Skessuhorn


Skessuhorn - 29.09.2021, Qupperneq 4

Skessuhorn - 29.09.2021, Qupperneq 4
MiðVikudaGur 29. sEpTEMBEr 20214 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Ég tel um svipað leiti og bændur fóru til morgunmjalta á sunnudaginn lágu fyrir niðurstöður úr fyrstu talningu atkvæða í kosningum til alþingis. atkvæða­ skipting var nokkuð spennandi á laugardagskvöldið og framan af nóttu, en fljótlega varð þó ljóst hver vilji landsmanna myndi verða. Þeir völdu að tryggja sitjandi ríkisstjórn í sessi. samandregið bætti stjórnin við sig nokkr­ um þingsætum, Miðflokkurinn galt afhroð og landsmenn ákváðu að sósíal­ istinn sinn héti inga en ekki Gunnar. aðrir flokkar fengu minna eða svip­ að fylgi en þeim hafði verið spáð. samtals munu átta flokkar eiga fulltrúa á alþingi Íslendinga. Eftir hádegi á sunnudaginn hófst síðan atburðarás sem, þegar þetta er skrifað, sér ekki fyrir endann á. Ákveðið var að endurtelja atkvæði í Norð­ vesturkjördæmi. Landskjörstjórn hafði verið með vangaveltur um að þar sem litlu munaði á fylgi væri e.t.v. ástæða til að endurtelja í tveimur kjör­ dæmum; suður­ og Norðvestur. Yfirkjörstjórn í Borgarnesi brást hratt við og boðaði illa­ eða ósofið talningarfólkið til vinnu að nýju. Hvort sem taln­ ingarfólk var betur vakandi þá, eða ekki, varð niðurstaðan sú að ekkert framboðanna tíu fékk sama atkvæðafjölda eftir endurtalningu og í fyrri um­ ferð. Ekki geri ég mér grein fyrir hverju þetta misræmi sætti, en vafalítið hefur ekki verið heiglum hent að flokka atkvæði í fremur daufri lýsingu gamla ballhússins. Yfirkjörstjórn í suðurkjördæmi tók síðan á mánudaginn ákvörðun um að endurtelja öll atkvæði eftir að helmingur flokka hafði ósk­ að eftir því. allt var upp á punkt og prik þar. Ég tek það fram að þetta er skrifað á þriðjudegi. algjörlega er óvíst á þessari stundu hverjir eftirmálar verða af beiðni um endurtalningu atkvæða. Endurtalningin sjálf er sögð orka tvímælis en ekki síst varðveisla þeirra í sex tíma frá morgni sunnudags og fram yfir hádegi. Lögregla rannsakar það. Þrír slæmir kostir eru í stöðunni og mun væntanlega alþingi þurfa að kveða úr um næstu skref. spaugilegt að það er nýkjörið alþingi, setið af einmitt því fólki sem óvissan stendur um. Þessir þrír kostir eru í fyrsta lagi sá að fyrsta talning atkvæða í Norðvesturkjördæmi verði látin gilda, þrátt fyrir að fyrir liggi að hún var ekki sérlega nákvæm. annar kostur er sá að ef lögreglurannsókn leiðir í ljós að ekki hafi verið átt við kjörgögnin í talning­ arhlénu á sunnudaginn að niðurstaða endurtalningar gildi. Loks er þriðji kosturinn sá að kosið verði að nýju til alþingis í Norðvesturkjördæmi. Þá líklega innan fjögurra vikna. Ef sú verður raunin, sem ég er hreint ekki að óska mér, verður landið stjórnlaust í meira en mánuð. Það er grafalvarlegt að hægt sé að deila um réttmæti talningar á atkvæð­ um í alþingiskosningum. Mögulega hafa ekki verið uppfyllt ákvæði laga um vörslu atkvæða, mögulega hefur ekki bara eitt eða tvennt farið úrskeiðis. Tíminn mun leiða það í ljós. Þegar litlu munar á fylgi þeirra sem tæpast standa er hins vegar í hæsta máta eðlilegt að þeir geri þá skýlausu kröfu að framkvæmd talningar og réttmæti niðurstöðunnar þar af leiðandi, verði hafin yfir allan vafa. Ef kjósa þarf að nýju megum við búast við afar ólíkri niðurstöðu en í kosningunum um helgina. Tvímælalaust mun ákvörðun einhverra þeirra 21.548 sem á kjörskrá eru byggjast á niðurstöðu síðustu kosningar. Hægt er að gefa sér að niðurstaðan verður alls ekki sú sama og eftir síðustu helgi. Á það hefur verið bent að kosningar með gömlu fyrirkomulagi séu barn síns tíma. Þar sem krossað er á pappírsseðil, atkvæði sett í kassa og ekið með það þvert yfir landið til talningar, óháð veðri og færð. Árið er 2021 og maður skyldi ætla að nú væri til sú tækni sem gerði það mögulegt að kjósa rafrænt án þess að rekjanleiki atkvæða verði til staðar. Ef kjósa þarf aftur eftir nokkrar vikur verður þó ekki hægt að breyta þessu í tæka tíð. En á fjórum árum ætti það að vera hægt. Magnús Magnússon réttað var í Þæfusteinsrétt í snæ­ fellsbæ um næstsíðustu helgi í ágætis veðri