn
á lofti hvað varðar millilandaflug
frá Akureyri en um langhlaup sé að
ræða, mikið markaðsstarf og þolin-
mæði.
„Ferðaþjónustufyrirtæki á þess-
um svæðum þurfa að aðlaga sig. Það
hefur verið bent á skort á gistingu
fyrir norðan en fólk er núna greini-
lega að bregðast við,“ segir Skarp-
héðinn ferðamálastjóri. n
Segir Suðurlandið feitan unga sem
aféti landsvæðin fjær höfuðborginni
Hótel Hall-
ormsstaður
er dæmi um
hótel þar sem
hvert herbergi
er uppbókað
sem stendur.
Hótelinu verður
lokað í október,
því þá eru flestir
ferðamenn
horfnir.
MYNDIR/BJÖRN
ÞORLÁKSSON.
olafur@frettabladid.is
NEYTENDUR Vísitala neysluverðs
fyrir júlí hækkaði mun meira en
greiningaraðilar bjuggust við og er
ársverðbólgan nú 9,9 prósent sam-
kvæmt mælingum Hagstofunnar.
Virðist ársverðbólgan munu rjúfa
tveggja tölu múrinn í ágúst og tals-
verðar líkur eru á að hún fari yfir 12
prósent fyrir árslok og byrji jafnvel
ekki að lækka á ný fyrr en í febrúar.
Kjarasamningar á almennum
vinnumarkaði eru lausir í haust og
ljóst að verkalýðshreyfingin mun
leggja ríka áherslu á kjarabætur til
að vega upp á móti mikilli verð-
bólgu og háum vöxtum. Þá nærir
verðbólgan sjálfa sig meðal annars
vegna þess að stór hluti kostnaðar
fyrirtækja liggur í verðtryggðum
húsaleigusamningum og launum.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka, telur líklegt að
verðbólga mælist rúm 10 prósent
í næsta mánuði. „Okkur sýnist að
verðbólgutakturinn verði svo áfram
rétt um 10 prósent út árið að því
gefnu að það fari heldur að hægja á
hækkun íbúðarverðs og innflutn-
ingsverð verði tiltölulega stöðugt.
Ef launahækkanir verða hóf-
legar, eða að minnsta kosti í takti
við launaþróun undanfarinn ára-
tug eða svo, eru góðar líkur á að
verðbólgutakturinn gefi eftir þegar
lengra líður á komandi vetur, jafn-
vægi á húsnæðismarkaði batnar og
innflutt verðbólga hjaðnar. Það má
hins vegar ekki mikið út af bregða
svo verðbólga verði ekki þrálátari,“
segir Jón Bjarki. n
Líkur á hækkandi verðbólgu út árið hérlendis
Óvíst er hvort verðbólga byrjar að
hjaðna á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
erlamaria@frettabladid.is
SKÓLAMÁL Aldrei hafa f leiri nem-
endur verið í skyldunámi á Íslandi
en haustið 2021 þegar 46.859 nem-
endur voru skráðir í grunnskóla.
Nemendum fjölgaði um 171 frá
hausti 2020, eða um 0,4 prósent.
Samkvæmt Hagstofu Íslands stafar
fjölgunin af f lutningi barnafjöl-
skyldna til landsins.
Þá hefur nemendum án erlends
bakgrunns fækkað um rúmlega tíu
prósent frá 2006, úr 37.900 í tæplega
34.700. Á sama tíma hefur nemend-
um með erlendan bakgrunn fjölgað,
mest innflytjendum af annarri kyn-
slóð. Þeim fjölgaði úr 230 árið 2006
í rúmlega 2.600 árið 2021. Þá hefur
innflytjendum fjölgað á sama tíma,
úr tæplega eitt þúsund í nær 2.400. n
Aldrei fleiri í
grunnskólunum
Nóg er um að vera í grunnskólunum.
erlamaria@frettabladid.is
UTANRÍKISMÁL Íslensk stjórnvöld
munu veita áttatíu milljónum
króna í sérstakan sjóð Sameinuðu
þjóðanna fyrir Afganistan til þess
að styðja við þróunarverkefni í
landinu, samhliða mannúðarað-
stoð. Sameinuðu þjóðirnar segja
mikla neyð ríkja í landinu og áætla
að rúmlega helmingur þjóðarinnar
þurfi á alþjóðlegri mannúðaraðstoð
að halda, þar sem félagslegir innvið-
ir séu að hruni komnir og aðgengi
að grunnþjónustu sé afar slæmt. Þá
reið mannskæður jarðskjálfti yfir
landið í síðasta mánuði.
„Algjört neyðarástand ríkir í
Afganistan og þörfin á bæði mann-
úðar- og þróunaraðstoð er ákaf-
lega brýn. Því er afar mikilvægt að
Ísland leggi sitt af mörkum til þess
að bregðast við þeim hörmungum
sem þarna hafa átt sér stað, bæði af
völdum náttúru og manna,“ segir
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir utanríkisráðherra. n
Ísland veitir styrk
til Afganistans
4 Fréttir 26. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