Skessuhorn - 10.11.2021, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 202110
Um 160.000 manns um land allt
verða boðaðir í örvunarbólusetn-
ingu fyrir áramót. Á höfuðborgar-
svæðinu verður bólusett í Laugar-
dalshöllinni á tímabilinu 15. nóv-
ember til 8. desember á mánu-
dögum, þriðjudögum og mið-
vikudögum. Örvunarskammtar
eru ætlaðir þeim sem þegar eru
bólusettir og fengu síðari bólu-
efnaskammtinn fyrir a.m.k. sex
mánuðum. Fólk verður boðað
með strikamerki sem send verða
í smáskilaboðum (SMS). Þeir
sem áður hafa fengið boð í bólu-
setningu en ekki þegið hana, eru
hvattir til að mæta.
Allir sem geta ættu að
láta bólusetja sig
„Bólusetningar við Covid-19
hafa skilað miklum árangri hér á
landi. Framkvæmd bólusetninga
gekk hratt og vel og almenn þátt-
taka var með því mesta sem þekk-
ist meðal þjóða,“ segir í tilkynn-
ingu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Í nýrri samantekt embættis sótt-
varnalæknis er fjallað um ávinn-
ing bólusetningar. Þar kemur
fram að einstaklingur sem á í nán-
um samskiptum við Covid-smit-
aðan einstakling er 50% ólíklegri
til að smitast hafi hann fengið
fulla grunnbólusetningu en væri
hann óbólusettur. Líkur á alvar-
legum veikindum hjá bólusett-
um einstaklingi sem smitast eru
jafnframt um fimmfalt lægri en
hjá óbólusettum. Sá sem er bólu-
settur en smitast samt af Covid-19
er enn fremur mun ólíklegri til
að smita aðra. Því ættu þeir sem
enn hafa ekki verið bólusettir við
Covid-19 að fara í bólusetningu
hið fyrsta.
Hvers vegna þarf
örvunarskammt?
Lönd sem náð hafa góðum ár-
angri í bólusetningum með al-
mennri þátttöku urðu fyrir mikl-
um áhrifum af delta-afbrigði kór-
ónuveirunnar í sumar. Ísraelar
sem voru í fararbroddi í bólusetn-
ingum komust að raun um – og
fengu staðfest með gögnum – að
því lengri tími sem liðinn var frá
því að einstaklingur fékk seinni
bóluefnaskammtinn, því meiri
líkur voru á að hann smitaðist af
delta-afbrigðinu, samanborið við
þá sem nýlega höfðu verið bólu-
settir. Þeir mæltu í kjölfarið með
því að fólk fengi örvunarskammt
af bóluefni Pfizer og benda rann-
sóknir til þess að þannig megi
draga verulega úr líkum á smiti
eða alvarlegum veikindum. Nán-
ar er fjallað um þetta í samantekt
sóttvarnalæknis.
Forsenda þess að ná
tökum á útbreiðslunni
Í samantekt sóttvarnalæknis seg-
ir m.a: „Góð þátttaka í örvunar-
bólusetningum gegn Covid-19,
sambærileg við það sem var í
grunnbólusetningum í vor, er
forsenda þess að við náum tökum
á útbreiðslunni nú í vetur án veru-
legra samfélagshafta.“ Örvunar-
bólusetning verður boðin öll-
um 16 ára og eldri þegar a.m.k. 6
mánuðir eru liðnir frá grunnbólu-
setningu. mm
Örvunarbólusetning verður í boði
Bólusett á Akranesi fyrr á þessu ári. Nú hefur verið ákveðið að bjóða upp á
örvunarbólusetningu. Ljósm. mm.
Kröftug kóvidbylgja gekk yfir
landið í byrjun síðustu viku og náði
víða útbreiðslu. Við íbúar á Vest-
urlandi voru óþægilega minntir á
að þetta er ekki búið. Heilbrigð-
isráðherra ákvað í ljósi aðstæðna
þegar leið á vikuna að skerpa lítið
eitt á sóttvarnareglum. Fólu þær
breytingar í sér að samkomutak-
markanir eru nú við 500 gesti, opn-
unartími skemmtistaða hefur ver-
ið styttur um tvær klukkustundir
þannig að nú verður síðasti mað-
ur að vera farinn út á miðnætti.
Grímuskylda var tekin upp að nýju
þar sem ekki er hægt að tryggja eins
metra fjarlægð. Deildar meiningar
voru um þessar tillögur á fundi rík-
isstjórnar á föstudag, en Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
sat við sinn keip og gaf út reglu-
gerð. Horfið hefur verið frá tilslök-
un takmarkanna sem taka áttu gildi
18. nóvember næstkomandi.
Veiran sungin inn
Strax í byrjun vikunnar var ljóst að
veiran fann sér greiða smitleið sem
rakin var til karókí söngskemmtun-
ar á Akranesi laugardagskvöldið fyr-
ir hálfri annarri viku síðan. Nú hafa
130 smit verið rakin til skemmtun-
arinnar sem og afleidd smit í kjöl-
farið. Gríðar umfangsmikil skim-
un átti sér svo stað á Akranesi í síð-
ustu viku. 75 voru fljótlega komnir
í einangrun og í gær var fjöldi smit-
aðra í heilsugæsluumdæminu kom-
inn í 132 og 127 voru að auki í sótt-
kví. Þegar mest var voru á fimmta
hundrað í sóttkví á Akranesi. Því er
óhætt að segja að um faraldur hafi
verið að ræða. Bæjaryfirvöld tóku
snarpa ákvörðun á fimmtudags-
morgun og brugðust við ástandinu
með að láta frá hádegi sama dag
loka stofnunum fram að helgi, þar
sem fjöldi starfsmanna var ýmist
smitaður eða kominn í sóttkví. Féll
því öll starfsemi niður í leikskól-
um, grunnskólum, tónlistarskóla
og frístundastarfi á vegum bæjarfé-
lagsins auk staðnáms í FVA. Nem-
endum FVA var kennt í fjarnámi en
mæta í skólann í dag, miðvikudag.
