Skessuhorn - 15.09.2021, Síða 17
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 2021 17
HEITT Í KOLUNUM - AKRANES
PÍRATAR
Grjótið Bistró-Bar, kl. 19:00
Fimmtudaginn, 23. september
Hvað brennur á þér fyrir komandi Alþingiskosningar?
Hvort sem þú hyggst kjósa Pírata eða ekki í komandi
Alþingiskosningum, viljum við hitta þig og heyra hvað
þér finnst.
Við hlökkum til að grilla og gleðjast með þér.
Þú grillar okkur og við grillum fyrir þig!
Matur og drykkur í boði frameftir
ÚTBOÐ
LEIKSKÓLI ASPARSKÓGUM 25
Innanhúsfrágangur
Batteríið arkitektar ehf., fyrir hönd Fasteignafélags Akraness,
óska eftir tilboðum í framkvæmdir við innanhússfrágang í nýjum
leikskóla við Asparskóga 25, Akranesi.
Verkið nær til innanhússfrágangs, smíði og uppsetningar innrétt-
inga, ásamt lögnum og raflögnum sem tengjast innanhússfrágangi.
Verktaki skal setja upp innveggi, smíða og koma fyrir innihurðum
og innigluggum, sjá um frágang gólfa, lofta, handriða, lyftu og
málningarvinnu. Hann skal annast smíði og uppsetningu fastra
innréttinga og búnaðar. Ennfremur skal verktaki leggja hita- og
fráveitu- og neysluvatnslagnir í bygginguna, annast uppsetningu
og frágang rafkerfa og lýsingar.
Helstu stærðir:
1. hæð 966,6 m2
2. hæð 552,4 m2
3. hæð 46,3 m2
Heildarstærð byggingar 1565,3 m2 og 5607 m3
Verktaki tekur við byggingarsvæði frá verktaka sem annast upp-
steypu og utanhússfrágang. Byggingarsvæðið er afgirt og með
hliði inn á vinnusvæðið.
Verklok á útboðsáfanga er 31. júlí 2022.
Útboðsgögn verða afhent á stafrænu formi frá og með 16. ágúst
2021 með því að senda tölvupóst á netfangið
batteriid@arkitekt.is þar sem fram kemur heiti verks, nafn
bjóðanda, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti
16-18 Akranesi í síðasta lagi 8. október 2021 kl. 14:00
þýðir að u.þ.b. 47% erlendra ferða-
manna sem heimsóttu Ísland það
árið, komu í Borgarfjörð skv. skýrslu
sem gefin var út af Rannsóknir og
Ráðgjöf ferðaþjónustunnar (RRF)
og ber heitið: „Erlendir ferðamenn
á Vesturlandi 2010-2019“. Borgar-
fjörður er í skýrslu RRF skilgreind-
ur sem Hvalfjarðarströnd, Akra-
nes og Borgarfjörður. Samkvæmt
skýrslunni, má áætla að árið 2019
hafi 224 þúsund erlendir ferðamenn
gist í Borgarfirðinum. gestir sem
gistu, dvöldu að jafnaði um 1,63
nætur, svipað og árin 2010, 2013 og
2016-2018 (1,5-1,6 nætur). Áætl-
að er að erlendar gistinætur í Borg-
arfirði hafi verið um 367.000 árið
2019, miðað við rúmlega 63.000
árið 2010, sem er nærri sexföldun á
9 árum.“
Einnig segir í skipulagstillögunni:
„Herbergjafjöldi í Borgarbyggð var
að meðaltali 334 árið 2017 og gisti-
nætur voru rúmlega 111.000. Ef
gert er ráð fyrir sambærilegri þró-
un næstu 10 árin má reikna með að
fjöldi gistinátta verði um 250.000
árið 2025 og að þörf verði á að lág-
marki 500 gistiherbergjum til að
koma til móts við þá þróun. Fjölga
þarf því um 50 herbergi á ári til að
koma til móts við væntanlega fjölg-
un gistinátta í Borgarbyggð.“
Dregur að mismunandi
hópa ferðamanna
Og áfram segir í skipulagstillögunni:
„Ef reiknað er með að ferðaþjónust-
an verði búin að ná fyrri stöðu og
fyrir faraldurinn eftir 3-5 ár að þá
er uppbygging ferðaþjónustu á Staf-
holtsveggjum II afar mikilvæg til að
koma til móts við væntanlega þró-
un í fjölgun ferðamanna í Borgar-
byggð. Breytingin leiðir af sér upp-
byggingu gisti- og þjónustuhúsnæð-
is sem skortur var á í sveitarfélaginu
fyrir heimsfaraldurinn. uppbygging
á ferðaþjónustu muni nýtast jafnt
íbúum sem og ferðamönnum. með
því að hafa ólíka gistimöguleika í
boði þ.e. gistiherbergi og svefnskála
dregur það að sér mismunandi hópa
ferðamanna.“
Í aðalskipulagi Borgarbyggðar er
gert ráð fyrir nýrri brú yfir Hvítá við
Stafholtsey, en ekki er komin áætlun
um hvenær fyrirhuguð framkvæmd á
að eiga sér stað. með tilkomu brúar-
innar skapast mikilvæg tenging inn-
an sameinaðs sveitarfélags og gæti
stuðlað að auknum ferðamanna-
straum um Stafholtstungur. Einnig
ber að nefna að brúin yrði mikilvæg
tenging á milli landshluta, þ.e. milli
Suðurlands og Vesturlands/ Vest-
fjarða/ Norðurlands.
Talið er jákvætt að breytingin
leiðir af sér uppbyggingu á versl-
unar- og þjónustuhúsnæði þar sem
eldri landbúnaðarbyggingar að Staf-
holtsveggjum voru hættar að þjóna
hlutverki sínu en fá nú nýtt hlutverk
sem gisti- og veitingahús. Rekstur
nýs gisti- og veitingastaðar hefur
jákvæð hagræn og félagsleg áhrif á
samfélagið þar sem hann leiðir af sér
fjölgun starfa innan sveitarfélagsins.
Það er mat landeiganda að skortur
er á ódýrri gistingu í Stafholtstung-
um. uppbyggingin mun vera mikil-
væg viðbót við þá gistingu sem er í
boðið í næsta nágrenni og auka val
ferðamannsins á mismunandi gisti-
möguleikum. Talið er að breyting-
in hafi ekki áhrif á náttúrufar í ná-
grenninu svo sem menningarminjar,
gróðurfar, dýralíf eða jarðminjar.
Þegar Sveinn er spurður hve-
nær hann hyggist opna fyrir gestum
segir hann full bratt að reikna með
næsta vori en vonast til þess að ná
að opna næsta sumar. um þessar
mundir er aðallega unnið um helg-
ar við breytingarnar en Sveinn segir
að þegar hafist verði handa fyrir al-
vöru innan húss verði líklega settur
aukinn kraftur í verkið og unnið alla
daga.
frg / Ljósm. frg og aðsendar.
Franskir gluggar komnir í fyrsta áfanga.