Skessuhorn - 29.09.2021, Blaðsíða 15
MiðVikudaGur 29. sEpTEMBEr 2021 15
Safnahús Borgarfjarðar
Myndlistarsýning Jóhönnu L. Jónsdóttur verður opnuð í Hallsteinssal
laugardaginn 2. október n.k. kl. 13.00. Myndirnar sem Jóhanna sýnir eru
fantasíur sem fæðst hafa í huga hennar þegar hún starir á auðan strigann
og umbreytir honum. í verkum hennar er að finna innblástur frá
árstíðabundnum litum og birtu í íslenskri náttúru.
Allir velkomnir. Opið verður til kl. 15:00 á opnunardaginn.
Gestir eru beðnir að virða gildandi sóttvarnarreglur.
Verði breytingar á fyrirkomulagi verður það kynnt á www.safnahus.is.
Sýningin er í Hallsteinssal í Safnahúsinu að
Bjarnarbr. 4-6 í Borgarnesi. Sýningin verður opin kl.
13:00-15:00 á opnunardaginn en eftir það 13:00-
18:00 virka daga. Ókeypis aðgangur.
433 7200 - www.safnahus.is
Sýning á verkum Jóhönnu L. Jónsdóttur
02.10. - 04.11. 2021
Fantasíur - sýningaropnun
Það var góð stemning á mánudaginn
þegar Félagsstarf akraneskaupstað
ar flutti formlega í nýja húsnæðið á
dalbraut 4. Þar fór fram kynning á
starfseminni sem verður í vetur og
þar má nefna almenna handavinnu,
föndurnámskeið ásamt ýmsum nýj
ungum sem kynntar verða síðar. að
sögn ingigerðar Guðmundsdóttur
hjá akraneskaupstað verður vetr
arstarfið opið alla virka daga milli
klukkan 10 og 16 og segir hún að
allir séu velkomnir og hvetur fólk
til að mæta og kynna sér starfsem
ina. Mjög góð mæting var á kynn
inguna, eða vel yfir 80 manns. Boð
ið var upp á kaffi og léttar veitingar
sem fóru vel í mannskapinn.
vaks/ Ljósm. ki.
Nemendur á yngsta stigi í Grunn
skóla snæfellsbæjar á Hellissandi
skelltu sér í árlega berjaferð sína
föstudaginn 10. september í góðu
haustveðri. Farið var með rútu út
fyrir snæfellsjökul, stoppað á sama
stað eins og svo oft áður á móts
við saxhól. Þar er gott berjaland
og aðstæður góðar fyrir ungt ber
jatínslufólk. Berjaspretta á landinu
hefur verið misjöfn en fullt var af
berjum eins og börnin orðuðu það.
Þriðji bekkur mun svo sulta úr sín
um berjum og fara með sultu heim
en bæði berjaferðin og sultugerð
in er hluti af námskrá skólans í Átt
hagafræði.
þa
Fyrir tveimur árum ákvað rótarý
klúbbur Borgarness að standa fyr
ir atvinnusýningu í Hjálmakletti
í Borgarnesi. Vegna heimsfarald
ursins varð hins vegar ekkert af
sýningunni á þeim tíma en nú er
blásið til sóknar að nýju og verður
viðburðurinn 30. október næst
komandi. „Markmið verkefnisins
er sem fyrr að gefa rekstraraðilum
á starfssvæði klúbbsins tækifæri til
að kynna starfsemi sína á heima
vettvangi og vekja þannig athygli
samfélagsins á hinni fjölbreyttu
starfsemi sem fer fram á svæðinu.
Jafnframt og ekki síður að efla
samstöðu rekstraraðila á þeirra
heimasvæði,“ segir í tilkynn
ingu frá klúbbnum. Í tengslum
við fyrirtækjakynninguna verður
haldin málstofa undir yfirskrift
inni „Matvælalandið Ísland“ með
áherslu á loftslagsmál og kolefn
isspor.
Væntanlegir þátttakendur geta
fengið nánari upplýsingar hjá Bir
nu G. konráðsdóttur í síma 864
5404 og Margréti Vagnsdóttur í
síma 8951535.
mm
Askalind 3,
201
Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Föst.
10 —17
Laugardaga
11—15
HAUSTTILBOÐ
20% afsláttur af öllum
innréttingum út október
Félagsstarf Akraneskaupstaðar flutt á Dalbraut
Svipmynd frá fyrstu atvinnusýningunni sem klúbburinn stóð fyrir.
Ljósm. úr safni/mm.
Rótarýklúbburinn stefnir á
atvinnusýningu í Borgarnesi
Fóru í sína árlegu berjaferð