Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 38
mIðVIKudAguR 22. SEpTEmBER 202138
Hvað er uppáhalds
í þínu lífi?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Eyrún Einarsdóttir
„Fjölskyldan.”
Auður Sigurðardóttir
„Eyrún er uppáhalds.“
Jón Guðmundsson
„Samvera með fjölskyldunni.“
Áslaug Guðmundsdóttir
„Að vera í góðra vina hópi.“
Sóley Rut Jónsdóttir
„Að eyða tíma með fjölskyld-
unni.“
Skagamenn skelltu sér í Breið-
holtið síðastliðinn miðvikudag og
léku gegn liði ÍR í 8-liða úrslitum
mjólkurbikarsins. mikið var und-
ir í leiknum því Skagamenn urðu
síðast bikarmeistarar árið 2003 og
hafa ekki síðan þá komist lengra en
í 8-liða úrslit. ÍR-ingar voru hins
vegar að jafna sinn besta árangur í
bikarnum og þeir virtust staðráðn-
ir í því að komast lengra og byrj-
uðu leikinn af krafti. Strax á fyrstu
mínútu áttu þeir skalla rétt yfir
mark gestanna eftir hornspyrnu og
voru miklu sprækari fyrsta kort-
erið í leiknum. Það bar árangur á
17. mínútu þegar Reynir Haralds-
son átti góða fyrirgjöf beint á koll-
inn á pétri Hrafni Friðrikssyni sem
hamraði hann í netið. Eftir þetta
bættu Skagamenn aðeins í og fengu
nokkur hálffæri en á lokamínútu
fyrri hálfleiks kom Skagamaðurinn
Þórður Þorsteinn Þórðarson öllum
að óvörum. Hann fékk boltann fyr-
ir utan teig, tók svokallaðan Zid-
ane snúning, sólaði þrjá í leiðinni
og skoraði með góðu skoti í fjær-
hornið. Ansi vel gert hjá Þórði og
því jafnt í hálfleik 1-1.
Það var ljóst frá fyrstu mínútu
seinni hálfleiks að Skagamenn voru
meira tilbúnir í baráttuna um bik-
arinn og eftir tíu mínútna leik var
gísli Laxdal unnarsson búinn að
koma þeim yfir með góðu skoti
utan teigs. Skömmu síðar hefði
Ísak Snær Þorvaldsson nánast get-
að gulltryggt sigurinn en skaut
fram hjá fyrir opnu marki. ÍR-ingar
reyndu hvað þeir gátu til að jafna
leikinn en sóknir þeirra voru mátt-
litlar og lítil ógn af þeim. Það var
síðan guðmundur Tyrfingsson sem
innsiglaði sigur Skagamanna undir
lok leiksins þegar hann fékk bolt-
ann ókeypis frá varnarmanni ÍR,
komst fram hjá markmanninum og
lagði boltann í markið. Vel gert hjá
Selfyssingnum enda fagnaði hann
vel og innilega markinu.
Það var síðan dregið í undanúr-
slitum mjólkurbikarsins eftir leiki
kvöldsins og þar fengu Skagamenn
heimaleik gegn Keflavík og Vestri
frá Ísafirði, sem sló út Íslandsmeist-
ara Vals, tekur á móti bikarmeist-
urum Víkings frá Reykjavík. Leikur
Skagamanna og Keflvíkinga verð-
ur laugardaginn 2. október klukk-
an 14 á Akranesvelli og daginn eft-
ir mætast Skagamennirnir Jón Þór
Hauksson og Arnar gunnlaugsson,
þjálfarar Vestra og Víkings, á Olís-
vellinum á Ísafirði klukkan 14.
vaks
Það er ljóst eftir leiki gærkvölds-
ins í mjólkurbikar karla í knatt-
spyrnu hvaða lið mætast í undan-
úrslitunum í byrjun október. Þar
mætast lið Skagamanna og Kefl-
víkinga annars vegar og lið Vestra
og Víkings Reykjavíkur hins veg-
ar. Það er skemmtileg staðreynd að
þrír þjálfarar þessara undanúrslita-
liða eru Skagamenn í húð og hár.
Það eru þeir Jóhannes Karl guð-
jónsson þjálfari Skagamanna, Jón
Þór Hauksson þjálfari Vestra á Ísa-
firði og Arnar gunnlaugsson þjálf-
ari Víkings. Þá má einnig geta þess
að annar af þjálfurum Keflvík-
inga, Sigurður Ragnar Eyjólfsson,
er einnig með tengingu við Akra-
nes. Hann lék með Skagamönn-
um í Landsímadeildinni árin 1998
og 1999 og skoraði átta mörk í 18
leikjum. Hann mætti síðan aftur
sex árum síðar í Landsbankadeild-
ina með Skagamönnum og skor-
aði þá fimm mörk í 15 leikjum og
Nota Bene, hann er enn skráður
sem leikmaður ÍA!
