Skessuhorn - 15.09.2021, Síða 18
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202118
Síðastliðinn laugardag kom saman
vaskur hópur Skagamanna í Knatt-
spyrnufélagi ÍA sem fyrir réttum
tuttugu árum landaði óvæntum en
verðskulduðum Íslandsmeistaratitli
í knattspyrnu. Sturlaugur Haralds-
son rifjaði þetta sögufræga sumar
upp: „Það var margt sem gekk gegn
okkur 2001. Okkar ástkæra félag
varð gjaldþrota fyrr um veturinn og
við höfðum séð á eftir öflugum og
leikreyndum leikmönnum. Hóp-
urinn var lítill og liðið mjög ungt.
Óli Þórðar þjálfari ákvað að halda
starfi sínu áfram þrátt fyrir mikinn
mótbyr, lengi vel launalaus og leik-
mennirnir ákváðu að fylgja frum-
kvæði hans. Óli er engum líkur, fyr-
ir utan að þjálfa, þá sá hann sjálf-
ur um flesta hluti auk þess að spila
sem leikmaður framan af móti.
Hann keyrði m.a. rútuna á leikina.
Það hafði engin trú á þessu liði fyrir
mótið 2001, nema við sjálfir. Sumir
spáðu því að við myndum þurfa að
berjast við fall, en þetta lið var alveg
einstakt,“ skrifaði Sturlaugur.
ÍA hópurinn rifjaði á laugardag-
inn upp þetta uppskeruríka sumar.
Skessuhorn rifjar þetta einnig upp
nú og birtum við hér frásögn gísla
Einarssonar af leiknum, en hún
birtist í Skessuhorni vikuna eft-
ir úrslitaleikinn magnaða í Eyjum.
gefum gísla orðið:
Bátarnir nutu
nærveru Gunnars
„Það var varla nokkur Skagamað-
ur, hvar á landinu sem hann var
staddur, sem ekki fylgdist með af
áfergju síðustu andartökunum á Ís-
landsmótinu í ár. Síðustu mínút-
ur í leik ÍA og ÍBV voru ekki fyr-
ir hjartveika og var spennan þvílík
að margir þoldu ekki við. Fregn-
ir bárust af því eftir leik að margir
hafi slökkt á viðtækjunum sínum og
snúið sér að einhverju öðru sem tók
ekki eins mikið á taugarnar. Til að
mynda varð formaður knattspyrnu-
félagsins, gunnar Sigurðsson, að fá
sér göngutúr á meðan á seinni hálf-
leik stóð vegna þeirrar spennu sem
á leikvellinum ríkti. Bátarnir í Vest-
mannaeyjum fengu notið nærveru
gunnars á meðan seinni hálfleikur
stóð, en gunnar kom svo aftur um
síðir eða þegar þrjár mínútur lifðu
leiks.
Óskabyrjun
Það var alveg ljóst áður en flaut-
að var til leiks að jafntefli nægði
Skagamönnum til þess að tryggja
sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn
í fimm ár. Hafi einhver haldið að
Skagamenn hafi ætlað að hanga
á þessu stigi sem til þurfti þá varð
þeim hinum sama fljótlega ljóst að
sú leikaðferð, að leggjast í vörn, var
ekki uppi á teikniborðinu hjá leik-
mönnum ÍA. Eftir sautján mínútur
var staðan orðin 0-2 Skagamönn-
um í vil. Fyrra markið skoraði Kári
Steinn Reynisson á 7. mínútu þegar
hann fylgdi eftir föstu skoti grétars
Rafns Steinssonar sem Birki Krist-
inssyni markverði ÍBV tókst ekki
að halda. Tíu mínútum síðar fengu
Skagamenn hornspyrnu sem Ellert
Jón tók. Eyjamaður skallaði bolt-
ann út úr teignum þar sem Sigurð-
ur Sigursteinsson kom aðvífandi og
skaut hnitmiðuðu skoti sem hafnaði
í marki ÍBV. Þegar þarna var kom-
ið sögu töldu eflaust margir að nú
væru úrslitin ráðin. Eyjamenn virt-
ust ekki líklegir til afreka meðan
Skagamenn virkuðu frískir og til-
búnir að leggja á sig þá vinnu sem til
þarf. Það kom því mönnum í opna
skjöldu þegar Eyjamenn minnk-
uðu muninn aðeins sjö mínútum
eftir annað mark ÍA. Við markið
hresstust Eyjamenn án þess þó að
ná nokkrum yfirtökum í leiknum.
Þeir voru þó nærri búnir að jafna
undir lok fyrri hálfleiks en Ólafur
Þór gunnarsson kom Skagamönn-
um til bjargar á síðustu stundu eins
og svo margoft áður í sumar.
Umdeild aukaspyrna
Í síðari hálfleik var komið að Eyja-
mönnum að hafa sterkan vind-
inn í bakið og hófu þeir hálfleik-
inn af miklum krafti. Eftir klukku-
tíma leik höfðu þeir jafnað metin.
