Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 26
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202126 Pennagrein undirritaðir hafa ávallt haft mikinn áhuga á íþróttastarfi bæði sem þátt- takendur, sjálfboðaliðar eða áhorf- endur. Eftir mikið grúsk og heim- ildavinnu áttuðum við okkur á því að við vissum frekar lítið um sögu íþrótta- og æskulýðsstarfs inn- an Borgarbyggðar. Ýmsar íþróttir hafa frá upphafi skipulagðra félaga í héraði verið kenndar og iðkaðar í Borgarbyggð en slíkt starf hófst í byrjun 20. aldar. Árið 1912 er svo ungmennasamband Borgarfjarð- ar stofnað og sameinaði minni fé- lög í nágrenninu undir einn hatt. Í gegnum árin hafa ungmennafélög- in staðið í mörgu allt frá garðrækt, byggingu félags- og íþróttamann- virkja, leiklist og til víðtæks íþrótta- og menningarlífs í Borgarfirði. umf. Skallagrímur er stofnað árið 1916 og er það félag sem hefur flestar undirdeildir og hæstan iðk- endafjölda í Borgarbyggð. Skalla- grímur hefur í dag fimm starfandi deildir og þær eru; badminton-, frjálsíþrótta-, körfuknattleiks-, knattspyrnu- og leiklistardeild. Ein deild mun bætast við í haust því ver- ið er að endurvekja sunddeildina. Við eigum margt afreksfólk bæði í dag og fyrr í sögunni. Þar má nefna Ólympíufarana okkar Írisi grönfeldt, Einar Trausta Sveinsson og mun fleira afreksíþróttafólk. Körfuboltaáhugi í Borgarnesi barst með bandaríska hersetuliðinu sem skildi eftir sig körfuboltakörfur sem heimamenn settu upp í fyrsta leikfimisal Borgarnesinga, gamla samkomuhúsinu, nú Óðali. Seinna var svo keppt í leikfimihúsinu sem byggt var við grunnskólann, sem við kynntumst síðar sem smíða- stofu grunnskóla Borgarness. Körfuboltinn skipar stóran sess í íþróttasögu og í hjarta Borgfirð- inga. Skallagrímur hefur haft kar- lalið í körfubolta síðan 1958 og kvennalið síðan 1959. Kvennalið Skallagríms vann íslensku deild- ina árið 1963. Einnig má nefna að í fyrsta kvennalandsliði Ís- lands í körfubolta voru tvær kon- ur úr Skallagrími valdar þær maría Erla geirsdóttir og Hulda Karítas Harðardóttir. Kvennaliðið okkar sem var endurstofnað 2015 end- urtók svo söguna og vann bikar- keppnina árið 2020 og voru þá liðin 57 ár síðan síðasti stóri titill kom í Fjósið góða. Eru teljandi á fingrum annarrar handar fjöldi leikja frá því að liðið var endurvakið sem undir- ritaðir hafa misst af. Karlalið Skallagríms hefur verið í deild þeirra bestu og ,,næstbestu“ síðustu áratugi og undirritaðir hafa mætt á ófáa leiki félagsins frá unga aldri. Við höfum hjálpað til í sjálf- boðaliðastarfi körfunnar sem t.d. lukkudýr, tölfræðiritari, ritara- borðsstarfsmenn, stjórnarmenn sem og háværir stuðningsmenn. Því miður eru aðstæður til iðkun- ar körfubolta í Borgarbyggð löngu sprungnar og stenst engin þeirra fjögurra valla sem eru í héraðinu nútímakröfur. Það er engan veginn ásættanlegt fyrir íþrótt sem hefur lengst af verið hornsteinn íþrótta- iðkunar í héraðinu. Skallagrímur á einnig glæstan fer- il í fótbolta, voru knattspyrnumenn í efstu deild árið 1997. Og hafa unnið 3. deildina tvisvar; 1983 og 1994. En síðan 1997 hafa þeir stað- ið í stað eða farið niður um deild öll árin að undanskildu einu þegar far- ið var úr 4. deild í þá þriðju. Sumarið 1997 var í Borgarnesi vígð ein glæsilegasta íþróttaaðstaða á Íslandi og Landsmót umFÍ hald- ið þar sama ár. Fótboltaáhuginn var mikill í kringum aldamótin 2000 og þess má geta að mörg sumur í röð var haldið stórt mót sem hét Búnaðar- bankamótið. Það var risa