Skessuhorn - 15.09.2021, Síða 10
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202110
dalabyggð hefur gefið út nýja um-
hverfis- og loftslagsstefnu fyrir
næstu tíu ára. Lögum samkvæmt
ber sveitarfélögum að setja sér lofts-
lagsstefnu sem m.a. skal hafa skil-
greind markmið um samdrátt í los-
un gróðurhúsalofttegunda og kol-
efnisjöfnun. Í stefnu dalabyggðar
segir að sveitarfélagið muni beita
sér til að draga úr losun, ná kolefn-
ishlutleysi, vera leiðandi í aðgerð-
um og auka þekkingu á umhverf-
is- og loftslagsmálum hjá íbúum og
starfsfólki sveitarfélagsins. Auk þess
mun sveitarfélagið beita sér fyrir
því að nýting lands og auðlinda sé
sjálfbær.
Áherslur sveitarfélagsins næstu
tíu ár eru: Að vakta loftslagsmál í
rekstri sveitarfélagsins, að draga
úr losun og vinna að kolefnis-
hlutleysi, að lágmarka rask á nátt-
úrunni, að fara í uppbyggingu, við-
hald og breytingar á gatnakerfi þar
sem tekið er mið af þörfum og ör-
yggi gangandi og hjólandi vegfar-
enda, að fara í frekari uppbyggingu
hleðslu- og áfyllingarstöðva fyrir
vistvæn ökutæki og þannig stuðla
að og hvetja til orkuskipta, að fara
í fræðslu og vitundarvakningu um
mikilvæg minni losunar og að-
gerðir í þeim efnum og aðgerðir í
náttúruvernd og sjálfbærri nýtingu
lands, að hvetja til betri nýtingar
aðfanga í sveitarfélaginu er varðar
mötuneyti og matsölu þar sem hrá-
efni úr héraði er nýtt og að hvetja
samstarfsaðila til notkunar á um-
hverfisvænni efnum, t.d. er varða
þrif- og varnarefni.
Markmið
Ætlar dalabyggð að ná 25% sam-
drætti í losun vegna starfsemi og
reksturs sveitarfélagsins fyrir árið
2030 og fyrir árið 2028 á óflokkað-
ur úrangur frá stofnunum sveitar-
félagsins að vera í algjöru lágmarki
eða enginn. dalabyggð á að vera
kolefnishlutlaust sveitarfélag eigi
síðar en árið 2040 þegar kemur að
starfsemi og rekstri sveitarfélagsins.
Þá á að efla innviði fyrir vistvæna
ferðamáta, til að mynda göngu- og
hjólastíga og hleðslu- og áfylling-
arstöðvar. „Fyrir hópbifreiðar sem
notaðar eru við skólaakstur í sveit-
arfélaginu er gerð sú krafa að vél-
ar uppfylli a.m.k. kröfur EuRO
IV staðals en jafnframt er óskað að
vélin hafi eins háan EuRO staðal
og hægt er miðað við framleiðslu-
ár hópferðabifreiðar,“ segir í stefn-
unni. Þá skulu verktakar sem starfa
á vegum sveitarfélagsins skila inn
upplýsingum um eldsneytisnotkun
við þá vinnu.
arg
Það var nóg að gera hjá
starfsmönnum Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands þeg-
ar blaðamaður Skessuhorns
rak inn nefið í íþróttasal-
inn á Jaðarsbökkum á Akra-
nesi síðastliðinn miðviku-
dagsmorgun. Börn fædd árið
2006, 2007, 2008 og 2009
voru þá í seinni bólusetningu
af pfizer en börn sem fædd
eru 2009 verða að hafa náð
12 ára aldri þegar þau fara í
sprautuna. Þá voru þeir sem
eru 60 ára og eldri einnig
boðaðir í þriðja skiptið til að
fá örvunarskammt.
vaks
Skemmtiferðaskipið Seaventure
lagðist að bryggju í grundarfirði
síðasta fimmtudagsmorgun. Nú
eru síðustu skip sumarsins að koma
hvert af öðru. Bræðurnir Hafsteinn
og Eyþór garðarssynir segja að
fleiri skip hafi verið að boða komu
sína síðustu vikur. „mig minnir að
það séu átta skip sem eiga eftir að
koma næstu vikur,“ segir Hafsteinn
í stuttu spjalli við fréttaritara. Það
var smá sunnan gola og rigning
þegar Seaventure mætti til grund-
arfjarðar og ekki ólíklegt að síðustu
skipin lendi í svipuðu veðurfari.
tfk
Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi hefur
tekið að sér að flytja föt sem safn-
að er á Akranesi fyrir Konukot,
endurgjaldslaust til Reykjavíkur,
en Konukot hefur sent ákall til al-
mennings um að láta af hendi hlýj-
an fatnað og skó fyrir skjólstæðinga
Konukots. Halldóra R. guðmunds-
dóttir segir í viðtali við Fréttablaðið
að vel hafi verið tekið í ákall þeirra
en að enn vanti hlýjar úlpur og skó.
„Við höfum verið að fá regnkápur,
flíspeysur og allskonar þess háttar.
Við höfum fengið úlpur en þær fara
mjög hratt og það væri gott að fá
fleiri og til að eiga eitthvað á lager,“
segir hún.
Anna maría Þórðardóttir, starfs-
maður Bifreiðastöðvar ÞÞÞ til-
kynnir á íbúasíðu Akurnesinga á
Facebook að Skagamönnum sé vel-
komið að koma með fatnað fyrir
Konukot til ÞÞÞ, Smiðjuvöllum 15
og að ÞÞÞ keyri fötin endurgjalds-
laust til Reykjavíkur í Konukot.
Eru Skagamenn hvattir til þess að
taka vel í ákall Konukots um úlpur
og skó en að auki vantar Konukoti
teppi. Þau fari yfirleitt hratt þegar
þeim er deilt út.
frg / Ljósm. Fréttablaðið/
Anton Brink
Starfsmenn Grundarfjarðarbæjar tryggja landfestar hjá Seaventure.
Síðustu skemmtiferðaskip
sumarsins koma í september
Bræðurnir Hafsteinn og Eyþór Garðarssynir gera klárt fyrir Seaventure.
Skipverjar Seaventure með fagmannleg handbrögð er skipið lagðist að bryggju.
Landfestar tryggðar á nýja hafnarkantinum.
Horft yfir Búðardal. Ljósm. sm
Umhverfis- og loftlagsstefna
Dalabyggðar kynnt
ÞÞÞ keyrir fatnað
endurgjaldslaust til Konukots
Fjórir árgangar í bólusetningu