Skessuhorn - 10.11.2021, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021 15
Starf yfirverkstjóra við þjónustustöð Vegagerðarinnar í Borgarnesi er
laust til umsóknar. Um 100% starf er að ræða.
FAGMENNSKA
ÖRYGGI
FRAMSÝNI
ÞJÓNSUTA
Starfssvið
• Almenn þjónusta og viðhald vega sem og vegbúnaðar á svæði
þjónustustöðvarinnar. Viðhald og þjónusta á malarvegum og
bundnu slitlagi, umsjón með áhaldahúsi. Eftirlit og stjórnun
verkefna í sumarþjónustu sem og samskipti við verktaka. Eftirlit
í vetrarþjónustu með færð á vegum, upplýsingagjöf og stjórnun
snjómoksturs í samvinnu við vaktstöð Vegagerðarinnar.
Samskipti og eftirlit með verktökum í vetrarþjónustu.
• Reikningsuppgjör og kostnaðareftirlit, verðfyrirspurnir,
fjárhagsuppgjör og gerð einfaldari útboðslýsinga.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Almennt grunnnám, iðnmenntun æskileg
• Marktæk reynsla af stjórnun
• Reynsla af kostnaðareftirliti, verkeftirliti og fjárhagsuppgjöri
• Verkstjórnarnámskeið er æskilegt
• Góð íslenskukunnátta
• Góð tölvukunnátta
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir
til að sækja um.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og
Sambands stjórnendafélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2021. Sótt er
um starfið á vef Vegagerðarinnar www.vegagerdin.is
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni
viðkomandi til að gegna starfinu.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Lyngmo
deildarstjóri þjónustudeildar (kristinn.g.k.lyngmo@vegagerdin.
is) eða í síma 522 1000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Yfirverkstjóri ber ábyrgð á rekstri og verkefnum
þjónustustöðvarinnar. Hann sér til þess að verkefni
séu leyst samkvæmt verklagsreglum, skipuriti og
markmiðum Vegagerðarinnar.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
YFIRVERKSTJÓRI Í BORGARNESI
Síðastliðinn föstudag var birt yf-
irlýsing á vef Borgarbyggðar með
fyrirsögninni; „Áskorun og ákall
vegna Brákareyjar.“ Í henni er far-
ið yfir forsögu þess að húsum í eigu
sveitarfélagsins í Brákarey, sem
byggð voru sem frystihús, slátur-
hús og fjárrétt, var lokað í febrú-
ar síðastliðnum að kröfu eldvarna-
eftirlits og byggingafulltrúa. Hús-
næðið hafði þá um árabil verið í
notkun ýmissa félaga og klúbba
auk þess sem nokkur atvinnufyr-
irtæki höfðu þar aðstöðu. Í yfir-
lýsingunni er meðal annars greint
frá því að erindi sem slökkviliðs-
stjóri sendi sveitarfélaginu á árun-
um 2012-2015 um úttektir á hús-
næði gamla sláturhússins hafi aldrei
verið lagt fyrir byggðarráð. Um
það segir: „Um er að ræða mistök
af hálfu sveitarfélagsins og skort á
verklagsreglum.“ Þá kemur fram að
Verkís hafi unnið kostnaðarmat á
lagfæringum á húsunum og komist
að þeirri niðurstöðu að það myndi
kosta sveitarfélagið rúmar 654
milljónir að láta laga, og í sumum
tilvikum rífa, húsnæði til þess að
það uppfyllti skilyrði um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stöðum. Forsvarsmenn sveitarfé-
lagsins telja óraunhæft að standa
fyrir slíku viðhaldi á húsnæði sem
ekki tengist lögbundnu hlutverki
sveitarfélagsins og hafa óskað eft-
ir viðræðum við félagasamtök um
uppbyggingu starfsemi þeirra í
öðrum húsum. Tilkynningu Borg-
arbyggðar má lesa í heild sinni hér
að neðan:
„Áskorun og ákall vegna
Brákareyjar
Í upphafi árs þurfti sveitarfélagið að
grípa til þeirra ráðstafana að loka
starfsemi Brákarbraut 25-27 um
óákveðinn tíma í kjölfar krafna frá
eldvarnareftirliti Slökkviliðs Borg-
arbyggðar og byggingarfulltrúa
sveitarfélagsins. Niðurstöður út-
tektar voru sláandi og deildu hlut-
aðeigandi áhyggjum sínum á fundi
byggðarráðs í febrúar sl. Eftirlits-
aðilar gerðu þá kröfu að lokað yrði
á starfsemi í húsnæðinu. Fulltrúar
allra leigutaka voru boðaðir á fund
þegar niðurstaðan lá fyrir og þeim
greint frá niðurstöðum úttektar-
innar. Fyrirvarinn á lokuninni var
stuttur en jafnframt nauðsynleg-
ur því það þurfti að bregðast hratt
við þar sem ekki var hægt að tryggja
öryggi og heilsu þeirra sem nýttu
húsnæðið. Sveitarfélagið hafði ekki
annarra kosta völ en að fara að kröf-
um eftirlitsaðila í málinu, og hefur
sveitarfélagið eða sveitarstjórn ekki
heimild til þess að breyta einhliða
ákvörðunum eftirlitsaðila.
