Skessuhorn - 15.09.2021, Síða 26
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202126
Pennagrein
undirritaðir hafa ávallt haft mikinn
áhuga á íþróttastarfi bæði sem þátt-
takendur, sjálfboðaliðar eða áhorf-
endur. Eftir mikið grúsk og heim-
ildavinnu áttuðum við okkur á því
að við vissum frekar lítið um sögu
íþrótta- og æskulýðsstarfs inn-
an Borgarbyggðar. Ýmsar íþróttir
hafa frá upphafi skipulagðra félaga
í héraði verið kenndar og iðkaðar
í Borgarbyggð en slíkt starf hófst í
byrjun 20. aldar. Árið 1912 er svo
ungmennasamband Borgarfjarð-
ar stofnað og sameinaði minni fé-
lög í nágrenninu undir einn hatt. Í
gegnum árin hafa ungmennafélög-
in staðið í mörgu allt frá garðrækt,
byggingu félags- og íþróttamann-
virkja, leiklist og til víðtæks íþrótta-
og menningarlífs í Borgarfirði.
umf. Skallagrímur er stofnað
árið 1916 og er það félag sem hefur
flestar undirdeildir og hæstan iðk-
endafjölda í Borgarbyggð. Skalla-
grímur hefur í dag fimm starfandi
deildir og þær eru; badminton-,
frjálsíþrótta-, körfuknattleiks-,
knattspyrnu- og leiklistardeild. Ein
deild mun bætast við í haust því ver-
ið er að endurvekja sunddeildina.
Við eigum margt afreksfólk bæði
í dag og fyrr í sögunni. Þar má
nefna Ólympíufarana okkar Írisi
grönfeldt, Einar Trausta Sveinsson
og mun fleira afreksíþróttafólk.
Körfuboltaáhugi í Borgarnesi
barst með bandaríska hersetuliðinu
sem skildi eftir sig körfuboltakörfur
sem heimamenn settu upp í fyrsta
leikfimisal Borgarnesinga, gamla
samkomuhúsinu, nú Óðali. Seinna
var svo keppt í leikfimihúsinu sem
byggt var við grunnskólann, sem
við kynntumst síðar sem smíða-
stofu grunnskóla Borgarness.
Körfuboltinn skipar stóran sess
í íþróttasögu og í hjarta Borgfirð-
inga. Skallagrímur hefur haft kar-
lalið í körfubolta síðan 1958 og
kvennalið síðan 1959. Kvennalið
Skallagríms vann íslensku deild-
ina árið 1963. Einnig má nefna
að í fyrsta kvennalandsliði Ís-
lands í körfubolta voru tvær kon-
ur úr Skallagrími valdar þær maría
Erla geirsdóttir og Hulda Karítas
Harðardóttir. Kvennaliðið okkar
sem var endurstofnað 2015 end-
urtók svo söguna og vann bikar-
keppnina árið 2020 og voru þá liðin
57 ár síðan síðasti stóri titill kom í
Fjósið góða. Eru teljandi á fingrum
annarrar handar fjöldi leikja frá því
að liðið var endurvakið sem undir-
ritaðir hafa misst af.
Karlalið Skallagríms hefur verið
í deild þeirra bestu og ,,næstbestu“
síðustu áratugi og undirritaðir hafa
mætt á ófáa leiki félagsins frá unga
aldri. Við höfum hjálpað til í sjálf-
boðaliðastarfi körfunnar sem t.d.
lukkudýr, tölfræðiritari, ritara-
borðsstarfsmenn, stjórnarmenn
sem og háværir stuðningsmenn.
Því miður eru aðstæður til iðkun-
ar körfubolta í Borgarbyggð löngu
sprungnar og stenst engin þeirra
fjögurra valla sem eru í héraðinu
nútímakröfur. Það er engan veginn
ásættanlegt fyrir íþrótt sem hefur
lengst af verið hornsteinn íþrótta-
iðkunar í héraðinu.
Skallagrímur á einnig glæstan fer-
il í fótbolta, voru knattspyrnumenn
í efstu deild árið 1997. Og hafa
unnið 3. deildina tvisvar; 1983 og
1994. En síðan 1997 hafa þeir stað-
ið í stað eða farið niður um deild öll
árin að undanskildu einu þegar far-
ið var úr 4. deild í þá þriðju.
Sumarið 1997 var í Borgarnesi
vígð ein glæsilegasta íþróttaaðstaða
á Íslandi og Landsmót umFÍ hald-
ið þar sama ár.
Fótboltaáhuginn var mikill í
kringum aldamótin 2000 og þess
má geta að mörg sumur í röð var
haldið stórt mót sem hét Búnaðar-
bankamótið. Það var risa verkefni
sem heppnaðist mjög vel og finnst
mörgum að það mætti endurskoða
að halda þetta mót því við höfum
aðstöðu og mannskap til að láta
mótið ganga upp.
Aðstaða til æfinga var og er mis-
góð í Borgarbyggð en við og jafn-
aldrar okkar byrjuðum á malar-
íþróttavelli Borgarness þar sem í
dag stendur menntaskóli Borgar-
fjarðar. Við eigum grasvelli í topp-
ástandi í þéttbýli Borgarbyggðar
og þrjá gervigrasvelli. En því mið-
ur eigum við engan innanhússvöll,
sem hentar nútímakröfum fyrir
fótbolta eða upphitaðan völl í fullri
stærð.
Þrátt fyrir að eiga fjögur misstór
íþróttahús þurfa börn, unglingar
og eldri iðkendur, fótbolta sem og
annarra íþrótta t.d. fimleika að fara
á Akranes til æfinga og spila sína
leiki þar þegar haustar og fram á
vor.
Við eigum mun fleiri deildir og
ungmennafélög undir hatti umSB
og þar má nefna:
Sunddeild Skallagríms hefur
verið í dvala síðustu ár en nýjustu
fregnir herma að góður hópur fólks
vilji endurvekja deildina og búið er
að ákveða aðalfund.
Badminton er enn æft í íþrótta-
miðstöðinni en erfitt er að fá æf-
ingatíma þar fyrir flestar gólf-
íþróttir vegna plássleysis og fjölda
æfinga sem tengjast körfunni á ein-
hvern hátt. Íþróttamiðstöðin er fyr-
ir löngu sprungin og það er virki-
lega erfitt að fá tíma vegna aðsókn-
ar körfuboltans og eru því oft not-
aðar aðrar íþróttamiðstöðvar t.d. á
Varmalandi og Kleppjárnsreykjum
undir íþróttir sem ekki fá tíma í
Borgarnesi.
Frjálsar íþróttir hafa verið í mik-
illi lægð undanfarin ár og það er
sárt að vita til þess að ekki skuli
vera hlúð betur að þessari grein
því mörgum krökkum og ungu
fólki hugnast ekki hópíþróttir en
gætu svo sannarlega fundið sig
og blómstrað í frjálsum íþróttum,
þá nýtist líka okkar frábæri frjáls-
íþróttavöllur í Borgarnesi betur.
Leikdeild Skallagríms er virk
og heldur árlega sýningar í Lyng-
brekku sem eru vel sóttar.
Það er mikil gróska í golfi í Borg-
arbyggð og eigum við í samfélaginu
marga glæsilega velli en samtals eru
fjórir golfvellir opnir í héraði á
þessu golftímabili.
Því miður er hins vegar hið vin-
sæla innanhúss aðstaða golfklúbbs
Borgarness lokuð af öryggisástæð-
um.
Nýlega stofnaða hestmanna-
félagið Borgfirðingur á glæsilegan
keppnisvöll og reiðhöll í toppstandi
og hefur tugi kílómetra af reiðveg-
um til útreiða og æfinga.
Skógræktarfélag Borgarfjarðar
hefur ræktað mikið land víða um
héraðið og er mikið sótt af íbúum
og ferðafólki.
Því miður erum við með nokkur
félög án aðstöðu sem eru samanlagt
með rúmlega 100+ félaga.
mótorsportfélag Borgarfjarðar
sem hefur því miður aldrei hafið
starfsemi eða fengið aðstöðu utan-
dyra í Borgarfirði.
Skotfélag Vesturlands er einnig
með innanhússaðstöðu, í Brákarey,
sem er lokuð og hafa skotmenn
ekki fengið land fyrir aðstöðu utan-
hús þrátt fyrir margar tillögur og
mikla vinnu félagsins.
Síðan er spennandi að sjá hvort
nýjar íþróttagreinar t.d. rafíþróttir,
dróna og frisbígolf nái hér fótfestu
og sæki um inngöngu í umSB í
framtíðinni.
Í dag eru innviðir til staðar fyr-
ir þessar greinar og eru a.m.k. tveir
frisbígolf vellir í Borgarbyggð, nóg
af landi og leikjatölva til á flestum
heimilum.
Í dag er ekki eins fjölbreytt
íþróttastarf og var þegar við vorum
í grunnskóla fyrir 15 árum síðan.
Fjölmennustu greinarnar voru að
venju, eins og í dag, karfa og fót-
bolti. En þegar rýnt er í tímaskrán-
ingu fyrir íþróttahúsið í Borgar-
nesi þá sést aðeins önnur mynd en
sú sem við höfum í dag. Því þá var
mun fjölbreyttara starf og þjálfun í
því húsi en nú er.
