Skessuhorn - 29.09.2021, Blaðsíða 12
MiðVikudaGur 29. sEpTEMBEr 202112
Fyrri talningu atkvæða í Norðvest
urkjördæmi lauk á áttunda tímanum
á sunnudagsmorgun. Þegar leið á
daginn kom í ljós skekkja sem leiddi
til þess að ákveðið var að telja öll at
kvæði að nýju í kjördæminu og var
talningarfólk kallað í Hótel Borgar
nes þar sem talið hafði verið nótt
ina áður og kjörgögnin voru geymd.
Við endurtalningu kom í ljós skekkja
bæði í heildarfjölda greiddra at
kvæða og hvernig þau skiptust milli
framboða. Tölur breyttust hjá öllum
tíu framboðunum sem buðu fram í
kjördæminu, frá skekkju upp á eitt
atkvæði upp í tíu. Við endurtalningu
breyttist jöfnunarþingsætið og hafði
auk þess þær afleiðingar að samtals
fimm jöfnunarþingsæti á landinu
fóru í hringekju þegar landskjör
stjórn hafði slegið nýjum tölum inn
í tölvuna. Eftir endurtalningu at
kvæða síðdegis á sunnudaginn féll
Guðmundar Gunnarssonar oddviti
Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi
út sem jöfnunarþingmaður en í hans
stað kom Bergþór Ólason oddviti
Miðflokks.
Óhætt er að segja að Framsókn
arflokkur og Flokkur fólksins hafi
verið sigurvegarar í kjördæminu,
bættu báðir við sig kjördæmakjörn
um manni frá síðustu kosningum.
Framsóknarflokkur fékk þrjá þing
menn kjörna; stefán Vagn stefáns
son sem verður 1. þingmaður kjör
dæmisins, Lilju rannveigu sigur
geirsdóttur og Höllu signýju krist
jánsdóttur. sjálfstæðisflokkur fær
tvo menn á þing, líkt og fyrir fjór
um árum; þau Þórdísi kolbrúnu r
Gylfadóttur og Harald Benedikts
son. Vinstri grænir fá einn þing
mann; Bjarna Jónsson. Loks verður
þingmaður Flokks fólksins Eyjólf
ur Ármannsson. samfylking missti
þingmann sinn í kjördæminu og
Miðflokkurinn annan þingmann
sinn. Í Norðvesturkjördæmi setj
ast því á þing þrjár konur og fimm
karlar.
alls eru 21.548 á kjörskrá í Norð
vesturkjördæmi; 11.008 karlar og
10.508 konur. 17.668 greiddu at
kvæði sem er 82% kjörsókn og
jafnframt sú mesta á landinu, en
í öðrum kjördæmum var hún frá
7981%. auðir seðlar og ógildir í
kjördæminu voru 394.
skessuhorn sló síðastliðinn mánu
dag á þráðinn til nýrra þingmanna
Norðvesturkjördæmis og spurði um
fyrstu viðbrögð og verkefni fram
undan. svör þeirra birtast hér á síð
unni. Bergþór Ólason þingmaður
Miðflokksins baðst undan að gefa
komment á þessari stundu og vísaði
þar til þeirrar óvissu sem enn ríkir
um hvort fyrsta eða önnur talning
atkvæða í kjördæminu verði tekin
gild. Nú eða að kosið verði að nýju
í kjördæminu.
mm
Súlurit sem sýnir fylgi flokkanna í NV kjördæmi.
Þau verða þingmenn Norðvesturkjördæmis
Alþingishúsið í Reykjavík.
Væntanlegir 63 þingmenn. Samsett mynd/visir.is
„Ég er mjög þakklátur og auðmjúkur eftir
svona niðurstöðu. Þetta er glæsileg kosning
sem við fáum í þessu kjördæmi og á land
inu öllu. En þessi niðurstaða er kannski sér
staklega góð hér, við náum fyrsta þingmanni
kjördæmisins og erum með þrjá kjördæma
kjörna þingmenn þar sem eru aðeins sjö
kjördæmakjörnir. Þetta er góður árangur og
ég er mjög þakklátur öllum þeim sem treystu
okkur og aðstoðuðu,“ segir stefán Vagn
stefánsson nýkjörinn þingmaður Framsókn
arflokksins í Norðvesturkjördæmi.
spurður um þau málefni sem hann ætli að
beita sér fyrir á kjörtímabilinu svarar stefán:
„Ég ætla að beita mér fyrir kjördæmið. Eins
og ég hef margsinnis sagt eru hér fjölmörg
verkefni sem þarf að takast á við. Byggðamál
eru sérstakt áhugamál hjá mér og ég brenn
fyrir þau og hef unnið í þeim síðustu tólf ár í
gegnum sveitarstjórn. Ég hlakka til að takast
á við þau fjölmörgu verkefni sem bíða hér í
þessu kjördæmi og við verðum líka að horfa
á þau með byggðagleraugunum. Þetta á til
dæmis við um heilbrigðismál og önnur mik
ilvæg mál sem við þurfum að ráðast í.“
Hvert verður fyrsta verk stefáns í nýju
starfi? „Ætli það verði ekki bara að bjóða
góðan dag og koma mér inn á nýja vinnu
staðinn,“ svarar hann og hlær. „Það er erf
itt að forgangsraða verkefnum núna, áður
en búið er að mynda ríkisstjórn. Ég held að
við þurfum bara að bíða og sjá hvernig það
verkefni fer. En í mínum huga er það ljóst
að niðurstaða kosninganna var að fólk er að
kalla eftir stöðugleika en ekki byltingu. Ég
held því að stærsta verkefnið verði að við
halda stöðugleika og byggja ofan á og vinna
okkur út úr verkefnum,“ segir stefán Vagn
stefánsson fyrsti þingmaður í Norðvestur
kjördæmi.
