Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 4
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 20214
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Að vanda valið
Ég hlakka mikið til næsta laugardags. Sannkallaður hátíðisdagur í minni
fjölskyldu. Þá förum við nefnilega í barnaafmæli og tökum þátt í hátíðar-
höldum í tilefni þess að yngsta barnabarnið er ársgamalt. Þannig var að
þessi litli og fallegi drengur kom í heiminn í miðjum heimsfaraldri, sem
útaf fyrir sig er ekkert grín. um tíma var ekki einu sinni öruggt að faðirinn
fengi að vera viðstaddur fæðingu sonar síns og vandlega var því gætt fyllstu
varúðar og sóttvarna í aðdraganda stóra dagsins fyrir ári. Svo ólst þessi litli
snáði upp í hálfgerðri einangrun á heimili sínu og ekki fyrr en eftir langa
hríð fengum við gamla settið að líta barnið augum, fyrir utan náttúrlega
myndir sem foreldrarnir voru duglegir að deila með okkur. Það skyldi því
ekki undra að barnið hafi rekið upp skaðræðisvein þegar það sá mig í fyrsta
skipti! (Hefði kannski gert það hvort sem var). Varð álíka hræddur og ég
sjálfur hefði orðið lokaður inn í herbergi með eiturslöngu, þeirri skepnu
sem ég óttast mest. Það tók því alveg nokkrar heimsóknir að venja litla
snáðann við fólk eins og okkur. En til að gera langa sögu stutta þá hefur
drengurinn alveg vanist ókunnugum, farinn að dvelja hjá dagmóður og allt
er í lukkunnar velstandi nú þegar þessu fyrsta ári í æviskeiði hans er lokið.
Eins árs afmælisveislan nú verður því meira svona eins og nokkrar veislur
saman.
Það er býsna praktískt að þurfa ekki að margklæða sig upp á laugardag-
inn. Fyrr um daginn förum við nefnilega á kjörstað og nýtum hinn heilaga
rétt okkar að eiga þátt í að ákveða hverjir halda um stjórnartaumana hér á
landi næstu árin. Að sjálfsögðu hvet ég alla landsmenn til að kjósa, það er
svo óendanlega mikilvægt að við látum rödd okkar hljóma. Látum ekki ná-
ungann í næsta húsi ákveða það fyrir okkur.
Nú þegar ég mun taka ákvörðun um hvernig atkvæði mínu verður best
varið hef ég fjölmörg atriði í huga. meðal annars mun ég meta hverjar
þarfir ársgamals barnabarns eru. Hvaða flokkar eru líklegir til að gæta að
hagsmunum litla drengsins í uppvexti hans, æsku og menntun? Af því ég
er, að ég held, ekkert sérstaklega eigingjarn, mun ég einnig hafa kjör eldri
borgara og öryrkja í huga og yfirleitt þeirra sem eiga í vök að verjast af ein-
hverjum ástæðum; fjárhagslegum, félagslegum eða andlegum. Ég til dæmis
er talsvert hugsi um hvernig komið er fyrir bændastéttinni sem lagt hefur
sig í líma við brauðfæða okkur í aldanna rás, en hefur ekki á liðnum árum
fengið þá umbun fyrir vinnu sína sem réttlætanlegt er. Það er einhvern
veginn svo galið að sauðfjárbóndi sem leggur inn lambakjöt í afurðastöð
í haust fái hundrað krónum minna fyrir kílóið af sinni framleiðslu en sjó-
maður sem heldur til veiða að morgni, landar svo vænan þorski úr Breiða-
firði um kvöldið. Þá er ég alls ekki að segja að 620 krónur séu eitthvað of
mikið fyrir breiðfirska sjómanninn, öðru nær. Það eru hinsvegar þessar 520
krónur fyrir kíló af besta kjöti í heimi sem ég tel verð út úr korti. Ég mun
því á leið minni í kjörklefann íhuga hvaða frambjóðendur og flokkar eru
líklegri en aðrir til að vilja bæta hag sauðfjárbænda því þá atvinnugrein vil
ég síst af öllum missa. Þá um leið hyrfi ein af þeim sérstöðum sem við sem
þjóð höfum verið hvað stoltust af.
