Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 12
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202112
Landssamband veiðifélaga tek-
ur vikulega saman upplýsingar
um fjölda veiddra laxa í helstu ám
landsins. miðvikudaginn 15. sept-
ember var veiði lokið í nokkrum
ám en sumsstaðar er veitt til mán-
aðamóta. Líkt og við var að búast
var mesta veiðin í Rangánum, en
tæplega 3000 laxar voru þá komn-
ir á land af vestri bakka Ytri-Rang-
ár og Hólsár og lítið eitt færri úr
Eystri-Rangá. Af náttúrulegum ám
var miðfjarðará efst með 1596 laxa
en þvínæst Norðurá í Borgarfirði
með 1431 lax. Heildarveiðin þar í
fyrra var 980 laxar svo bætingin er
mikil. Þverá og Kjarará hafa sömu-
leiðis bætt sig frá síðasta sumri, en
nú komu 1329 laxar á land miðað
við 1027 laxa í fyrrasumar. Í rign-
ingunni undanfarna daga hefur lax
bunkast upp ána, en laxar stukku
t.d. í miklum mæli ofan við brúna
við Lundahylinn síðastliðinn laug-
ardag þegar tíðindamaður Skessu-
horns var þar á ferð.
Af vestlensku ánum kom Haf-
fjarðará næst með 892 laxa veiði í
sumar sem verður að teljast gott á
sex stangir. Úr Langá voru komnir
757 laxar sem er töluvert minna en
heildarveiðin var í fyrra, þegar hún
var 1086 laxar. Úr Laxá í Leirársveit
voru komnir 755 laxar og úr Laxá
í dölum 712. grímsá og Tunguá
í Borgarfirði höfðu í síðustu viku
gefið 562 laxa sem var veiði nán-
ast á pari við heildarveiðina í fyrra-
sumar. Hítará hafði gefið 440 laxa,
Andakílsá 400, Straumfjarðará 367
og Haukadalsá í dölum 366. Úr
Flókadalsá voru komnir 263 laxar
og úr gljúfurá 194.
mm
Hinn rómaði veitingastaður Narf-
eyrarstofa í Stykkishólmi er nú til
sölu. Narfeyrarstofan hefur verið
í eigu hjónanna Sæþórs Þorbergs-
sonar og Steinunnar Helgadóttur
frá árinu 2001. „Okkur þykir tutt-
ugu ár bara fínn tími,“ segir Sæ-
þór þegar blaðamaður Skessu-
horns sló á þráðinn til hans. Narf-
eyrarstofa er í fallegu húsi sem
byggt var árið 1906 í hjarta bæj-
arins, rétt við höfnina. Þegar Sæ-
þór og Steinunn keyptu staðinn
var þar rekið kaffihús á einni hæð
og íbúð á hæðinni fyrir ofan. „Við
höfum breytt þessu töluvert. Byrj-
uðum á að breyta þessu í veitinga-
stað og svo byggðum við stiga-
hús og opnuðum veitingastaðinn
upp á aðra hæð. Við höfum farið í
töluverðar framkvæmdir á staðn-
um og það eru ekki nema þrjú ár
síðan við byggðum við staðinn og
settum upp nýtt eldhús og bætt-
um aðstöðuna enn frekar,“ segir
Sæþór. En í dag tekur staðurinn
90 manns í sæti og alltaf er nóg
að gera.
Mikið ævintýri
„Þetta er búið að ganga rosalega
vel hjá okkur og hefur verið mikið
ævintýri. Við höfum horft á mik-
inn vöxt og það er alveg stórfeng-
legt,“ segir Sæþór ánægður. „Þeg-
ar við vorum að byrja voru ekki
nema svona 200 þúsund ferða-
menn að koma til landsins. Það
hefur verið gríðarlega gaman að
fylgjast með þessu vaxa,“ bæt-
ir hann við. Aðspurður segir Sæ-
þór þau hjónin ekki hafa tekið
neina ákvörðun um hvað taki við
hjá þeim. „Við ætlum ekki að spá
í það fyrr en einhver hefur tekið
við þessu af okkur. Okkur fannst
þetta bara fínn tími til að skipta
um vinnu. Við erum bæði nýlega
orðin fimmtug og okkur langar að
sjá hvað er hinum megin við læk-
inn,“ segir Sæþór. Spurður hvern-
ig síðastliðið sumar hafi gengið
segir hann það hafa verið mjög
gott. „Þetta var í raun alveg æv-
intýralegt sumar. Haustið lítur
líka vel út og ég held að ferðaþor-
stinn hafi verið orðinn uppsafn-
aður hjá fólki og núna eru tölu-
vert margir ferðamenn að koma.
Við erum mest að fá útlendinga til
okkar en Íslendingar hægja alltaf á
sér þegar skólarnir byrja. Þeir eru
líka duglegir að koma um helgar,“
segir Sæþór. arg
Ein af veiðimyndum sumarsins í Skessuhorni. Hér er Ævar Sveinsson með 86 sentimetra lax úr Efri-Kistu í Laxá í Dölum.
Laxveiðinni nú
víðast hvar að ljúka
Salurinn á efri hæð Narfeyrarstofu. Ljósm. Híbýli Fasteignasala
Narfeyrarstofa boðin til sölu
Sæþór Þorbergsson eigandi Narfeyrarstofu. Ljósm. Narfeyrarstofa. Narfeyrarstofa er nú til sölu. Ljósm. úr safni/ Anna Melsteð/Anok.
Salurinn á neðri hæð veitingastaðarins. Þarna má sjá stigann þar sem gengið er upp á aðra hæð.
Ljósm. Híbýli Fasteignasala.