Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 22
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 2021
Borgnesingurinn Hallbjörg Erla
Fjeldsted tók í síðustu viku við
starfi vaktstjóra í stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar í Reykjavík. Er
hún fyrsta konan til að gegna því
starfi en Hallbjörg hefur starfað
sem varðstjóri í stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar undanfarin ár.
Hún er dóttir Báru og Benna í
Borgarnesi. „Ég elst upp umlukin
hafinu,“ segir Hallbjörg í samtali
við Skessuhorn. „mamma kemur
frá Skagaströnd og pabbi er Borg-
nesingur. Þó svo að skipaútgerð sé
ekki mikil þar í bæ hugsa ég að ég
hafi fljótlega smitast af sjóbakterí-
unni af nándinni við hafið,“ segir
Hallbjörg. Sem barn sótti hún mik-
ið í hafið, lék sér í fjörunni og sat
með veiðistöng og dorgaði í Brák-
arey. „Fátt var um fína drætti í þeim
veiðiskap, mest marhnútar og ein-
staka koli, en það kom ekki að sök.
Ég naut mín í návist hafsins,“ segir
Hallbjörg. Eftir að hún lauk námi
við grunnskólann í Borgarnesi
hélt hún á Akranes í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands þar sem hún lauk
stúdentsprófi af listnámsbraut og
félagsfræðibraut. Hún útskrifað-
ist svo frá Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar með framhaldspróf í píanó-
leik og frá Tónskóla þjóðkirkjunn-
ar sem kirkjuorganisti. Hún hefur
nú lokið grunnnámi í sjúkraflutn-
ingum og stundar háskólanám í
Sjávarútvegsfræðum við Háskólann
á Akureyri.
Sjö ár í Norrænu
Hallbjörg hefur prófað ýmis störf
í gegnum árin en lengst hefur hún
verið sjómaður. „Ég sigldi til dæmis
með Norrænu í sjö ár. Þar sinnti ég
hinum ýmsu þernustörfum, starf-
aði í veitingastaðadeildinni, sá um
sundlaugina og líkamsræktarstöðina
og fleira,“ segir hún. „Ég fann út að
sjómennskan ætti vel við mig, en ég
sá ekki fyrir mér að ég hefði áhuga á
að þrífa klósett og ælur til frambúð-
ar, þannig að ég ákvað að skrá mig
í Skipstjórnarskólann,“ segir Hall-
björg og bætir við að þar hafi henni
gengið mjög vel. Hún fékk viður-
kenningu fyrir framúrskarandi ár-
angur í fagfögum auk þess sem
hún var fyrst kvenna til að ritstýra
skólablaðinu Kompási. Eftir tvö ár í
skólanum sótti hún um að komast í
hásetadeildina á Norrænu. „Færey-
ingar eru ekki, enn sem komið er,
komnir jafn langt í jafnréttismál-
um og aðrar þjóðir og því þótti það
óeðlilegt að kona hefði skráð sig í
skipstjórnarskóla, og hvað þá að
hún óskaði eftir plássi á dekkinu,“
segir Hallbjörg. „Ég hef alltaf litið
á hafnanir sem tækifæri, að eitthvað
betra bíði handan hornsins,“ bætir
hún við. Hún sótti um hjá Eldingu,
hvalaskoðun Reykjavíkur, og fékk
stýrimannspláss og hefur siglt með
Eldingu sem yfirstýrimaður síðustu
fjögur ár.
Tvær vikur með Ægi
Þegar Hallbjörg lauk grunnskóla-
námi var í boði fyrir krakka að sækja
um sem varðskipsnemar og fara
einn túr með varðskipi um sumar-
ið. Hallbjörg sótti um og komst á
tveggja vikna túr með varðskipinu
Ægi sumarið 2006. „Ég fann strax
að þetta væri eitthvað sem ætti við
mig,“ segir hún. Aðspurð segir hún
það hafa verið tilviljun að hún fékk
starfið hjá stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar. Það var búið að ráða í
sumarafleysingar en sá aðili var
færður í aðra deild. „Það þurfti því
að hafa hröð handtök og finna nýj-
an sumarstarfsmann,“ segir Hall-
björg en þetta var vorið 2019. Haft
var samband við hana og henni
boðið viðtal. Hún sló til og byrj-
aði strax í þjálfun og hefur verið hjá
Landhelgisgæslunni síðan. Í stjórn-
stöð Landhelgisgæslunnar er sólar-
hrings vakt allt árið. Vaktirnar voru
nýverið styttar úr tólf tímum í átta
og þurfti þá að fjölga starfsfólki og
bæta við vaktstjóra. Leitað var til
Hallbjargar að taka að sér starfið.
