Skessuhorn


Skessuhorn - 18.08.2021, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 18.08.2021, Blaðsíða 2
MiðVikudaGur 18. ÁGúSt 20212 Skólarnir hefjast innan skamms og þá er ekki seinna vænna en að venja börnin við að vakna á „ókristilegum tíma“ á ný. Við mælum með að foreldrar noti næstu daga og helgina til að vekja börnin aðeins fyrr og venja þau við raunveruleikann sem mætir þeim eftir helgi. Gangi ykkur vel! Á morgun, fimmtudag, á að vera fremur hæg breytileg átt. Skýj- að að mestu og lítilsháttar væta eða þokusúld um allt land. Hiti 10-15 stig yfir daginn. Á föstu- dag á að vera suðlæg eða breyti- leg átt og 3-8 m/s með dálít- illi úrkomu. Styttir upp og léttir heldur til á Norðausturlandi síð- degis. Hiti breytist lítið. Á laug- ardag og sunnudag er spáð suðaustan 5-10 m/s og dálítilli vætu með köflum fyrir sunnan og vestan, en hægari vindur og bjart að mestu norðaustantil á landinu. Hiti 11-19 stig. Á mánu- dag á að vera suðlæg átt og bjartviðri, en skýjað með köflum sunnan- og vestanlands. Hlýnar heldur í veðri. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Ferðu oft út að borða?“ 69% svarenda fara af og til út að borða, 19% segjast aldrei fara út að borða, 9% fara nokkrum sinnum í mánuði og 3% svarenda fara út að borða vikulega eða oftar. Í næstu viku er spurt: Átt þú einhvers konar hýsi á hjólum? Sigursteinn Ásgeirsson er ung- ur og efnilegur kúluvarpari úr Borgarfirði sem stefnir langt í íþróttinni og æfir af kappi sam- hliða vinnu. Sigursteinn er Vest- lendingur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Framhaldsskól- arnir að byrja VESTURLAND: Fram- haldsskólarnir á Vesturlandi hefja allir vetrarstarf sitt í þessari viku. Nýnemadagur var í Fjölbrautaskóla Vestur- lands í gær og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá í dag, miðvikudag. Í Menntaskóla Borgarfjarðar er móttaka nýnema í dag og skólastarf hefst svo samkvæmt stunda- töflu á morgun, fimmtudag. Nýnemar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga mæta á kynning- ardag á föstudaginn. Loks hefst kennsla í Landbúnað- arháskóla Íslands á Hvann- eyri í dag. -mm Fjöldi smitaðra fer lækkandi VESTURLAND: Sam- kvæmt upplýsingum sem Lögreglan á Vesturlandi tók saman síðastliðinn mánudag var tala smitaðra af Covid-19 í landshlutanum komin nið- ur í 20. Hún var mest í fjórðu bylgjunni 38 þriðjudaginn 3. ágúst. af þessum tuttugu voru níu í einangrun á akra- nesi, átta í Borgarnesi og þrír í Ólafsvík. Fjöldi í sóttkví var á sama tíma 26 á Vesturland; 13 á akranesi, níu í Borgar- nesi, tveir í Ólafsvík og tveir í Búðardal. -mm Píratar frestuðu aðalfundi um viku LANDIÐ: aðalfundi Pírata fyrir alþingiskosning arnar í haust, sem fara átti fram um síðustu helgi, var frestað um eina viku. aðalfundurinn verður því haldinn helgina 21. til 22. ágúst. „Ástæðan er kórónuveirusmit starfs- manns Vogs á Fellsströnd, þar sem aðalfundurinn fer fram. Hluti starfsfólks var settur í sóttkví eins og regl- ur kveða á um og er því ekki hægt að halda stærri viðburði á hótelinu vegna manneklu. Þrátt fyrir þetta mun