Við vorum mjög virkir í íþrótt-
um alla okkar æsku og prófuðum
við flestallar greinar sem voru í
boði. margir í Borgarnesi ákváðu
að einblína á frjálsar íþróttir. Þar
voru einnig fullt af góðum krökk-
um og unglingum sem bjuggu flest
í ,,sveitinni“ og þurftu að komast
í íþróttahúsið í Borgarnesi á eigin
vegum. Borgnesingar þurftu hins
vegar ekki að fara í önnur íþrótta-
hús eða velli til að sinna frjálsum.
Ljóst er að íbúar Borgarbyggð-
ar hafa lengi unnið þrekvirki, bæði
sem sjálfboðaliðar og þátttakendur
í íþrótta- og æskulýðsstarfi innan
sinna félaga. Einnig hafa sveitarfé-
lög og svo seinna Borgarbyggð lagt
mikinn tíma, vinnu og fjármuni til
að styðja við fjölbreytt íþróttastarf.
En hvað ætlum við að gera í dag og
hvert skal stefna í nánustu framtíð?
Eigum við að taka ,,sénsinn“ og
veðja á að nýtt fjölnota íþróttahús
muni laða að fleiri íbúa og styðja
þar með við íþróttir á svæðinu?
Hvers vegna geta sveitarfélög sem
eru jafnstór eða aðeins stærri stært
sig af glæsilegum íþróttahúsum
eins og t.d. fimleikahöllum, innan-
eða utanhúss upphituðum fótbolta-
mannvirkjum eða stórglæsilegum
fjölnotahúsum?
Ef það er hagstæðast að hafa allt
íþróttastarf á sama stað þá skiljum
við ekki af hverju það hefur ekki
verið lagt af stað í þá vegferð og
reynt með öllum ráðum að kaupa
eignir í kringum Íþróttahús Borg-
arness eða finna leiðir til að stækka
húsið með eða án uppfyllingar? Við
getum líka hugsað út fyrir kassann
og byggt þetta íþróttamannvirki
hvar sem er innan Borgarbyggðar
þar sem við höfum boðlega innviði
og nóg pláss eins og t.d. á Varma-
landi, Bifröst, Kleppjárnsreykjum
eða Hvanneyri.
Það virðist ganga mjög illa að
framkvæma þetta í Borgarnesi, af
hverju ekki að nota þá aðra þétt-
býlisstaði í sveitarfélaginu? Er
sanngjarnt að öll börn og ung-
menni sem eiga lögheimili utan
Borgarness þurfi að fara langa leið
til að stunda þá íþrótt sem þau hafa
áhuga á? geta börn og ungling-
ar ekki farið á fótboltaæfingu í ná-
grenni Borgarness með tómstunda-
rútu? Það er ekki nema 15 mínútna
keyrsla frá Íþróttamiðstöðinni til
Hvanneyrar.
Við viljum gera betur, endurvekj-
um þær íþróttir sem horfnar eru úr
samfélaginu okkar! Hvers vegna
eigum við eina glæsilegustu sund-
laugaraðstöðu landsins og stórkost-
legan frjálsíþróttavöll, sem fólk í út-
löndum myndi horfa öfundaraug-
um á, og á sama tíma er varla barn
sem æfir frjálsar eða sund í Borgar-
nesi enn sem komið er. Vantar hér
fjármuni sveitarfélagsins eða fleiri
hendur á dekk? Þarf að styðja bet-
ur við þjálfara eða auglýsa eftir fólki
að koma í Borgarbyggð og starfa
við þjálfun? Hvað þarf til og hverj-
ir eiga að verja sínum tíma og fjár-
munum til að halda starfinu uppi?
Okkur dreymir að sjá fleiri af
ungu kynslóðinni á sundæfingum,
kasta spjóti, stökkva í langstökks-
gryfjuna eða taka 100 metrana eins
og við gerðum í „gamla daga.“ Okk-
ur dreymir um að sjá fótboltann og
aðrar íþróttagreinar í toppaðstöðu.
Okkur dreymir um nýtt íþróttahús
og okkur dreymir um sátt um stað-
setningu þess milli íbúa þétttbýlis
og dreifbýlis.
Eiríkur Þór Theodórsson og
Skúli Guðmundsson.
Höfundar eru áhugamenn um
íþróttastarf í Borgarbyggð
Kjartan Skúlason, Skúli Guðmundsson, Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir og Eiríkur Þór Theodórsson. Myndin er tekin á Bjössaróló með íþróttasvæðið í Borgarnesi í baksýn.
Ljósm. tkþ.
Skuldum við ekki Skallagrími og öðrum
íþróttafélögum að gera betur?