og voru fjárskil með ágætum. Það urðu fagnaðarfund­ ir hjá Vigdísi Júlíu Viðarsdótt­ ur og heimalningnum agnarögn sem fór á fjall í vor. Var hún frek­ ar smá þegar hún fór á fjallið og sagði sólveig Bláfeld agnarsdóttir að þau hefðu ekki búist neitt frek­ ar við því að hún hefði sumarið af á fjallinu. agnarögn kom þó öllum á óvart í réttunum. Hún var held­ ur ekki lengi að finna mannfólkið sitt í réttinni og urðu heldur bet­ ur fagnaðarfundir eins og sjá má á myndinni. þa Á fundi sveitarstjórnar í dalabyggð 12. ágúst síðastliðinn var samþykkt að hefja undirbúning fyrir alút­ boð á nýjum íþróttamannvirkjum í Búðardal. Í lok síðustu viku var auglýst eftir þátttakendum í for­ vali fyrir þátttöku í alútboðinu. að sögn kristjáns sturlusonar sveitar­ stjóra var ákveðið að byrja á forvali svo sveitarstjórn fái hugmynd um hversu mikill áhugi er á verkinu. Á fundi sveitarstjórnar 9. september síðastliðinn var lagt fram minnis­ blað frá starfshópi í undirbúningi íþróttamannvirkja. Þar sem segir að í forvalsgögnum skuli gera ráð fyrir að verktaki úvegi allt hönn­ unarteymið og eru umsækjendur beðnir um að taka afstöðu til þess hvort 600 milljóna króna mark sé raunhæft í núverandi tillögu. Á íþróttamiðstöðin að hafa íþróttasal, þjónustukjarna með búningsklefum, lyftingasal og úti­ sundlaug. Í auglýsingunni segir að íþróttamiðstöðin eigi að vera um 1.300 fm að stærð og er þá úti­ svæði með sundlaugarkeri, vaðlaug og heitum pottum um 200 fm. Áætlað er að starfsemin verði öll á einni hæð. „Þá verður gert ráð fyrir lagnarými sundlaugar í kjallara og tæknirými á 2. hæð húss. Í húsinu verður hægt að iðka ýmsar íþrótt­ ir, bæði æfingar og keppni en mið­ að er við að í því verði mætt kröf­ um til keppni í körfubolta,“ segir í auglýsingunni frá dalabyggð. að­ spurður segir kristján sveitarstjóri það eiga eftir að koma í ljós hvern­ ig forvalið fari áður en nákvæm tímalína fyrir verkið gæti legið fyr­ ir. Í forvalsgögnunum eru sett fram drög að tímalínu og samkvæmt henni ætti vali á þátttakendum í alútboði að ljúka 22. október næst­ komandi og alútboðsgögn að vera afhent verktökum 18. nóvember. Tilboðum í verkið á að skila ekki síðar en 7. janúar næstkomandi og áætlað er að undirritun verksamn­ ings verði 21. janúar og að fram­ kvæmdir hefjist þá. „En þetta er þó allt með fyrirvara um hvað kemur út úr forvalinu og ákvarðanir sveit­ arstjórnar í framhaldi af því,“ segir kristján. „Verkkaupi hefur sett bygging­ unni og starfsemi hennar sjálf­ bærnimarkmið sem mikilvægt er að fylgja eftir. Lögð er megináhersla á að verkið verði unnið á sem hag­ kvæmastan hátt,“ segir í auglýs­ ingunni. umsókn skal skila með tölvupósti með öllum umbeðnum gögnum fyrir kl. 16 þriðjudaginn 12. október næstkomandi. For­ valsgögnin verða afhent að ósk umsækjenda í gegnum tölvupóst, kristjan@dalir.is. Nánari upplýs­ ingar er að finna á vef dalabyggð­ ar. arg/ Ljósm. sm appelsínugul viðvörun var í gildi á öllu Vesturlandi þegar skessuhorn fór í prentun síðdegis í gær. Við Breiðafjörð var norðvestan 20­28 m/s, éljagangur með skafrenningi og lélegu skyggni. auk þess var var­ að við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda. Á sunnanverðu snæ­ fellsnesi var ofsaveður og fóru vind­ hviður yfir 45 m/s. Heldur hæg­ ari vindur var á öðrum svæðum við Faxaflóa en þó sumsstaðar hvasst, éljagangur og lélegt skyggni. Ekk­ ert ferðaveður var víða í landshlut­ anum og var Fróðárheiði, Bröttu­ brekku og Holtavörðuheiði lok­ að vegna óveðurs. Björgunarsveit­ ir voru í gær kallaðar til aðstoðar ökumönnum á Holtavörðuheiði. Þá var færð víðar slæm, sérstaklega á sunnanverðu snæfellsnesi og í dölum. Ekki var komið í ljós hvort tjón hafi orðið af völdum veðursins þegar skessuhorn fór í prentun síð­ degis í gær. arg/ Ljósm. tfk. Forval um byggingu íþróttamannvirkja í Búðardal Gunnar Hjálmarsson at- hugar landfestar á bát sínum í Grundarfjarðarhöfn áður en óveðrið skall á í gær. Stormur gekk yfir Vesturland í gær Sigurborg SH 12 heldur til veiða og lét áhöfnin óveðrið ekki á sig fá. Agnarögn skilaði sér af fjalli

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.