Skessuhorn


Skessuhorn - 18.08.2021, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 18.08.2021, Blaðsíða 12
MiðVikudaGur 18. ÁGúSt 202112 Menntamálaráðuneytið hefur gef- ið út leiðbeinandi reglur um sótt- varnir í skólum í haust. Núgild- andi reglugerð heilbrigðisráðherra nr. 878/2021 um takmörkun á sam- komum gildir til og með 27. ágúst næstkomandi og tekur nú einnig til skólastarfs. Með hliðsjón af henni veitir mennta- og menningarmála- ráðuneyti nánari leiðbeiningar til skóla um áhrif gildandi sóttvarnar- áðstafana á mismunandi skólastig- um. Markmið sóttvarnaráðstafana í skólum eru sem fyrr að stuðla að ör- yggi og velferð nemenda, kennara og annars starfsfólks en jafnframt að tryggja, eftir því sem kostur er, kraftmikið og fjölbreytt skólastarf á öllum skólastigum. Viðbragðsáætlanir vegna smita eru til staðar í öllum skólum. rekstraraðilar skóla og skólastjór- nendur geta gripið til frekari sótt- varnaráðstafana sem mæta að- stæðum á hverjum stað, s.s. frekari hólfaskiptinga í starfsemi og auk- innar grímunotkunar, m.a. til að vernda viðkvæma hópa, draga úr smithættu og auðvelda rakningu, svo fremi sem það bitni ekki á þjón- ustu við nemendur. Áhersla skal vera á sem eðlilegast skólastarf eins og kostur er á öllum skólastigum. reglurnar eru svohljóðandi: Leikskólar: • Leikskólabörn eru undanskil- in fjöldatakmörkunum, eins metra fjarlægðarreglu og grímuskyldu. • Samanlagður hámarksfjöldi þeirra sem fæddir eru 2016 og fyrr er 200 í rými. • Þegar starfsfólk nær ekki að halda nálægðarmörk (einn metra) sín á milli ber að nota andlitsgrímu. • Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir börn eða starfsfólk en starfsfólk skal gæta fyllstu var- úðar og virða nálægðarmörk eftir því sem frekast er unnt. • Foreldrar, aðstandendur og aðr- ir utanaðkomandi sýni aðgát þeg- ar þeir koma inn í skólabyggingar og gæti að sóttvörnum. Hvatt er til grímunotkunar gesta í skólabygg- ingum. • Við aðlögun barna skal viðvera foreldra skipulögð þannig að þeir þurfi sem minnst að nota hreinlæt- is- og mataraðstöðu í skólabygg- ingum og skulu þeir gæta að ná- lægðartakmörkun jafnt sín á milli og gagnvart starfsfólki. • Um viðburði á vegum leikskóla gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og 200 manna fjöldatakmörkun full- orðinna. Grunnskólar, frístunda- heimili og félagsmið- stöðvar: • Grunnskólabörn eru undanskil- in eins metra fjarlægðarreglu og grímuskyldu, en þau skulu hvött til fyllstu varkárni og persónulegra sóttvarna. • Samanlagður hámarksfjöldi starfs- fólks og nemenda í rými er 200. • Þegar starfsfólk nær ekki að við- hafa nálægðarmörk (1 m) sín á milli ber að nota andlitsgrímu. • Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir börn eða starfsfólk. • Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi eiga að sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabygg- ingar og gæta að sóttvörnum. Hvatt er til grímunotkunar gesta í skóla- byggingum, en skólum er jafnframt heimilt að takmarka enn frekar komu gesta í skólabyggingar. • Um viðburði á vegum grunnskóla gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og 200 manna fjöldatakmörkun full- orðinna. Tónlistarskólar: • Nemendur á grunnskólaaldri eru undanþegnir eins metra fjarlægð- arreglu og grímuskyldu, en þau skulu hvött til fyllstu varkárni og persónulegra sóttvarna. • Leyfilegur hámarksfjöldi starfs- fólks og nemenda er 200 í rými. • Þegar starfsfólk og nemendur fæddir árið 2005 og fyrr ná ekki að virða nálægðarmörk (1 m) ber að nota andlitsgrímu. • Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir nemendur eða starfs- fólk. • Foreldrar, aðstandendur og aðr- ir utanaðkomandi eiga að sýna að- gát þegar þeir koma inn í skóla- byggingar og gæta að sóttvörnum. Hvatt er til grímunotkunar gesta í skólabyggingum, en skólum er jafnframt heimilt að takmarka enn frekar komu gesta í