Skessuhorn - 15.09.2021, Síða 20
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202120
Hvalfjarðarsveit hefur gengið til
samninga við Þrótt ehf. um jarð-
vinnu, lagnir og yfirborðsfrágang
við nýja götu í melahverfi og verð-
ur verkið unnið í samvinnu við Veit-
ur, mílu og Rarik. Í tilkynningu frá
Hvalfjarðarsveit segir að nýja gat-
an heiti Lyngmelur og er sunnan
megin í hverfinu. Þá segir að fram-
kvæmdir eigi að hefjast í lok októ-
ber og áætluð verklok fyrsta áfanga
eru í febrúar á næsta ári og áætlað að
búið verði að malbika götuna í júní
sama ár.
gatnagerðin er mikilvægur áfangi
í áframhaldandi uppbyggingu mela-
hverfis og verður lóðaúthlutun aug-
lýst innan tíðar. Við Lyngmel verða
sex einbýlishúsalóðir, tvær parhúsa-
lóðir og ein fjögurra íbúða raðhúsa-
lóð. Í maí síðastliðnum fór fram
lóðaúthlutun við Háamel í mela-
hverfi og var mikill áhugi er úthlut-
að var einni einbýlishúsalóð, þrem-
ur parhúsalóðum og einni þriggja
íbúða ráðhúsalóð, segir í frétt Hval-
fjarðarsveitar. arg
miðvikudaginn 15. septem-
ber var formlega opnuð matar-
smiðja í Suðurdölum, nánar til-
tekið í miðskógi. páll S. Brynjars-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi, opn-
aði smiðjuna og lýsti yfir ánægju
með framtakið og ánægju með að
uppbyggingarsjóður Vesturlands
hafi stutt við uppbygginguna.
Skúli guðbjörnsson bóndi í mið-
skógi sagði frá tilurð smiðjunn-
ar, sem er sprottin upp úr vinnu
hóps sem stofnaður var 2019 til
að skoða möguleika á uppbygg-
ingu kjötvinnslu í héraðinu. Hóp-
urinn skoðaði ýmsa kosti og heim-
sótti m.a. matarsmiðju Biopóls á
Skagaströnd og ræddi við bændur
í nærliggjandi héruðum um mögu-
leikana. Niðurstaðan var einfald-
lega að byggja litla vinnslu og
Skúli tók boltann á lofti. Aðstaðan
hefur fengið leyfi Heilbrigðiseft-
irlits Vesturlands til starfseminn-
ar og er tilbúin til notkunar, með
manngengan kæli, vinnuaðstöðu
og nokkur helstu tæki sem þarf til
kjötvinnslu.
Vonast er til að dalamenn taki
starfseminni vel og nýti sér þessa
góðu vinnuaðstöðu, sem uppfyll-
ir öll skilyrði til vinnslu kjötvöru
á almennnan neytendamarkað.
Hægt verður að leigja aðstöðuna
daglangt eða lengur, eftir umfangi
vinnslu hverju sinni. gestir við
opnun matarsmiðjunnar ræddu
mikið um þau tækifæri sem aðstaða
á borð við þessa getur skapað og
létu í ljós von um að dalamönnum
detti allskonar nýtt og spennandi
matarkyns í hug, sem hægt verði
að kaupa beint frá þeirra býlum í
framtíðinni.
bj
Rauðhetta, úlfurinn, amma, veiði-
maðurinn, álfadís, svartálfur og
pandabjörn voru öll saman kom-
in í skóginum í Einkunnum síð-
astliðinn laugardag. Þar var líka
talsvert á annað hundrað manns,
börn á öllum aldri, sem tóku þá
þátt í Ævintýragöngu í skóginum
sem Ferðafélag Borgarfjarðarhér-
aðs stóð fyrir. Á síðu Ferðafélags-
ins kemur fram að gangan hafi
byrjað og endað í skógarrjóðrinu
við hestagerðið í Einkunnum en
þar var boðið upp á snúða og kakó
sem hitað var í grýlupotti. Þar var
líka köttur sem spilaði á harmon-
ikku!
mm/ Ljósm. FFB
Ævintýraganga í
Einkunnum
Hvalfjarðarsveit hefur samið við Þrótt ehf. um jarðvinnu, lagnir og yfirborðsfrágang við nýja götu í Melahverfi. F.v. Hlynur
Sigurdórsson, Linda Björk Pálsdóttir og Helgi Þorsteinsson. Ljósm. Hvalfjarðarsveit.
Hvalfjarðarsveit semur við
Þrótt um gatnagerð
Gestir á opnun virða fyrir sér aðstöðuna í nýju matarsmiðjunni.
Matarsmiðja opnuð að
Miðskógi í Dölum
Skúli Guðbjörnsson segir frá kæliaðstöðunni í matarsmiðjunni.