En auðvitað er það fjölmargt fleira sem leggur grunn að þeirri ákvörð-
un hvernig atkvæðinu verður varið. maður reynir að sjálfsögðu að meta
mannkosti frambjóðenda og yfirbragð þeirra flokka sem þeir eru spyrtir
við. Hver og einn hefur þessa ákvörðun fyrir sig og engum kemur við hvað
gerist í kjörklefanum. Vonandi verður niðurstaðan sú að hér verði gott fólk
við völd næstu fjögur árin þannig að í fimm ára afmæli afadrengsins snúist
umræðan um hversu vel þeim hefur tekist til. Að búið verði að auka jöfnuð
í þjóðfélaginu, allir hafi það gott og enginn líði skort í þessu ríkasta landi
heims. Þessvegna ætla ég að vanda mig hvernig ég kýs.
Magnús Magnússon
Ný leiktæki voru sett upp fyr-
ir yngsta fólkið á Hellissandi í síð-
ustu viku. um er að ræða tvö tæki
sem sett voru upp við ærslabelginn
og slógu þau rækilega í gegn sam-
kvæmt því sem segir á Facebook
síðu Snæfellsbæjar.
arg/ Ljósm. Snæfellsbær
Hjá dalabyggð er nú til sölu
slökkvibíll af gerðinni magirus
deutz. Bíllinn er frá árinu 1982 og
ekinn aðeins 57.400 km. Slökkvi-
lið dalabyggðar keypti bílinn árið
1997, innfluttan frá Þýskalandi. Í
bílnum er 5.000 lítra vatnstankur
og 500 lítra froðutankur. Á bíln-
um er stór vatnsbyssa sem hægt er
að stjórna handvirkt af toppi bíls-
ins, fjarstýra úr stýrishúsi eða með
fjarstýringu að utan. Þessi bíll hefur
alltaf staðið inni í upphituðu húsi
og er því í sæmilegu ástandi en þó
er þörf á smá viðhaldi.
Nánari upplýsingar um bílinn er
að finna á heimasíðu dalabyggðar,
dalir.is.
Óneitanlega býður bíll af þessari
gerð upp á ýmsa möguleika. Benda
má á að hægt væri með svona græju
að opna froðudiskó, nú eða fyrir
ömmu og afa að kaupa slökkvibíl,
slá sér upp og sækja barnabörnin á
leikskólann og gjörsigra vinsælda-
keppnina. arg
Bíllinn er af gerðinni Magirus Deutz. Ljósm. Dalabyggð.
Selja slökkvibíl í Dölum
Hér má til dæmis æfa jafnvægið.
Leiktæki
slá í gegn
Krakkarnir geta nú eflt
klifurhæfileika sína.
málverk af guðbjarti Hannes-
syni, fyrrverandi forseta Alþingis
og skólastjóra grundaskóla á Akra-
nesi, var afhjúpað í Skála Alþing-
ishússins síðastliðinn miðvikudag.
Viðstaddir voru forseti Alþingis,
fjölskylda guðbjarts, vinir og sam-
starfsfólk hans úr Samfylkingunni
auk fleiri. Það var Stephen Lár-
us Stephen listmálari sem málaði
myndina og verður henni komið
fyrir í efrideildarsal Alþingis. Hefð
er fyrir því að gerð eru málverk af
fráfarandi forsetum Alþingis.
guðbjartur var alþingismað-
ur Norðvesturkjördæmis frá árinu
2007 þar til hann lést, 23. október
2015. Hann var þingmaður fyr-
ir Samfylkinguna. guðbjartur var
forseti Alþingis árið 2009, var fé-
lags- og tryggingamálaráðherra og
heilbrigðisráðherra 2010 og vel-
ferðarráðherra 2011–2013.
Á heimasíðu grundaskóla segir
af þessu tilefni: „guðbjartur, eða
bara gutti eins og hann var jafn-
an kallaður af nemendum og sam-
starfsmönnum, var fyrsti skólastjóri
grundaskóla árið 1981 og fylgdi
skólanum eftir allt til 2015 er hann
féll frá. Við í grundaskóla fögnum
því að þessum hæfileikaríka skóla-
manni, bæjarfulltrúa, þingmanni
og ráðherra sé sýnd þessi virðing á
Alþingi Íslendinga.“ mm
Mæðgurnar Sigrún Ásmundsdóttir og dætur hennar Birna og Hanna María, við
málverkið af Guðbjarti Hannessyni. Ljósm. Alþingi.
Málverk af Guðbjarti afhjúpað á Alþingi