Skessuhorn - 10.11.2021, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021 13
Stefnt verður að því að fundurinn fari fram um leið og aðstæður leyfa
og verður auglýsing send út þegar þar að kemur.
Opnum kynningarfundi
frestað
Qair Iceland ehf. áformar að reisa
vindorkugarðinn Múla. Þróunarverkefnið
er matsskylt skv. lögum um umhverfismat
framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, tl. nr. 3.02
í 1. viðauka laganna.
Vegna covid ráðstafana stjórnvalda og
fjölgunar smita í samfélaginu hefur
fyrirhuguðum kynningarfundi vegna
vindorkuverkefnisins Múla sem fram átti að
fara fimmtudagskvöldið 11. nóvember
kl. 20:00 verið frestað um óákveðinn tíma.
Fjarnám
Mögulegt er að stunda fjarnám við
Menntaskóla Borgarfjarðar
Leiðsagnarmat – engin hefðbundin
lokapróf
Verkefnamiðað nám
Stúdentsprófsbrautir:
Félagsfræðabraut
Náttúrufræðibraut
Náttúrufræðibraut – búfræðisvið í
samstarfi við Lbhí
Íþróttabraut (félagsfræða- eða
náttúrufræðisvið)
Opin braut
Annað nám:
Framhaldsskólabraut
Starfsbraut
Viðbótarnám til stúdentsprófs
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Innritun á vorönn 2022
Nánari upplýsingar veita:
Innritun fyrir nám á vorönn 2021 fer fram rafrænt á menntagatt.is eða á
skrifstofu skólans dagana 1. – 30. nóvember 2020
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu skólans www.menntaborg.is,
á menntaborg@menntaborg.is og í síma 433-7700
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
1
Aðalskipulag
Hvalfjarðarsveitar 2020-2032
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að
skipulagstillaga Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032
verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Skipulagstillagan samanstendur af forsenduhefti,
umhverfisskýrslu, greinargerð, skipulagsuppdrætti fyrir þéttbýlin
Krossland og Melahverfi ásamt sveitarfélagsuppdrætti.
Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 tekur við
af Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020. Í nýja
aðalskipulaginu er stuðlað að hagkvæmri þróun byggðar
á svæðinu, m.a. með því að skapa sem best skilyrði fyrir
atvinnu upp bygg ingu og blómlegt mannlíf til að gera búsetu á
svæðinu eftirsóknarverða. Áfram verður stuðlað að öflugum
landbúnaði, áframhaldandi fjölbreyttri iðnaðarstarfsemi og
fjölbreyttum atvinnutækifærum s.s. við ferðaþjónustu, skógrækt,
umhverfisvernd og heilsueflandi starfsemi.
Skipulagsgögn eru aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins;
https://www.hvalfjardarsveit.is/
Aðalskipulagið er enn á vinnslustigi, en nú gefst íbúum og
öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma með ábendingar og
athugasemdir áður en tillaga fer í formlegt auglýsingaferli.
Frestur til að skila inn ábendingum rennur út þriðjudaginn
30. nóvember 2021 og skal skilað skriflega á netfangið
adalskipulag@hvalfjardarsveit.is eða með bréfpósti stílað á
skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3,
301 Akranesi.
Kynningafundur verður auglýstur síðar.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar
Ákveðið hefur verið að ferðakaup-
stefnan Mannamót markaðsstofa
landshlutanna snúi aftur í janúar.
Viðburðurinn hefur skipað sess sem
einn sá allra mikilvægasti í íslenskri
ferðaþjónustu. Þar gefst samstarfs-
fyrirtækjum markaðsstofanna í öll-
um landshlutum tækifæri til að
kynna sig fyrir fólki í ferðaþjónustu
sem starfar á höfuðborgarsvæðinu
og jafnvel koma á nýjum viðskipta-
samböndum. Árið 2021 var Manna-
móti frestað vegna heimsfaraldurs
Covid-19, eins og svo mörgum öðr-
um stærri viðburðum. „Nú þegar
ferðaþjónustan er aftur að komast
á skrið er tilhlökkunin eftir því að
hittast í Kórnum í Kópavogi í janú-
ar orðin mikil og nú þegar hafa fjöl-
mörg fyrirtæki og gestir skráð sig
til þátttöku,“ segir í tilkynningu frá
Markaðsstofu Vesturlands.
Fyrirtæki frá Vesturlandi hafa
ávallt fjölmennt á Mannamót og
kynnt það sem er í boði í ferða-
þjónustu á svæðinu. Undanfarin
ár hafa færri sýnendur komist að
en vilja og því mikilvægt fyrir sam-
starfsfyrirtæki að ganga frá sinni
skráningu sem fyrst. „Sem fyrr seg-
ir verður sýningin haldin í Kórn-
um í Kópavogi, fimmtudaginn 20.
janúar á milli 12 og 17. Enginn að-
gangseyrir er fyrir gesti sem mæta
á viðburðinn, en þeim er þó bent
á að skrá sig áður en þeir mæta
svo auðveldara sé að áætla fjölda
gesta. Hægt er að skrá sig á www.
markadsstofur.is Nánari upplýs-
ingar veitir verkefnastjóri markaðs-
mála hjá Markaðsstofu Vesturlands,
Björk Júlíana Jóelsdóttir, bjork@
west.is“
mm
Skráning hafin fyrir Manna-
mót landshlutanna í janúar