Skessuhorn


Skessuhorn - 18.08.2021, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 18.08.2021, Blaðsíða 23
MiðVikudaGur 18. ÁGúSt 2021 23 UMHVERFISVIÐURKENNINGAR 2021 Borgarbyggð veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta. Veittar verða umhverfisviðurkenningar í eftirfarandi fjórum flokkum: 1. Snyrtilegt bændabýli 2. Falleg lóð við íbúðarhús 3. Snyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði 4. Samfélagsviðurkenning umhverfis- og landbúnaðarnefndar vegna umhverfismála Óskað er eftir tilnefningum í áðurnefndum flokkum. Tilnefningar á að senda í gegnum heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en 31. ágúst 2021. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar SK ES SU H O R N 2 02 1 Menntun skapar tækifæri Ríkismennt styrkir starfsmenntun beint til stofnana ríkisins á landsbyggðinni Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Ríkismenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.rikismennt.is Ríkismennt Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • rikismennt@rikismennt.is Sigrún Hjartardóttir á Hátúni í Borgarfirði gaf nýverið út lít- ið myndskreytt kver, eða bók, sem nefnist Lífshlaup. Bókin er ætluð börnum á leikskólaaldri og fyrstu árum grunnskóla og fjallar eins og nafnið bendir til um lífshlaup- ið; þegar líf kviknar og því lýkur. „Hugmyndin að þessu riti kviknaði þegar þegar ég sat hjá móður minni á líknardeild LSH, þar sem hún dvaldi síðustu vikur sínar á tíræðis- aldri. Á líknardeildina komu einn- ig ung börn að heimsækja mömmu sína sem var við dauðans dyr, að- eins rúmlega þrítug. Þessi reynsla fékk mig til að hugsa um hvað við ættum erfitt með að tala um dauð- ann og ekki síður hvað börn vissu í raun lítið um það sem fyrir öllum á eftir að liggja,“ segir Sigrún. Í kjölfar þessarar lífsreynslu fór Sigrún á netið og las sig til um ýmis rit og bækur sem gefnar hafa verið út um þetta málefni. Sótti sér inn- blástur og ákvað að skrifa sjálf litla en auðskilda bók sem ætluð er til lestrar fyrir börn þar sem fjallað er um lífshlaupið og dauðann. til að myndskreyta bókina fékk hún til liðs við sig börn frá fjögurra ára aldri, öll með tengingu við Borgar- fjörð, en Marín Ásta Hjartardótt- ir, þrítug frænka Sigrúnar, teikn- aði forsíðumyndina. Bókin er gef- in út á íslensku og pólsku þar sem Pólverjar eru stærsti hópur erlends fólks sem hér á landi býr. „Ég leit- aði síðan stuðnings nokkurra fyrir- tækja og heimila í heimabyggð til að koma bókinni út og fékk frábær- ar viðtökur við því. Bókina prentaði síðan Olgeir Helgi í Prentþjónustu Vesturlands í Borgarnesi í 400 ein- tökum. Nú er ég búin að senda bók- ina á leikskóla í öllum landshlutum, barnadeildir sjúkrastofnana, líknar- deild LHS, í Ljósið og víðar. Þá tek ég við pöntunum í gegnum tölvu- póst ef fólk vill nálgast eintak. Bók- ina sel ég á kostnaðarverði; 1.250 krónur en bæti auk þess við 250 krónum ef þarf að póstleggja hana. Bókin er skrifuð fyrir börn á leik- skólaaldri og á yngsta stigi grunn- skóla. „Lífshlaup fjallar um hring- rás lífsins; allt á sér byrjun, miðju og enda þess og á það við bæði um lífshlaup í dýra- og jurtaríkinu. Börn skilja ekki endilega dauðann og í ýmsum löndum er það jafn- vel forboðið að ræða hann. Það á til dæmis við í Póllandi þar sem ég þekki nokkuð til. Ég fékk því pólska vinkonu mína til að þýða efni bók- arinnar á móðurmál sitt. Ég vona svo að þessi litla bók geti hjálpað einhverjum en almennt er hugsun mín sú að auka umræðu og þekk- ingu barna á því að allt líf sem á upphaf á sömuleiðis endi. Það er hlutverk okkar fullorðna fólksins að útskýra fyrir þeim,“ segir Sigrún Hjartardóttir. Þeir sem vilja kaupa eintak af bókinni Lífshlaupi er bent á að senda Sigrúnu tölvupóst á netfang- ið sigrun@heilsuhof.is mm Fjórar vinkonur og bekkjarsyst- ur úr Borgarnesi; þær Emma El- ísa Magnúsdóttir, dagmar Lind Estrajher, Lovísa Ósk Hlynsdóttir og Snæfríður Júlía kjartansdóttir, ákváðu að setja upp límonaðisölu í neðri bænum í Borgarnesi í liðinni viku. Salan var við aðalgötuna beint á móti Bara Ölstofu Lýðveldisins, í mikilli veðurblíðu á fimmtudaginn. Límonaðið, sem alla jafnan er gott að skola niður til að svala þorstan- um í hlýju veðri, kostaði 50 krónur og rennur allur ágóði sölunnar til Landspítalans. upphaflega langaði stelpunum að stofna til eigin rekst- urs en vantaði tiltekin leyfi í tæka tíð svo ákveðið var að allur ágóði skyldi í staðinn renna í gott málefni. Límonaðið þótti mjög gott og gekk salan vel hjá vinkonunum. Þær eru allar að fara í 3. bekk í Grunnskól- anum í Borgarnesi í haust. glh Gefur út bók fyrir börn sem hún nefnir Lífshlaup Sigrún Hjartardóttir með bókina Lífshlaup sem hún hefur nú gefið út á íslensku og pólsku. Emma Elísa, Dagmar Lind, Lovísa Ósk og Snæfríður Júlía selja límonaði. Ljósm. Rakel Dögg. Límonaði til sölu! www.skessuhorn.is Skógræktarfélag Borgarfjarðar leitar eftir umsjónarmanni skóga/skógarvörð í hlutastarf (30%). Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og tengist verkefnum í viðhaldi og stígagerð sem og grisjun og plöntun nýrra skóga. Reynsla á samskonar störfum er æskileg. Starfsstöð er í Borgarbyggð og verktakalaun er um að ræða. Áhugasamir hafa samband við formann SB í síma 847-8282. Umsjónarmaður Skógræktarfélag Borgarfjarðar SK ES SU H O R N 2 02 1

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.