Hamagangur á hóli
„Starfið í stjórnstöð Landhelg-
isgæslunnar er mjög fjölbreytt,
skemmtilegt og gefandi. Yfirleitt
eru þrír varðstjórar á vakt, þar af
einn vaktstjóri. Við vinnum öll sem
ein heild, en vaktstjórinn ber aukna
ábyrgð. Auk þess að vera sameig-
inleg leitar- og björgunarstöð er
stjórnstöð Landhelgisgæslunn-
ar fiskveiði- og landamæraeftirlits-
stöð,“ útskýrir Hallbjörg og bætir
við að starfið felist að stórum hluta
í fjarskiptasamskiptum á miðum og
í landi. Hún segir þau vera mik-
ið í talstöðvarsamskiptum við skip
að taka á móti útmeldingum skipa
þegar þau halda út á haf. „Því er
oft talsverður hamagangur á hóli,
sérstaklega á strandveiðinni, þegar
skipin leggja flest úr höfn á svipuð-
um tíma. Þá getum við verið með
nokkur skip að kalla á sama tíma,“
segi hún. „Ég hef mikla ánægju af
því að halda uppi góðum og um-
fram allt kurteisum samskiptum við
sjófarendur, stundum er röddin í
talstöðinni jafnvel einu mannlegu
samskiptin sem sjófarendur hafa
út á við og reglulega þurfum við
að óska eftir aðstoð þeirra ef önn-
ur skip eru í neyð. Hver dagur er
óútreiknanlegur og það bætast við
nýjar áskoranir og ný viðfangsefni á
degi hverju,“ segir Hallbjörg.
Mannslíf geta verið
í húfi
Annar stór hluti af starfinu í stjórn-
stöð Landhelgisgæslunnar felst í að
fylgjast með því hvort skip séu ekki
örugglega ofan sjávar og í góðu lagi.
„Flest skip senda frá sér staðsetn-
ingu í gegnum sjálfvirkan staðsetn-
ingarbúnað, en önnur færum við
handvirkt inn í vöktunarkerfið,“ út-
skýrir hún. Ef sjálfvirkt merki skil-
ar sé ekki þarf að hafa samband við
skipið til að tryggja að allt sé í góðu
lagi. „Stundum náum við ekki sam-
bandi við skipið í gegnum talstöð
eða síma og þurfum því oft að fara
allskonar krókaleiðir, jafnvel í mikla
rannsóknarvinnu til að ná sambandi.
En tíminn tikkar hratt í þessu,“ seg-
ir hún og bætir við að ef ekki ná-
ist að hafa samband við skipið inn-
an hálftíma er ræst út leit og björg-
un. „Forgangsmálin sem koma inn
á borð hjá okkur á stjórnstöðinni
eru yfirleitt þess eðlis að mannslíf
sé, eða gæti verið, í húfi. Því þarf oft
að hafa hraðar hendur og leysa mál-
in hratt og örugglega,“ segir hún en
bætir við að ekki hafi orðið banaslys
á sjó hér við Ísland í fjögur ár.
arg/ Ljósm. Landhelgisgæslan
Hallbjörg að störfum.
Hallbjörg er fyrsta konan til að
gegna starfi vaktstjóra í stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar
Hallbjörg Erla Fjeldsted er fyrsta konan til að gegna starfi vaktstjóra í stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar.
Óskum eftir starfsmanni
í afgreiðslu í Dótarí
Opnunartími er 13 til 18 virka daga
og 11 til 15 um helgar.
Áhugasamir hafið samband á netfanginu
smaprent@smaprent.is eða í síma 666-5110.
SMIÐJUVÖLLUM 32 •AKRANESI
WWW.DOTARI .IS•WWW.SMAPRENT.IS
Viltu vinna
hjá okkur?
ESI
. I .IS•DOTARI@DOTARI.IS
OPNUNARTÍMI
ALLA VIRKA DAGA 13-18
HELGAR 11-15
VERÐ FRÁ 1.990 KR.
Listavörur 1.290 KR
1.290 KR
990 KR
890 KR490 KR
890 KR
4.990 KR
3.990 KR
3.290 KR
890 KR