Síðasta hálftímann sóttu Eyjamenn
meira en að sama skapi þéttist vörn
Skagamanna og fundu leikmenn
ÍBV sjaldan smugur að marki gest-
anna og ef þeim tókst það var annar
óyfirstíganlegur klettur þeim, Ólaf-
ur Þór gunnarsson. Á 85. mín-
útu gerðist atvik sem valdið hefur
töluverðum umræðum. Sturlaug-
ur Haraldsson sparkaði boltan-
um í átt til Ólafs markvarðar í því
skyni að Ólafur tæki aukaspyrnu
sem dæmd hafði verið Skagamönn-
um. Áður en boltinn náði að ber-
ast til Ólafs hafði einn Eyjamaður-
inn komist í boltann og stýrt hon-
um í autt markið. dómari leiks-
ins taldi hinsvegar ekki rétt stað-
ið að framkvæmd aukaspyrnunnar
og markið því dæmt ólöglegt. Eg-
ill már markússon, dómari leiks-
ins, bætti við rúmum sex mínútum
vegna þeirra tafa sem höfðu orðið í
síðari hálfleik. Eyjamenn fjölguðu í
sóknarlínunni hjá sér og hver sókn-
in á fætur annarri dundi á Skaga-
vörninni. Síðustu spyrnu Íslands-
mótsins áttu Eyjamenn þegar að
skalli þeirra eftir hornspyrnu fór
rétt fram hjá.
Íþróttamannsleg fram-
koma Eyjamanna
Skagamenn voru orðnir Íslands-
meistarar í 18. sinn, sléttum 50
árum eftir þann fyrsta. Leikmenn
ÍA fögnuðu sigrinum að vonum
innilega en það kom hins vegar
mörgum á óvart að Eyjamenn sam-
fögnuðu þeim innilega þótt þeir
hafi að vonum verið svekktir þar
sem þeir voru aðeins hársbreidd frá
því að standa í sömu sporum. Vakti
íþróttamannsleg framkoma Eyja-
manna verðskuldaða athygli og
mættu eflaust margir taka þá til fyr-
irmyndar.
Sanngjörn niðurstaða
Það kann vel að vera að Vestmanna-
eyingar hafi átt skilið sigur í þessum
leik, en þegar á heildina er litið voru
Skagamenn með heilsteyptasta lið-
ið og jafnbesta árangurinn í sumar
og því ættu flestir að vera sammála
um að úrslitin hafi verið sanngjörn.
Allavega ber mönnum saman um
að þessi tvö lið sem þarna kepptu
til úrslita voru sigurvegarar deild-
arinnar, lið sem byggðu að mestu
á heimamönnum og ríkri hefð. Það
var hins vegar ekki nema einn bikar
í boði og Skagamenn eru því sigur-
vegarar sigurvegaranna.“
Vestlendingur ársins
Ýmsir titlar fylgdu þessum góða
árangri Skagamanna. meðal ann-
ars var Hjörtur Júlíus Hjartarson
leikmaður ÍA markakóngur ársins.
Ekki minni var sú viðurkenning
sem Ólafi Þórðarsyni þjálfara var í
lok árs veitt þegar hann var kosinn
Vestlendingur ársins 2001. Í um-
sögn Skessuhorns um titilinn þetta
ár sagði m.a: „Varla þarf að tíunda
afrek Ólafs Þórðarsonar, en hann
leiddi sem kunnugt er sína menn til
sigurs á Íslansmótinu í knattspyrnu
í sumar þvert á allar spár og þrátt
fyrir margumtalaða fjárhagserfið-
leika félagsins.“
mm
Ólafur Þórðarson var í lok árs 2001
kosinn Vestlendingur ársins. Ljósm. af
forsíðu Skessuhorns/ge.
Íslandsmeistarar ÍA í knattspyrnu karla. Fremsta röð f.v.: Kári Steinn Reynisson, Pálmi Haraldsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Gunnlaugur Jónsson, Páll Gísli Jónsson,
Unnar Valgeirsson og Sturla Guðlaugsson.
Miðröð f.v: Guðjón Kristjánsson, Sigmundur Ámundason, Heimir Jónasson, Sigurður Sigursteinsson, Jóhannes Gíslason, Ellert Jón Björnsson, Baldur Aðalsteinsson,
Guðjón Sveinsson, Hjörtur Júlíus Hjartarson, Sturlaugur Haraldsson, Ólafur Þórðarson þjálfari, Aðalsteinn Viglundsson aðstoðarþjálfari og Gunnar Sigurðsson form.
Rekstrarfél. Mfl. & 2. fl.
Aftasta röð f.v.: Kristinn Jens Kristinsson, Guðjón Guðmundsson læknir, Áki Jónsson vallarstjóri, Georg Janusson sjúkraþjálfari, Hjálmur Dór Hjálmsson, Grétar Rafn
Steinsson, Haraldur Hinriksson, Reynir Leósson, Andri Lindberg Karvelsson, Jón Þór Hauksson, Guðlaugur Gunnarsson, Eiríkur Guðmundsson og Einar Guðleifsson.
Ljósm. Guðni Hannesson.
Tuttugu ár frá sögufrægum
Íslandsmeistaratitli Skagamanna
Hópurinn sem kom saman síðastliðinn laugardag, tuttugu árum frá titlinum.
Ljósm. gg.
Gísli Gíslason, Gunnar Sigurðsson og Ólafur Þórðarson.