aðal- fundurinn fara fram á Fells- strönd, þó hann verði viku síðar. „Fyrirtæki og stofnan- ir um allt land hafa þurft að skella tímabundið í lás þeg- ar upp hafa komið smit en halda að því loknu ótrauð áfram. að lifa með faraldr- inum þýðir ekki að öll starf- semi skuli stöðvuð endan- lega heldur vera nógu sveigj- anleg til að bregðast við upp- ákomum sem þessum,“ sagði í tilkynningu. -mm Umferðaróhapp BORGARFJ: umferð- aróhapp varð á vegamót- um Vesturlandsvegar og Borgarfjarðarbrautar sunn- an við Borgarnes á þriðju- daginn í síðustu viku, 10. ágúst. um var að ræða aftan- ákeyrslu og sluppu allir aðil- ar með minniháttar eða eng- in meiðsl. -arg Þessa dagana er unnið að umfangs- miklum malbikunarframkvæmdum í Stykkishólmi. Stefnt var á að fram- kvæmdir stæðu yfir frá föstudegi til þriðjudags í þessari viku en u.þ.b. 10-15 þúsund fermetrar verða mal- bikaðir í bæjarfélaginu. Meðal ann- ars var aðalgata malbikuð frá Bónus niður að Baldursbryggju, bílaplön við Súgandisey og við listaverkið „Á heimleið“ á höfninni var malbikuð og Sæmundarreitur. mm/ Ljósm. sá. Mikill kraftur er í malbikunarfram- kvæmdum í Snæfellsbæ um þess- ar mundir en þriðji áfangi mal- bikunarframkvæmda í Snæfellsbæ hófst síðustu vikuna í júlí og mun toyota Yaris fólksbíll, sem lagt var við Borgarfjarðarbraut skammt frá afleggjaranum að Hvanneyri, var eyðilagður aðfararnótt laugardags. Óhætt er að segja að gengið hafi verið í skrokk á bílnum; brotin ljós og rúður, allir boddyhlutir beyglað- ir, númeraplötur rifnar af og áfram mætti telja. Engu var þó stolið og er því um hreint og klárt skemmd- arverk að ræða. Þar sem um gaml- an bíl er að ræða svarar ekki kostn- aði að gera við hann og er því tjón- ið einkum fjárhagslegt fyrir eigend- urna, ung hjón á Hvanneyri. Logi Sigurðsson eigandi bílsins biðl- ar til þeirra sem e.t.v. hafa séð til skemmdarvarganna að láta sig eða Láru Lárusdóttur eiginkonu hans vita. mm Vinnuflokkur fór yfir og skildi eftir sig rennisléttar götur. Malbikað í Stykkishólmi Gert klárt fyrir malbikun. Malbikunarframkvæmdir í Snæfellsbæ standa fram í miðjan ágúst en fyrstu áfangar voru teknir sumrin 2017 og 2019. að auki verða gerðar smá- vegis lagfæringar og malbik lagt á minni svæði til að gera umhverfið snyrtilegra. Hellissandur var fyrstur í röðinni í sumar og búið er að malbika á keflavíkurgötu, Skólabraut, Bárða- rás, Snæfellsás ásamt bílastæð- inu við röst. Í rifi er nýlokið við að malbika Háarif í báða enda og í Ólafsvík er búið að malbika Há- brekku, túnbrekku, Hjallabrekku, efsta hluta klifbrekku, Sandholt, Brautarholt, Vallholt, Engihlíð, á hafnarsvæðinu, við íþróttahúsið og sundlaugina og neðri hluta Háa- rifs. Mikil bæjarprýði er af öllum þessum framkvæmdum og búið er að malbika að mestu þær götur og svæði í þessum þriðja áfanga. Stefnt er að því að malbika þær götur sem ekki voru teknar núna í næstu áföngum. vaks/ Ljósm. Snæfellsbær Biksvartir á bumb- unni í Ólafsvík. Fríður flokkur að malbika á Hellissandi. Skemmdarvargar gjöreyðilögðu fólksbíl

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.