Þá voru allar æfingar hjá ÍA felld-
ar niður til mánudag auk þess sem
fjöldi viðburða var blásinn af. Segja
má að í bæjarfélaginu hafi verið
umfangsmikið „lockdown“ í fjóra
daga vegna ástandsins.
Smituðum í Borgarnesi fjölgaði
sömuleiðis lítillega milli daga í síð-
ustu viku, þar voru 16 í einangrun
um miðja vikuna en fjölgaði í 24
þegar leið að helgi. Í gærmorgun
kom svo upp hópsýking í Grundar-
firði þar sem átta voru komnir í
einangrun og 50 að auki í sóttkví.
Metfjöldi smita
Metfjöldi smita greindist á landinu
öllu í gær, eða 168 og var meirihlut-
inn utan sóttkvíar við greiningu.
Því má fastlega búast við að fjöldi
smita verði greind í þessari viku.
Smit höfðu ekki fyrr frá upphafi
faraldursins verið greind á ein-
um degi. Flestir voru í einangr-
un með virkt smit á höfuðborgar-
svæðinu en Vesturland vermdi hið
vafasama annað sæti. Að sögn Þór-
is Bergmundssonar sóttvarnalæknis
hjá HVE á Vesturlandi er ekki mik-
ið um alvarleg veikindi hjá smit-
uðum enn sem komið er. „Nokkr-
ir eru með slæm inflúensueinkenni.
En það er bara rúm vika síðan þetta
kom upp og þessi alvarlegu veikindi
koma ekki fram fyrr en eftir þann
tíma,“ sagði Þórir í samtali við
fréttavef RÚV í gær. Hann sagði
Ný bylgja Covid-19 skekur samfélagið
meðal annars á Vesturlandi
þó jákvætt að dregið hafi talsvert
úr fjölda daglegra smita á Akranesi,
en lýsti áhyggjum með fjölda smita
sem eru að greinast í Grundarfirði,
miðað við íbúafjölda í ekki stærra
bæjarfélagi.
Staðan í gær
Samkvæmt tölum Lögreglunnar á
Vesturlandi í gær hafði enn fjölg-
að í hópi smitaðra í landshlutanum.
Þeir voru þá 168 talsins og 203 að
auki í sóttkví. Helsta breyting frá
deginum áður var sú að það hafði
fjölgað um 14 í einangrun á Akra-
nesi og átta staðfest smit höfðu ver-
ið greind í Grundarfirði, bæjarfé-
lagi sem hafði þá um hríð verið án
greindra smita. Þá fækkaði smituð-
um í Dölum þar sem einungis einn
var enn í einangrun. Því virðist sem
tekist hafi að kveða bylgjuna í Döl-
um niður, en hún var býsna skæð
í októbermánuði þegar um tíma
þriðjungur íbúa var ýmist í ein-
angrun eða sóttkví.
Tölurnar fyrir Vesturland í gær
voru þannig að á Akranesi eru 132 í
einangrun og 127 í sóttkví. Á svæði
Heilsugæslustöðvar HVE í Borg-
arnesi eru 24 í einangrun og 27
í sóttkví. Í Grundarfirði voru 8 í
einangrun og 39 í sóttkví. Í Ólafs-
vík voru þrír í einangrun og sex í
sóttkví. Loks í Búðardal var einn í
einangrun og fjórir í sóttkví. Stykk-
ishólmur var í gær eina svæðið án
smits á Vesturlandi.
Óbreyttar ráðstafanir á
landamærum
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið
að framlengja óbreytta reglugerð
um sóttvarnaráðstafanir á landa-
mærum vegna Covid-19, í samræmi
við tillögu sóttvarnalæknis. Reglu-
gerðin gildir til 15. janúar 2022.
Ástæðan er mikil fjölgun smita inn-
anlands að undanförnu. Sóttvarna-
læknir bendir á að faraldurinn sé í
töluverðum vexti, þeim fari fjölg-
andi sem veikjast alvarlega og far-
aldurinn sé farinn að hafa íþyngj-
andi áhrif á starfsemi Landspítala
sem nú er á neyðarstigi. Um 2%
þeirra sem greinast með Covid-19
þurfa að leggjast inn á sjúkrahús.
mm
Á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Grundarfirði hefur verið mikið annríki undan-
farna daga. Ljósm. tfg
Covid faraldurinn var um miðja síðustu viku í skyndilegri sókn á Akranesi. Mikill fjöldi fólks var mættur í sýnatöku eftir
hádegið á miðvikudeginum, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Náði röðin um tíma alla leið bak við hjólbarðaverkstæði
N1 við Dalbraut, en sýnatakan fór eins og áður fram við sjúkrabílaskýlið við Þjóðbraut 11. Þegar myndin var tekin stóðu 178
manns í röðinni. Raðir af svipaðri stærðargráðu áttu svo eftir að myndast alla næstu daga. Ljósm. frg.