Fréttablaðið - 26.07.2022, Qupperneq 12
Það er samasemmerki
á milli þess að því fleiri
leikmenn sem Ísland á
í fimm sterkustu deild-
unum að þeim mun
betra verður landsliðið
okkar.
Á síðasta
ári voru
fimm
íslenskir
leikmenn
sem léku
í bestu
deildum
Evrópu
en í ár
stefnir í að
það verði
aðeins
einn.
12 Íþróttir 26. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGUR
knattspyrnumála hjá KSÍ, um stöð-
una. Íslenska landsliðið í dag er með
marga unga leikmenn sem gætu á
næstu árum tekið skrefið í þessar
sterkari deildir.
Skiptir máli fyrir Ísland
Eftir því sem fleiri leikmenn spila
í þessum deildum er ljóst að karla-
landsliðið verður betra en miklar
breytingar hafa orðið á hópi liðsins
síðustu 18 mánuðina. „Það er ekkert
leyndarmál, það er samasemmerki
á milli þess að því f leiri leikmenn
sem Ísland á í fimm sterkustu deild-
unum að þeim mun betra verður
landsliðið okkar. Leikmenn í þess-
um deildum spila á hærra tempói
og eru í besta fótboltanum í Evrópu,
sem er besti fótbolti í heimi. Við sem
þjálfarateymi sjáum alveg mun á því
þegar við skoðum marga af okkar
andstæðingum, ég get nefnt Norð-
ur-Makedóníu, Rúmeníu, Albaníu
og Finnland sem dæmi. Það eru lið
sem eru ekki með stærstu stjörnur
fótboltans en eru með marga leik-
menn í þessum topp fimm deildum
og það hjálpar.“
Þrátt fyrir að útlitið kunni að
vera svart þessa stundina er Arnar
vongóður um að á næstu árum stígi
ungir og efnilegir leikmenn Íslands
skrefið í þessar bestu deildir. „Við
viljum auðvitað hafa sem f lesta í
þessum deildum og ég hef reyndar
fulla trú á því að það muni breytast
mjög fljótt. Við eigum marga mjög
efnilega leikmenn sem hafa burði
til þess að stíga skrefið í þessar
deildir á næstu árum. Andri Lucas
er að koma sér á mjög góðan stað
í Svíþjóð, þar fær hann að spila og
getur þróað sig sem leikmaður.
Hákon Arnar og Ísak Bergmann eru
á frábærum stað í Kaupmannahöfn.
Markverðirnir okkar eru á mjög
góðum stað, þessir leikmenn eru á
stað til að sýna sig og sanna að þeir
geti tekið skrefið í sterkari deildir.
Þetta er ekki ólíkt því sem við sáum
með Alfreð Finnbogason, Jóhann
Berg og Sverri Inga sem voru að spila
í Belgíu og Hollandi á þessum aldri
og tóku svo skrefið áfram.“
Þórir fljótur að aðlagast
Þórir Jóhann var fyrir rúmu ári
síðan leikmaður FH í efstu deild á
Íslandi, síðan þá hefur hann komið
sér inn í liðið hjá Lecce og er algjör
lykilmaður í íslenska landsliðinu.
Þórir hefur verið jafnbesti leik-
maður liðsins undanfarið ár. „Þórir
er einn af þeim sem er ómögulegt
að segja hvað gera. Þú sérð hæfi-
leika í leikmönnum en sumir leik-
ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 26. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGUR
Að öllu óbreyttu mun aðeins
einn íslenskur leikmaður
spila í fimm bestu deildum
Evrópu á komandi tímabili.
Er þetta nokkur breyting frá
síðustu árum þar sem Ísland
hefur átt fjölda leikmanna í
þessum deildum og það hefur
haldist í hendur við góðan
árangur íslenska landsliðsins.
hoddi@frettabladid.is.is
FÓTBOLTI Frá síðustu leiktíð eru
Jóhann Berg Guðmundsson, Alfreð
Finnbogason, Albert Guðmundsson
og Arnór Sigurðsson allir farnir úr
þessum fimm bestu deildum Evr-
ópu en Þórir Jóhann Helgason, leik-
maður Lecce á Ítalíu, er kominn upp
í efstu deild þar í landi. Þegar talað
er um fimm bestu deildir í Evrópu
er átt við England, Þýskaland, Ítal-
íu, Spán og Frakkland. Rúnar Alex
Rúnarsson er leikmaður Arsenal á
Englandi en allar líkur eru á því að
hann fari á lán eða verða í litlu sem
engu hlutverki. Mikael Egill Ellerts-
son er leikmaður Spezia á Ítalíu en
er langt frá því að fá tækifæri í aðal-
liði félagsins.
