Skessuhorn - 15.09.2021, Side 6
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 20216
Barn rotaðist í
Borgarnesi
BORGARNES: Barn slas-
aðist nokkuð þegar það féll á
höfuðið á körfuboltaæfingu
á skólatíma í Borgarnesi á
mánudag. Barnið missti með-
vitund og var sjúkrabíll kall-
aður til. Haft var samband við
foreldra í kjölfarið.
frg
Fastir í snjó á
Fróðárheiði
SNÆFELLSNES: Björg-
unarsveitir þurftu að aðstoða
nokkra ökumenn sem fest
höfðu bíla sína í snjó á Fróðár-
heiði eftir hádegi á þriðjudag.
mjög kröpp lægð gekk þá yfir
landið en þetta er sennilega
fyrsta útkall björgunarsveita á
Vesturlandi þennan veturinn
vegna bifreiða í vandræðum
vegna snjóskafla.
frg
Bílvelta í
Borgarfirði
BORGARFJ.: umferðar-
slys varð á laugardag í síðustu
viku þegar ungur ökumað-
ur missti stjórn á bíl sínum í
vatni á vegi á Vesturlandsvegi.
Bíllinn fór eina til tvær velt-
ur og kenndi ökumaðurinn
sér eymsla á höfði. Hann var
fluttur á heilsugæsluna í Borg-
arnesi og bíllinn var fjarlægð-
ur með kranabíl.
frg
Hraðakstur
VESTURLAND: Ökumað-
ur var stöðvaður á 139 kíló-
metra hraða í Borgarfirði á
þriðjudag í síðustu viku. Hlaut
hann 150 þúsund króna sekt
auk þriggja punkta í ökufer-
ilsskrá. Lögreglumenn í eftir-
litsferð stöðvuðu einnig öku-
mann á 153 kílómetra hraða
á Vesturlandsvegi á miðviku-
dag í síðustu viku. Ökumað-
ur játaði sekt sína en ekki var
búið að leggja sekt á öku-
mann samkvæmt upplýsing-
um lögreglu. Samkvæmt sekt-
arreikni lögreglu má hann bú-
ast við 210 þúsund króna sekt,
þremur punktum í ökuferils-
skrá og sviptingu ökuréttinda
í einn mánuð. Að sögn lög-
reglu á Vesturlandi hefur ver-
ið óvenju mikið um hraðakst-
ur í umdæmi hennar að und-
anförnu.
frg
Vandséðir ferða-
menn í norður-
ljósaleit
BORgARFJ.: Á föstudaginn í
síðustu viku barst lögreglu til-
kynning um börn á gangi með
fram Vesturlandsvegi án end-
urskinsmerkja rétt fyrir mið-
nættið. Þegar lögreglumenn
könnuðu málið reyndust téð
börn vera ferðamenn í yngri
kantinum í leit að norðurljós-
um.
frg
Smit í Brekku-
bæjarskóla
AKRANES: upp hefur kom-
ið smit í hópi nemenda í ein-
um árgangi í Brekkubæjarskóla
á Akranesi og eru allir nemend-
ur og starfsmannateymið sem
honum tengist komnir í sóttkví.
Einnig er einn starfsmaður
veikur og árgangur sem hann
kom að er kominn í sóttkví
ásamt hluta starfsfólks þess ár-
gangateymis. Að auki er hluti
af nemendum annars árgangs
kominn í smitgát vegna sama
tilfellis. Elsa Lára Arnardóttir,
aðstoðarskólastjóri, sagði í til-
kynningu frá Brekkubæjarskóla
í gærmorgun að búið væri að
láta alla vita sem sóttkvíin eða
smitgátin nær til. „Við vonum
að þetta breiðist ekki meira út
og við biðjum ykkur um að fara
með börnin ykkar í sýnatöku ef
þau eru með minnstu einkenni.
Við vitum ekki betur en að nem-
endurnir og starfsmaðurinn séu
með væg einkenni og við send-
um þeim og ykkur öllum hlýja
strauma.“ -vaks
Dópaður
ökumaður í
Borgarfirði
BORGARFJ.: Á laugardags-
kvöld var ökumaður stöðvaður
í Borgarfirði vegna gruns um
akstur undir áhrifum fíkniefna.
Viðurkenndi ökumaður brot
sitt og var í kjölfarið handtek-
inn. Fór mál hans í hefðbund-
ið ferli.
frg
Frambjóðendur á ferð og flugi
Samkaup opnaði fyrstu rafhleðslu-
stöðina við verslun Nettó í Borgar-
nesi í byrjun ágúst og hefur fram-
takið hlotið frábærar undirtektir,
að sögn forsvarsmanna fyrirtækis-
ins. „Fleiri hundruð rafbílaeigend-
ur nýttu hraðhleðslustöðina til að
hlaða bílana sína fyrsta mánuðinn
og flestir til að fullhlaða þá, þar
sem þeir voru í sambandi í nærri 30
mínútur,“ segir gunnar Egill Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri versl-
unarsviðs Samkaupa. „miðað við
okkar spá um meðalnotkun, þá
náðum við 95% af því marki fyrsta
mánuðinn.“
Fyrr á árinu gerðu Samkaup
samning við Ísorku um að setja upp
rafhleðslustöðvar við verslanir um
land allt. Áætlað er að aðrar versl-
anir Samkaupa muni bjóða upp á
hleðslustöðvar á komandi misser-
um og styttist í uppsetningu næstu
fimm stöðva. gunnar Egill segist
bíða framhaldsins með eftirvænt-
ingu. „Þróunin á þessum markaði
er gríðarlega spennandi, en í upp-
hafi þessa árs voru seldir fleiri nýir
bílar sem knúnir eru rafmagni en
bensíni eða dísilolíu. Við búumst
við að þessari þjónustu verði vel
tekið af viðskiptavinum okkar um
allt land, sem og ferðamönnum, er-
lendum og innlendum.“
Rafhleðslustöðvar Samkaupa eru
150KW og eru eingöngu hannað-
ar fyrir rafbíla sem geta hraðhlaðið.
Þær verða settar upp við að minnsta
kosti helming verslana félagsins en
Samkaup rekur rúmlega 60 versl-
anir víðs vegar um landið undir
vörumerkjunum Nettó, Krambúð-
in, Kjörbúðin og Iceland.
mm
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra var á ferðinni
ásamt Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur frambjóðanda
um Vesturland í síðustu viku. Meðal annars heimsótti
hún Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Ljósm. fva.
Á ritstjórn Skessuhorns kom síðastliðinn fimmtudag í heimsókn
fólk frá Viðreisn; Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður, Guð-
mundur Gunnarsson oddviti framboðslistans og Starri Reynisson
sem skipar 3. sætið. Ljósm. ki.
Haraldur bóndi tók sér frí frá framboðsfundum til að
mæta í Reynisrétt síðdegis á laugardaginn. Ljósm. mm.
Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Bergþór Ólason og Sigurður
Páll Jónsson, frambjóðendur Miðflokksins, voru á Akranesi
síðastliðinn miðvikudag. Þar heimsóttu þeir meðal annars
trillukarlinn góðkunna, Steindór Oliversson, og kepptu innbyrðis í
línubeitningu. Ljósm. frg.
Hraðhleðslustöð Samkaupa fær góðar undirtektir
Við hraðhleðslustöð Nettó í Borgar-
nesi. Ljósm. aðsend.