verkefni sem heppnaðist mjög vel og finnst mörgum að það mætti endurskoða að halda þetta mót því við höfum aðstöðu og mannskap til að láta mótið ganga upp. Aðstaða til æfinga var og er mis- góð í Borgarbyggð en við og jafn- aldrar okkar byrjuðum á malar- íþróttavelli Borgarness þar sem í dag stendur menntaskóli Borgar- fjarðar. Við eigum grasvelli í topp- ástandi í þéttbýli Borgarbyggðar og þrjá gervigrasvelli. En því mið- ur eigum við engan innanhússvöll, sem hentar nútímakröfum fyrir fótbolta eða upphitaðan völl í fullri stærð. Þrátt fyrir að eiga fjögur misstór íþróttahús þurfa börn, unglingar og eldri iðkendur, fótbolta sem og annarra íþrótta t.d. fimleika að fara á Akranes til æfinga og spila sína leiki þar þegar haustar og fram á vor. Við eigum mun fleiri deildir og ungmennafélög undir hatti umSB og þar má nefna: Sunddeild Skallagríms hefur verið í dvala síðustu ár en nýjustu fregnir herma að góður hópur fólks vilji endurvekja deildina og búið er að ákveða aðalfund. Badminton er enn æft í íþrótta- miðstöðinni en erfitt er að fá æf- ingatíma þar fyrir flestar gólf- íþróttir vegna plássleysis og fjölda æfinga sem tengjast körfunni á ein- hvern hátt. Íþróttamiðstöðin er fyr- ir löngu sprungin og það er virki- lega erfitt að fá tíma vegna aðsókn- ar körfuboltans og eru því oft not- aðar aðrar íþróttamiðstöðvar t.d. á Varmalandi og Kleppjárnsreykjum undir íþróttir sem ekki fá tíma í Borgarnesi. Frjálsar íþróttir hafa verið í mik- illi lægð undanfarin ár og það er sárt að vita til þess að ekki skuli vera hlúð betur að þessari grein því mörgum krökkum og ungu fólki hugnast ekki hópíþróttir en gætu svo sannarlega fundið sig og blómstrað í frjálsum íþróttum, þá nýtist líka okkar frábæri frjáls- íþróttavöllur í Borgarnesi betur. Leikdeild Skallagríms er virk og heldur árlega sýningar í Lyng- brekku sem eru vel sóttar. Það er mikil gróska í golfi í Borg- arbyggð og eigum við í samfélaginu marga glæsilega velli en samtals eru fjórir golfvellir opnir í héraði á þessu golftímabili. Því miður er hins vegar hið vin- sæla innanhúss aðstaða golfklúbbs Borgarness lokuð af öryggisástæð- um. Nýlega stofnaða hestmanna- félagið Borgfirðingur á glæsilegan keppnisvöll og reiðhöll í toppstandi og hefur tugi kílómetra af reiðveg- um til útreiða og æfinga. Skógræktarfélag Borgarfjarðar hefur ræktað mikið land víða um héraðið og er mikið sótt af íbúum og ferðafólki. Því miður erum við með nokkur félög án aðstöðu sem eru samanlagt með rúmlega 100+ félaga. mótorsportfélag Borgarfjarðar sem hefur því miður aldrei hafið starfsemi eða fengið aðstöðu utan- dyra í Borgarfirði. Skotfélag Vesturlands er einnig með innanhússaðstöðu, í Brákarey, sem er lokuð og hafa skotmenn ekki fengið land fyrir aðstöðu utan- hús þrátt fyrir margar tillögur og mikla vinnu félagsins. Síðan er spennandi að sjá hvort nýjar íþróttagreinar t.d. rafíþróttir, dróna og frisbígolf nái hér fótfestu og sæki um inngöngu í umSB í framtíðinni. Í dag eru innviðir til staðar fyr- ir þessar greinar og eru a.m.k. tveir frisbígolf vellir í Borgarbyggð, nóg af landi og leikjatölva til á flestum heimilum. Í dag er ekki eins fjölbreytt íþróttastarf og var þegar við vorum í grunnskóla fyrir 15 árum síðan. Fjölmennustu greinarnar voru að venju, eins og í dag, karfa og fót- bolti. En þegar rýnt er í tímaskrán- ingu fyrir íþróttahúsið í Borgar- nesi þá sést aðeins önnur mynd en sú sem við höfum í dag. Því þá var mun fjölbreyttara starf og þjálfun í því húsi en