„Við vitum að það helst í hendur
þegar leikmaður er kominn á sinn
besta stað á sínum ferli að þá spilar
hann iðulega í sterkari deild, það er
yfirleitt ekki þegar menn eru mjög
ungir og þegar leikmenn fara svo
að eldast taka þeir gjarnan skrefið
til baka,“ segir Arnar Þór Viðars-
son, landsliðsþjálfari og yfirmaður
Íslendingar
ekki áberandi á
stærsta sviðinu
Þórir Jóhann
Helgason er
eini íslenski
leikmaðurinn
sem verður í
stóru hlutverki
í fimm stærstu
deildum í
Evrópu á þessu
tímabili.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
menn þurfa tíma til að aðlagast
nýjum aðstæðum á meðan aðrir
mæta á svæðið og taka stór skref
nokkuð auðveldlega. Þórir er einn
af þeim, hann kom inn í U21-liðið
og var ekkert alltaf í byrjunarliðinu
til að byrja með en festi sig í sessi.
Hann tekur skrefið frá FH í næst-
efstu deild á Ítalíu og stendur sig vel.
Hann vinnur sig inn í A-landsliðið
og á síðasta ári hefur hann spilað
stórt hlutverk. Hann tekur þessi
skref nokkuð auðveldlega. Hákon
Arnar og Ísak eru að gera það sama
í Danmörku, Elías Rafn markvörður
er í Danmörku líka. Svo er hægt að
færa þetta dæmi yfir á kvenna-
landsliðið, Karólína Lea sem var að
taka þátt í sínu fyrsta Evrópumóti
tekur það með trompi.“
Nokkrir í stórum klúbbum
Arnar Þór segir að þrátt fyrir að
Ísland eigi ekki marga leikmenn í
bestu deildunum séu margir leik-
menn á góðum stað.
„Við eigum Rúnar Alex, sem er í
risastórum klúbbi, Mikael Egill er
á góðum stað. Svo er annað sem við
getum ekki skautað fram hjá, það
er líka gott að vera í aðeins minni
deild og vera í mjög stórum klúbbi.
Sverrir er hjá PAOK í Grikklandi
sem er mjög stór klúbbur, Hörður
Björgvin hjá Panathinaikos, sem
er mjög stór klúbbur. FCK og Midt-
jylland eru stórir klúbbar í Dan-
mörku. Það er líka stórt að vera í
svona félögum og taka þátt í Evr-
ópukeppnum.“
Íslenska landsliðið kemur aftur
saman í september og vonast Arnar
Þór eftir því að leikmenn liðsins
verði á góðum stað þá. „Við tókum
okkur frí eftir júnígluggann sem
var langur og strangur. Núna erum
við komnir á fullt að skoða leik-
mennina okkar, belgíska deildin
fór af stað um helgina sem dæmi og
þessar deildir eru að rúlla af stað.
Við erum spenntir því að mínu mati
eru allir okkar leikmenn komnir á
góðan stað, Jón Dagur fékk flottan
klúbb í Belgíu, Andri Fannar fór til
Hollands og svo fóru Arnór Sigurðs-
son og Andri Lucas til Svíþjóðar.
Það eru mjög fáir sem maður getur
nefnt sem eru í vandræðum hjá sínu
félagi. Við erum að fylgjast með því
hvernig menn koma til leiks eftir
undirbúningstímabilið. Svo von-
andi förum við í úrslitaleik í Þjóða-
deildinni í haust með liðið á góðum
stað.“ n
Arnar Þór
Viðarsson,
landsliðsþjálfari
Íslands, er nokk-
uð bjartsýnn
á að nokkrir
leikmenn muni
á næstu árum
stíga skrefið
inn í sterkustu
deildirnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK