Skessuhorn


Skessuhorn - 29.09.2021, Síða 28

Skessuhorn - 29.09.2021, Síða 28
MiðVikudaGur 29. sEpTEMBEr 202128 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Víkingur Ólafsvík endaði í neðsta sætinu í Lengjudeildinni í sumar með átta stig í 22 leikjum, vann tvo leiki, gerði tvö jafntefli og tapaði átján leikjum. Blaðamaður skessu­ horns heyrði í Guðjóni Þórðar­ syni, þjálfara Víkings, sem tók við liðinu í byrjun júlí af Gunnari Ein­ arssyni og fyrsta spurningin til hans var hvernig hefði verið að ganga inn í þessar aðstæður eftir mjög slæmt gengi liðsins. Guðjón segir að það hafi verið ákveðin áskorun. Það hefði verið vitað mál að staðan væri erfið, ætlunin var að reyna að gera eins vel og hægt var en þetta hafi verið mjög erfiðar aðstæður að koma inn í. Covid drap niður taktinn Hvernig gekk þér að koma þínum hugmyndum inn í hópinn? „Það gekk nú rysjótt því ég var bara búinn að æfa í nokkra daga þeg­ ar skall á okkur covid. Við sátum í sóttkví og einangrun og þeir leik­ menn sem voru lengst voru í 17­19 daga í einangrun. Það drap eigin­ lega alveg taktinn sem við vorum að byggja upp og frestaði því að leik­ menn gætu komið sér í form og í betra stand. Það setti strik í reikn­ inginn en það var svo sem viðbúið að ef það væri eitthvað sem myndi ekki hjálpa manni að þá væri það covid.“ Hvernig fannst þér liðið spila eftir að þú komst inn sem þjálfari? „Við vorum rosalega brothættir í mótlætinu og ef eitthvað var gegn okkur, þá voru menn fljótir að beygja af leið. Þegar fór að líða á að þá fóru menn að spila kannski að mörgu leyti ágætlega úti á vellinum en það vantaði þessa framkvæmd fyrir framan mark andstæðingana og svo að halda haus í varnarleikn­ um.“ Sjálfstraustið var ekkert aðspurður um andann í hópn­ um og sjálfstraustið segir Guð­ jón að það væri hægt að orða það þannig að sjálfstraustið hafi verið ekkert og gengi liðsins verið með þeim hætti að það var lítið um góða frammistöðu. Þá vantaði talsvert upp á andann í liðinu og þjálfar­ arnir reynt að létta á honum og láta leikmenn spila og þora að spila fót­ bolta án þess að hafa áhyggjur. En hvernig er að koma inn í svona hóp þar sem helmingurinn er íslenskur og hinn erlendir leikmenn? „Það er náttúrulega öðruvísi, menn eru að koma frá löndum eins og afríku, suður Evrópu og Bretlandi. Það er mismunandi hugarástand, hugs­ un og áherslur hjá mönnum en það sem er kannski erfiðast að menn finna mismunandi mikið til þegar þeir tapa, það særir þá mismikið.“ Guðjón segir einnig að sem betur fer hafi flestir skilið ensku, og hlær en bætir við að enskan hans hafi ekki verið vandamálið: „Það voru stærri vandamál en enskukunnáttan mín. Þú ert auðvitað með blöndu af ungum og reynslulitlum strákum en maður vinnur þetta mikið mað­ ur á mann, í samtölum og viðtölum við leikmennina í staðinn fyrir að halda stóra og mikla fundi.“ sástu einhvern tímann fyrir þér á einhverjum tímapunkti að þið gæt­ uð bjargað ykkur frá falli? „Ég hélt að það væri möguleiki en þegar skall á okkur covid að þá brotnaði alveg upp þessi rútína sem við vorum að byrja að byggja upp og ég held að menn hafi misst móðinn þegar þeir komu úr covid. Margir voru búnir að vera í sóttkví í tíu daga og svo aðrir í einangrun í rúmar tvær vik­ ur. Á miðju tímabili er þetta rot­ högg og ef það var einhver von að þá fjaraði hún út í covid. Þetta var rosalega íþyngjandi, ég var ráðinn í byrjun júlí og svo byrjuðum við að æfa og vorum að reyna að koma ein­ hverjum krafti í þetta og skipulagi á þetta og þá fjaraði undan því, það stoppaði allt og það var allt strand. Þeir sem voru í einangruninni voru meðal annars í sóttkví í reykjavík og í einangrun þar og svo í einangr­ un bæði í Grundarfirði og í Ólafs­ vík. Það var kannski höggið sem ég átti ekki von á og virtist það vera þannig að menn virtust ekki hafa trú á því að það væri hægt að snúa þessu við.“ Enginn einn sannleikur Það vakti athygli eftir að þú tókst við af Jóni páli um mitt sumar í fyrra og kláraðir tímabilið með Víkingi að þú skyldir ekki verða þjálfari liðsins áfram. Hver var ástæðan fyrir því? „stjórnin vildi fara aðra leið, prófa eitthvað annað. Við vorum í samn­ ingaviðræðum og það náðist ekki saman um hvernig ætti að gera hlut­ ina. Ég taldi að það væri betra fyr­ ir mig að bakka frá því heldur en að fara inn í eitthvað sem ég væri ekki sáttur við. Það er í fótboltanum eins og í mörgu öðru, það er enginn einn sannleikur í því en menn hafa mis­ munandi skoðanir. reynslan er bara þannig að hún lýgur ekki, hún getur verið ánægjuleg og skemmtileg, hún getur líka verið súr en lýgur aldrei.“ Það er ljóst að Guðjón verður áfram þjálfari liðsins á næsta tíma­ bili í 2. deildinni og segir hann að það þurfi nánast að byggja upp nýtt lið: „Ég er búinn að hafa sam­ band við flestalla leikmennina með það fyrir augum hvað þeir ætla sér og hvað við ætlum okkur. sú vinna er raunverulega hafin að undirbúa okkur fyrir það sem þarf að gera. Menn eru rétt að stíga út, deildirn­ ar eru að klárast á þessum dögum. Eli keke, Bjartur Bjarmi og nokkr­ ir aðrir eru á samning og svo á að semja við yngri strákana. Það þarf að skoða stöðuna maður fyrir mann og byrja á því að skoða hvað er fast í hendi og síðan verður að búa til æf­ ingahóp sem getur æft og unnið af krafti í vetur þannig að við getum komið í sæmilegu standi inn í tíma­ bilið á næsta ári.“ Sækja liðsstyrk Eruð þið að æfa fyrir vestan á vet­ urna? „Við erum að búa til æfinga­ hóp fyrir vestan þar sem við verðum í samstarfi með reyni frá Hellis­ sandi og ætlum að prjóna það svo­ lítið saman. En undirbúningur­ inn er erfiður, það eru strákar fyr­ ir sunnan og það er náttúrulega tví­ skiptur hópur en við ætlum að reyna að vinna þetta saman, ég og Brynjar aðstoðarþjálfari, eins og við getum. Við erum að vona að hópurinn fyr­ ir vestan stækki svolítið, það eru að koma upp ungir strákar úr 3. flokki og við ætlum að reyna að þétta hóp­ inn þannig að við getum haft góðan æfingahóp. svo eru einhverjir sem eru fyrir sunnan og ef þarf að sækja íslenska leikmenn, þá er það á höf­ uðborgarsvæðinu. Þetta verður tví­ skipt og þetta verður púsl.“ Nokkr­ ir strákar af skaganum tóku slaginn í sumar með Víkingi en hvað þeir gera næsta sumar er óráðið. Guð­ jón segir að hann sé búinn að tala við þá og að þeir séu að skoða sína stöðu: „Við ætlum að vera í sam­ bandi, ég var ágætlega sáttur við margt sem þeir voru að gera og það voru leikmenn sem sýndu framfar­ ir. Þegar menn eru í framför að þá er gott að byggja á því en það þarf bara að koma í ljós hvað verður og það sem upp á vantar verðum við að sækja okkur og það þarf að vanda það vel.“ Keppni hörð í öllum deildum að lokum, stefnan er líklega sú að koma liðinu aftur upp í Lengju­ deildina. Ertu bjartsýnn á að það takist? „Það fer auðvitað eftir því hvernig okkur tekst að búa til lið. Við þurfum að sækja menn og það kostar peninga. Við erum ekki með uppalda leikmenn sem geta tekið þann slag, ekki til framtíðar en þeir verða náttúrulega með í hópnum og það eru nokkrir af þessum ungu leikmönnum sem eru til staðar sem eiga bjarta framtíð ef þeir eru til í að leggja mikla vinnu á sig. Vinnan er undanfari árangurs en við verð­ um að sækja okkur góðan hóp af leikmönnum. Það er ekki sjálfgef­ ið að komast upp úr 2. deild, það eru mörg lið sem eru búin að reyna í mörg ár. Þróttur Vogum var að byggja sitt lið í þrjú ár til að kom­ ast upp, þetta tekur allt sinn tíma að búa til lið. Liðin sem féllu í ár, við og Þróttur reykjavík, ætla sér upp og það eru fleiri lið eins og Hauk­ ar, Njarðvík og Völsungur sem ætla sér sæti í deild fyrir ofan. keppni í öllum deildum er hörð og það er erfitt að vinna deild og til þess að vinna deild þarftu að vera með gott lið.” vaks „Við vorum rosalega brothættir í mótlætinu“ Segir Guðjón Þórðarson, þjálfari Víkings, í viðtali við Skessuhorn Guðjón Þórðarson og Brynjar Kristmundsson, þjálfarar Víkings. Ljósm. af

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.