skólabygging- ar. • Um viðburði á vegum skóla gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og 200 manna fjöldatakmörkun fullorð- inna. Framhaldsskólar og skólar sem kenna á framhaldsskólastigi: • Nemendur og starfsfólk skal bera grímu þar sem ekki er hægt að virða eins metra nándarreglu. • Þó er heimilt að víkja frá grímu- skyldu eftir að nemendur eru sestir niður inni í skólastofu. • Leyfilegur hámarksfjöldi starfs- fólks og nemenda er 200 í rými. • Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir nemendur eða starfs- fólk. umraða má í hópum milli kennslutíma og lesaðstöðu en mælst er til að sótthreinsað verði milli hópa. • Um viðburði á vegum framhalds- skóla eða nemendafélaga þeirra gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og 200 manna fjöldatakmörkun full- orðinna. Háskólar: • Nemendur og starfsfólk skal bera grímu þar sem ekki er hægt að virða eins metra nándarreglu. • Þó er heimilt að víkja frá grímu- skyldu eftir að nemendur eru sestir niður inni í skólastofu. • Leyfilegur hámarksfjöldi starfs- fólks og nemenda er 200 í rými. • Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir nemendur eða starfsfólk. umraða má í hópum milli kennslu- tíma og lesaðstöðu en mælst er til að sótthreinsað verði milli hópa. • Um viðburði á vegum skóla eða nemendafélaga þeirra gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og 200 manna fjöldatakmörkun fullorðinna. „Í reglugerð heilbrigðisráðherra er fjallað sérstaklega um þrif og sótt- hreinsun rýma. Skóla skal þrífa eins og oft og unnt er, sér í lagi algenga snertifleti. auk þess skal minna á einstaklingsbundnar sóttvarnir, tryggja góða loftræstingu og lofta reglulega út. Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á.“ mm Í síðustu viku undirritaði Guð- mundur ingi Guðbrandsson, um- hverfis- og auðlindaráðherra aug- lýsingu um stækkun friðlands- ins í Flatey. Markmið friðlýsing- arinnar er að vernda fjölbreytt líf- ríki svæðisins og búsvæði fugla, sér í lagi varpsvæði fágætra fugla- tegunda eins og þórshana, kríu og lunda, auk þess að tryggja rann- sóknir og vöktun á lífríki svæðisins. „Friðlandið hefur hátt vísinda- og fræðslugildi og er vel þekkt á með- al vísindamanna og fuglaáhuga- fólks. Búsvæði og lífríki í fjörum og í sjó er afar fjölbreytt og mikilvægt fæðusvæði margra fuglategunda. Náttúrufegurð svæðisins er einnig mikil og þar finnst m.a. marhálmur sem er sjaldgæfur á landsvísu,“ seg- ir í tilkynningu frá umhverfisráðu- neytinu. Eftir stækkun verður friðlandið tvöfalt stærra, 1,62 ferkílómetri og er stækkunin austan marka vernd- arsvæðis í byggð og nær til eyja, hólma og skerja suður af Flatey. „Þar sem friðlandið nær í sjó fram tekur friðlýsingin til hafsbotns, líf- ríkis og vatnsbóls. Friðlandið er inn- an verndarsvæðis Breiðafjarðar sem er verndað með sér lögum,“ segir á vef Stjórnarráðs Íslands. „Flatey er óumdeilanlega perla Breiðafjarðar. Náttúran sjálf segir sína sögu um það hvað gerði eyna að ákjósanlegri miðstöð mannlífs við Breiðafjörð. Hér er merkileg saga búsetu þar sem samspil manns og náttúru var og er í jafnvægi. Líffræðileg fjöl- breytni svæðisins er mikil enda fjöl- skrúðugt fuglalíf í eynni sem bygg- ir afkomu sína á fjölbreyttu fæðu- framboði á landi, í fjörum og í sjó. Það er því mikilvægt fyrir komandi kynslóðir, okkur sjálf og gesti okk- ar að tryggja verndun perlu eins og Flateyjar,“ segir Guðmundur ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auð- lindaráðherra. arg Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og ráðuneytisstjóri og fulltrúar ábúenda í eyjunni, Reyk- hólahrepps, Breiðafjarðarnefndar, Umhverfisstofnunar og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Ljósm. Stjórnarráð Íslands. Stækka friðlandið í Flatey á Breiðafirði Leiðbeiningar um sóttvarnir í skólastarfi nú í haust

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.