Skagatengingin er því ansi sterk
þetta árið í mjólkurbikarnum og
nánast öruggt má telja að Skaga-
maður muni lyfta bikarnum í ár.
vaks
meistaraflokkur ÍA varð í tíunda
og neðsta sæti Lengjudeildarinnar í
knattspyrnu í kvennaflokki í sumar
með 15 stig í 18 leikjum, vann fjóra
leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði
ellefu leikjum. Það er því ljóst að ÍA
leikur í 2. deild kvenna á Íslands-
mótinu á næsta tímabili og er það
í fyrsta skipti í sögu kvennaknatt-
spyrnunnar á Akranesi að það ger-
ist. Skessuhorn heyrði í Aroni Ými
péturssyni sem var einn af þrem-
ur í þjálfarateymi Skagakvenna á
þessu tímabili. Aðspurður hvort
það hafi ekki verið mikið áfall, fyr-
ir hann sem þjálfara og stelpurnar,
að falla í sumar segir Aron Ýmir að
sjálfsögðu hafi það verið gríðarlegt
áfall þegar það kom í ljós að það
yrði þeirra hlutskipti að falla niður
í 2. deild. Hann segir enn fremur
að þegar maður hafi lagt líf og sál í
eitthvað verkefni og verkefnið mis-
tekist að þá sé það alveg skelfileg
tilfinning og það eigi bæði við um
þjálfarana sem og stelpurnar.
Hvernig er staðan á liðinu fyr-
ir næsta tímabil? Sérðu fram á að
það verði svipaður mannskapur
eða verða einhverjar breytingar á
liðinu? „Eins og alltaf að þá verða
væntanlega einhverjar breytingar
á hópnum á milli ára en þó engar
staðfestar eins og staðan er núna.
Við teljum samt sem áður meist-
araflokk kvenna vera á fínum stað
leikmannalega séð enda eru marg-
ar mjög efnilegar stelpur við það að
brjóta sér leið inn í liðið og munu
klárlega fá tækifæri til að láta ljós
sitt skína á næsta tímabili ef þær
halda áfram að leggja hart að sér.“
Aron segir einnig að í hópnum séu
stórir karakterar sem munu leiða
nýtt lið aftur á þann stað sem áður
var og að leikmenn og þjálfarar
komi og fari en liðið verði áfram til
staðar þrátt fyrir ýmsar svartsýnis-
spár á samfélagsmiðlum og enginn
sé ómissandi.
Óafsakanlegt að falla
Nú voruð þið framan af móti á
góðum stað í deildinni en soguðust
svo í fallbaráttuna þegar líða tók á
mótið. Ertu með einhverja skýr-
ingu á því? „Lengjudeildin í ár var
mjög sterk, liðin jöfn og mikið um
óvænt úrslit. En það breytir þeirri
staðreynd ekki að það var algjör-
lega óafsakanlegt að falla. Þegar lið
fellur er það ekki ein skýring eða
ástæða heldur fullt af hlutum, bæði
þeim sem hægt er að stjórna og svo
þeim sem ekki er hægt að stjórna.
Leikmenn, þjálfarar og aðrir í
kringum liðið gerðu fullt af mis-
tökum en það þarf bara að horfast
í augu við þau mistök, læra af þeim
og halda áfram.“ Aron Ýmir segir
varðandi þjálfaramálin hjá liðinu
að það sé ljóst að hann og Björn
Sólmar Valgeirsson verði ekki
áfram með liðið en þeir muni báð-
ir vinna í fullu starfi sem þjálfarar
hjá ÍA í öðrum verkefnum. Þegar
þessu er svarað hafi hann ekki hug-
mynd um hvernig staðan á þjálf-
aramálunum sé.
Burtséð frá gengi liðsins, hvern-
ig fannst þér stelpurnar standa sig
í sumar heilt yfir? „Eitt af stóru
vandamálunum hjá okkur í sumar
var stöðugleikinn. Við áttum skín-
andi frammistöðu í nokkrum leikj-
um en í kjölfarið kom oftar en ekki
slök frammistaða, þá bæði hjá ein-
staklingum og hjá liðinu. Við viss-
um af þessu vandamáli og reyndum
eins og við gátum að finna lausnir
en því miður tókst það ekki.“ Aron
Ýmir segir að lokum að þegar lið-
ið spilaði vel þá sýndu stelpurnar
hvað þær eru ótrúlega góðar í fót-
bolta og skipa frábært lið: „Lykil-
atriði er að finna lausnir til þess að
þessi góða frammistaða komi oftar
og sé stöðugri, ef það tekst þá mun
þessi hópur fljúga upp úr 2. deild-
inni árið 2022. Ég er klár á því.“
vaks
Komnir í undanúrslit
í Mjólkurbikarnum
Skagamenn setja mark
sitt á Mjólkurbikarinn
Þjálfarar kvennaliðs Skagamanna í sumar, Björn Sólmar, Aron Ýmir og Unnar Þór Garðarsson sem lét af störfum um miðjan
ágúst.
Vandamálið í sumar var stöðugleikinn