arg
Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknarflokks
Fólk er að kalla eftir stöðugleika
„Ég er mjög sátt við þessi úrslit, bæði með úr
slitin í Norðvesturkjördæmi og á landsvísu.
Það er mikil gleði í okkar hópi,“ segir Lilja
rannveig sigurgeirsdóttir nýkjörinn þing
maður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjör
dæmi. aðspurð segir hún sitt helsta baráttu
mál fyrir komandi kjörtímabil vera að tryggja
að ungt fólk geti búið á landsbyggðinni og sjái
framtíð í því. „Ég vil styrkja byggðirnar og
auka jafnrétti til náms, starfa og búsetu um
allt land. Ég vil sjá fleiri störf án staðsetning
ar og einnig styrkja fjarnám í opinberum skól
um, ekki bara á stökum námsbrautum,“ segir
Lilja. Menntamálin eru henni ofarlega í huga
enda sjálf kennaramenntuð og hefur starfað í
leik og grunnskólum síðan hún lauk stúdents
prófi.
spurð hvert verður hennar fyrsta verk á
nýju kjörtímabili hlær Lilja og segist ætla að
byrja á að læra á nýja starfið. „Ef ég á að vera
heiðarleg held ég að fyrst þurfi ég að komast á
jörðina og sjá betur hvernig þingið virkar; læra
á störfin þar. Þannig sé ég betur hvernig ég
eigi að setja fram mín mál svo þau gangi upp,“
svara Lilja. Hún segir þó eitt mál ofar öðrum á
hennar forgagnslista. „Ég hef talað mikið fyrir
því að við afnemum öll aldurstakmörk eftir 18
ára. Við eigum að láta hæfni ráða en ekki aldur.
Það eru til dæmis ýmis embætti sem fólk þarf
að hafa náð ákveðnum aldri til að gegna, eins
og til dæmis embætti ríkislögreglustjóra. En til
að verða ráðherra þarf aðeins að vera 18 ára og
það embætti er samt hærra. Ég vil líka að við
getum unnið eins lengi og við viljum. Fólk er
fullorðið 18 ára og þá ætti það að ráða hversu
lengi það vinnur og hæfnin að ráða hvaða störf
það getur fengið,“ segir Lilja rannveig.
arg
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Framsóknarflokki
Vill afnema aldurstakmörk
eftir 18 ára
„Ég er náttúrulega afskaplega
ánægð með úrslit kosninganna.
Þetta var það sem við höfðum
fengið á tilfinninguna síðustu vik
ur baráttunnar, að fylgið væri að
færast til okkar. Ég get ekki verið
annað en mjög ánægð með þessi
úrslit,“ segir Halla signý krist
jánsdóttir, þingmaður Framsókn
arflokksins í Norðvesturkjördæmi.
„Ég held að þessi niðurstaða sýni
að fólk er að kalla eftir þessum
stöðugleika sem hefur verið,“ bæt
ir hún við.
spurð fyrir hvaða málefnum hún
ætli að beita sér á nýju kjörtíma
bili segir Halla signý: „Ég ætla að
halda áfram á sömu línu og áður.
Við komum í gegn kerfisbreyting
um í þjónustu við börn og þurfum
að yfirfæra þær breytingar á fleiri
hópa. Við þurfum áframhaldandi
uppbyggingu í húsnæðismálum á
landsbyggðinni, að vera með nóg
af húsnæði og sveigjanleika í hús
næðismálum. Við þurfum líka að
halda áfram í að byggja upp at
vinnu á landsbyggðinni og að bæta
samgöngur. Við þurfum að jafna
raforkukostnað í dreifbýli og bæta
og jafna þjónustu um allt land, eins
og til dæmis heilbrigðisþjónustu.“
En hver verða fyrstu verk Höllu
signýjar á nýju kjörtímabili?
„Núna, fyrsta vinnudaginn á nýju
kjörtímabili, held ég að ég þurfi að
bæta veðrið! Ég á að vera mætt á
fund en sit hér heima, kemst ekk
ert og sé ekki yfir í næsta hús. Það
er ekki flogið því úti er bylur og
1020 cm snjór yfir öllu. En vetr
arþjónustan er einmitt málefni sem
við þurfum að standa vörð um. Það
er mikilvægt þegar fólk er að fara
á milli staða til vinnu eða skóla að
vetrarþjónustan sé í lagi,“ segir
Halla signý kristjánsdóttir þing
maður Framsóknarflokksins. arg
Halla Signý Kristjánsdóttir Framsóknarflokki
Ætlar að halda áfram á sömu línu
Bergþór Ólason
Miðflokki