nú er. Við vorum mjög virkir í íþrótt- um alla okkar æsku og prófuðum við flestallar greinar sem voru í boði. margir í Borgarnesi ákváðu að einblína á frjálsar íþróttir. Þar voru einnig fullt af góðum krökk- um og unglingum sem bjuggu flest í ,,sveitinni“ og þurftu að komast í íþróttahúsið í Borgarnesi á eigin vegum. Borgnesingar þurftu hins vegar ekki að fara í önnur íþrótta- hús eða velli til að sinna frjálsum. Ljóst er að íbúar Borgarbyggð- ar hafa lengi unnið þrekvirki, bæði sem sjálfboðaliðar og þátttakendur í íþrótta- og æskulýðsstarfi innan sinna félaga. Einnig hafa sveitarfé- lög og svo seinna Borgarbyggð lagt mikinn tíma, vinnu og fjármuni til að styðja við fjölbreytt íþróttastarf. En hvað ætlum við að gera í dag og hvert skal stefna í nánustu framtíð? Eigum við að taka ,,sénsinn“ og veðja á að nýtt fjölnota íþróttahús muni laða að fleiri íbúa og styðja þar með við íþróttir á svæðinu? Hvers vegna geta sveitarfélög sem eru jafnstór eða aðeins stærri stært sig af glæsilegum íþróttahúsum eins og t.d. fimleikahöllum, innan- eða utanhúss upphituðum fótbolta- mannvirkjum eða stórglæsilegum fjölnotahúsum? Ef það er hagstæðast að hafa allt íþróttastarf á sama stað þá skiljum við ekki af hverju það hefur ekki verið lagt af stað í þá vegferð og reynt með öllum ráðum að kaupa eignir í kringum Íþróttahús Borg- arness eða finna leiðir til að stækka húsið með eða án uppfyllingar? Við getum líka hugsað út fyrir kassann og byggt þetta íþróttamannvirki hvar sem er innan Borgarbyggðar þar sem við höfum boðlega innviði og nóg pláss eins og t.d. á Varma- landi, Bifröst, Kleppjárnsreykjum eða Hvanneyri. Það virðist ganga mjög illa að framkvæma þetta í Borgarnesi, af hverju ekki að nota þá aðra þétt- býlisstaði í sveitarfélaginu? Er sanngjarnt að öll börn og ung- menni sem eiga lögheimili utan Borgarness þurfi að fara langa leið til að stunda þá íþrótt sem þau hafa áhuga á? geta börn og ungling- ar ekki farið á fótboltaæfingu í ná- grenni Borgarness með tómstunda- rútu? Það er ekki nema 15 mínútna keyrsla frá Íþróttamiðstöðinni til Hvanneyrar. Við viljum gera betur, endurvekj- um þær íþróttir sem horfnar eru úr samfélaginu okkar! Hvers vegna eigum við eina glæsilegustu sund- laugaraðstöðu landsins og stórkost- legan frjálsíþróttavöll, sem fólk í út- löndum myndi horfa öfundaraug- um á, og á sama tíma er varla barn sem æfir frjálsar eða sund í Borgar- nesi enn sem komið er. Vantar hér fjármuni sveitarfélagsins eða fleiri hendur á dekk? Þarf að styðja bet- ur við þjálfara eða auglýsa eftir fólki að koma í Borgarbyggð og starfa við þjálfun? Hvað þarf til og hverj- ir eiga að verja sínum tíma og fjár- munum til að halda starfinu uppi? Okkur dreymir að sjá fleiri af ungu kynslóðinni á sundæfingum, kasta spjóti, stökkva í langstökks- gryfjuna eða taka 100 metrana eins og við gerðum í „gamla daga.“ Okk- ur dreymir um að sjá fótboltann og aðrar íþróttagreinar í toppaðstöðu. Okkur dreymir um nýtt íþróttahús og okkur dreymir um sátt um stað- setningu þess milli íbúa þétttbýlis og dreifbýlis. Eiríkur Þór Theodórsson og Skúli Guðmundsson. Höfundar eru áhugamenn um íþróttastarf í Borgarbyggð Kjartan Skúlason, Skúli Guðmundsson, Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir og Eiríkur Þór Theodórsson. Myndin er tekin á Bjössaróló með íþróttasvæðið í Borgarnesi í baksýn. Ljósm. tkþ. Skuldum við ekki Skallagrími og öðrum íþróttafélögum að gera betur?

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.