Í kjölfar þessara viðburða hófst
tvíþætt vinna. Viðamikil grein-
ingarvinna fór fram innan stjórn-
sýslunnar til þess að athuga hvort
gerðar hefðu verið úttektir á hús-
næðinu áður og ef svo væri hvers
vegna þær hefðu ekki fengið
áheyrn. Slökkviliðsstjóri hafði sent
sveitarfélaginu erindi vegna hús-
næðisins á árunum 2012-2015 en
þær niðurstöður voru ekki lagðar
fyrir byggðarráð. Um er að ræða
mistök af hálfu sveitarfélagsins og
skort á verklagsreglum og hefur
verið brugðist við því með því að
gera boðleiðir skýrari og tryggja
að mál af þessu tagi fái viðeigandi
málsmeðferð innan stjórnsýslunn-
ar.
Byggðarráð ákvað að láta kostnað-
armeta hugsanlegar úrbætur á hús-
næðinu og fékk verkfræðistofuna
Verkís til að meta hvaða lágmarks-
endurbætur þyrfti að gera á hús-
næðinu til að starfsemi gæti aftur
farið þar fram. Sérfræðingar Verkís
mátu það svo að það myndi kosta
sveitarfélagið rúmar 654 milljónir
að láta laga, og í sumum tilvikum
rífa húsnæði, til þess að það upp-
fyllti skilyrði um aðbúnað, holl-
ustuhætti og öryggi á vinnustöðum,
þ.e. þau skilyrði sem sett eru fram
af eldvarnarfulltrúa og byggingar-
fulltrúa. (Skýrsluna má nálgast
á vef Borgarbyggðar). Sveitarfé-
lagið telur því miður ekki raun-
hæft að standa fyrir slíku viðhaldi
á húsnæði sem ekki tengist lög-
bundnu hlutverki sveitarfélags-
ins. Fyrir liggur að verulegar fjár-
festingar þarf að fara í á næstu árum
í leikskóla-, grunnskóla- og íþrótta-
mannvirkjum, sem þyrfti að fresta
ef ganga ætti í svo viðamikið verk-
efni sem endurbætur á Brákarbraut
25-27 myndu útheimta.
Í húsnæðinu var mikil menn-
ingararfleifð í formi tómstunda-
iðkunar íbúa sem má ekki glatast
og því hafa samtöl átt sér stað milli
sveitarfélagsins og leigutaka en nú
nýlega barst sveitarfélaginu áskor-
un um að leita leiða til að endur-
vekja starfsemi í gamla sláturhús-
inu.
Ljóst er að ekki er hægt að verða
við þeirri kröfu í núverandi mynd
en byggðarráð hefur samþykkt
notkun Golfklúbbs Borgarness að
sal í Hjálmakletti auk þess sem tek-
ið hefur verið jákvætt í erindi golf-
klúbbsins um aðkomu sveitarfé-
lagsins að uppbyggingu lýðheilsu-
stöðvar að Hamri. Fornbílafjelagi
Borgarfjarðar hefur verið boðið
að borðinu um samtal um kaup á
hluta fasteignar Borgarbyggðar að
Brákarbraut 27 að vissum skilyrð-
um uppfylltum, Skotfélagi Vestur-
lands verið boðin aðstaða til upp-
byggingar til umsóknar og Raftar
eru að skoða mögulegt húsnæði í
eigu sveitarfélagsins.
Það er einlægur vilji sveitarfélags-
ins að þessi mikilvægu félagasam-
tök haldi starfsemi sinni áfram í
nýju húsnæði og standa vonir til
þess að hægt sé að vinna að ásætt-
anlegum lausnum saman.“
mm
Borgarbyggð sendir frá sér yfirlýsingu
vegna fasteigna í Brákarey
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Hunda- og kattaeigendur athugið
Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002
er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín
árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi. Gunnar Gauti Gunnarsson
dýralæknir annast hreinsunina.
Seinni hunda- og kattahreinsun:
Kattahreinsun verður frá kl. 9.00 til 12.00
laugardaginn 13. nóvember
Hundahreinsun verður frá kl. 13.00 til 15.00
laugardaginn 13. nóvember
Staðsetning: Þjónustumiðstöð Akraness
að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin)
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar
(ath. greiða þarf með peningum):
• Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári,
verð kr. 4.000.
• Örmerking hunda og katta, verð kr. 4.500.
• Ófrjósemissprauta í hunda og ketti, verð kr. 3.000 til 7.000
fer eftir þyngd.
• Bólusetningu gegn kattafári, verð kr. 4.000.
Óskráðir hundar og kettir eru vinsamlegast bent á að fara inná
www.akranes.is og klára skráninguna í gegnum þjónustugáttina.
Athugið að greiða þarf með peningum
-enginn posi verður á staðnum
Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478
eða dýralæknir í síma 892-3230
Vegna hertra sóttvarnaraðgerða verður grímuskylda og
biðjum við fólk að virða 2 metra fjarlægðarmörk.
Passað verður upp á fjöldatakmarkanir.