Skessuhorn - 10.11.2021, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 202118
Þeir voru glaðbeittir á föstudegi,
félagarnir Björn Sigfússon, Gunn-
ar Jónsson og Jón Bjarni Gíslason
hjá Eðallögnum, þegar blaðamaður
Skessuhorns rakst á þá. Þeir vinna
þessa dagana við að leggja lagn-
ir í götur í nýjasta hverfi Akurnes-
inga, Skógahverfi 3A. Að sögn Jóns
Bjarna er áætlað að verkinu ljúki
öðru hvoru megin við áramótin.
frg
Sementsverksmiðjan hefur
ákveðið að bjóða Aalborg Portland
á Íslandi, samkeppnisaðila sínum
á markaði, bein sementsviðskipti
til að aðstoða félagið við að mæta
þörfum viðskiptavina þess hér á
landi í ljósi mikils skorts á sem-
enti. „Sementsverksmiðjan telur
sér fært að aðstoða með þessum
hætti eftir að hafa leitað leiðbein-
inga hjá Samkeppniseftirlitinu,“
segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Núverandi aðstæður á sements-
markaði eru án fordæma en skortur
er á sementi um alla Evrópu. Í ljósi
þessa taldi Sementsverksmiðj-
an nauðsynlegt að forgangsraða
því takmarkaða magni sements
sem félagið hafði til umráða til að
mæta samningsbundnum skuld-
bindingum sínum gagnvart reglu-
bundnum viðskiptavinum. Líkt og
fram hefur komið í fréttum, kvart-
aði Steinsteypan ehf. undan þeirri
ákvörðun til Samkeppniseftirlits-
ins. Eftirlitið tekur ekki afstöðu
til þeirrar kvörtunar í samskiptum
sínum við Sementsverksmiðjuna.
„Sementsverksmiðjan vísar því
algerlega á bug að forgangsröð-
un viðskipta til að mæta samn-
ingsbundnum skuldbindingum
geti talist brot á samkeppnislög-
um. Félagið taldi enn fremur að
þær kröfur sem gerðar voru til
þess í kvörtun Steinsteypunnar
gætu hæglega jafngilt broti á 10.
grein Samkeppnislaga og væru því
ekki færar. Verksmiðjan óskaði því
leiðbeininga samkeppnisyfirvalda
um hvernig leysa mætti úr þessari
vandasömu stöðu. Þessi niður-
staða byggir á þeim leiðbeiningum
og þakkar Sementsverksmiðjan
Samkeppniseftirlitinu fyrir skjót
viðbrögð og gott og lausnamiðað
samstarf.“
Skortur hefur verið á sementi
í norðanverðri Evrópu frá miðju
þessu ári. Sementsverksmiðj-
an hafði á grundvelli vandaðrar
áætlunargerðar og trausts sam-
bands við sinn birgja tryggt nægj-
anlegt sementsmagn til að mæta
áætlaðri sölu ársins. Þær áætlanir
voru gerðar undir lok síðasta árs
með hliðsjón af áætlaðri notkun
stærstu viðskiptavina félagsins og
endurmetnar síðastliðið vor í ljósi
aukinnar sölu á markaði. „Þegar
vart varð skorts hjá helsta keppi-
naut félagsins í sementssölu hér á
landi í sumar seldi Sementsverk-
smiðjan Steinsteypunni og fleir-
um sem ekki voru í föstum við-
skiptum nokkurt magn sements,
enda taldi félagið birgðastöðu
leyfa það. Jafnframt hefur félag-
ið frá þeim tíma leitað leiða til
að flytja aukið magn sements til
landsins í ljósi stöðunnar en án
árangurs til þessa. Þegar sú staða
kom upp aftur nú í haust taldi fé-
lagið hins vegar birgðastöðu sína
ekki leyfa sömu viðbrögð. Sem-
entsverksmiðjan hefur fullan
skilning á þeirri stöðu sem upp
er komin vegna sementsskorts í
heiminum. Sementsverksmiðjan
hefur sem fyrr segir gert ítrek-
aðar tilraunir til að tryggja meira
magn sements til landsins og
fagnar að sjálfsögðu nýjum við-
skiptum þegar afhendingar kom-
ast í eðlilegt horf. Bindur verk-
smiðjan vonir við að með þess-
um hætti megi draga úr neikvæð-
um áhrifum sementsskorts hér á
landi fyrir íslenskan bygginga-
markað,“ segir í tilkynningu sem
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri
Eignarhaldsfélagsins Hornsteins,
sendi fyrir hönd verksmiðjunnar.
mm
Umboðsmaður Alþingis birti 12.
október síðastliðinn álit í máli sem
snertir ráðningu yfirmanns Slökkvi-
liðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
Umsækjandi um starf slökkviliðs-
stjóra, sem ekki hlaut starfið, kvart-
aði til umboðsmanns yfir ráðningu
bæjarstjórnar Akraneskaupstað-
ar í starfið. Kvörtunin laut eink-
um að því að hæfasti umsækjandinn
hefði ekki verið ráðinn, m.a. vegna
þess að rannsókn og samanburði á
hæfni umsækjenda í ráðningarferl-
inu hefði verið ábótavant. Athug-
un umboðsmanns beindist að þeirri
ákvörðun bæjarstjórnar Akra-
neskaupstaðar að samþykkja þá til-
lögu sem fólst í niðurstöðu ráðn-
ingarhóps um hæfasta umsækjand-
ann. Þá einkum hvort bæjarstjórn
hefði tryggt að fullnægjandi upp-
lýsingar lægju fyrir um umsækj-
endur áður en ákvörðun var tekin
um að staðfesta þá tillögu sem fólst
í álitsgerð ráðningarhópsins sem
lögð var fyrir bæjarstjórn.
Í áliti umboðsmanns segir: „Um-
boðsmaður benti á að af ákvæð-
um sveitarstjórnarlaga og laga um
brunavarnir leiddi að það væri hlut-
verk viðkomandi sveitarstjórnar að
ráða í starf slökkviliðsstjóra. Fyr-
ir lægi að endanleg ákvörðun um
að ráða í starfið hefði verið tekin
af sveitarstjórn. Hins vegar hefði
sveitarstjórnin jafnframt haft það
hlutverk sem veitingarvaldshafi að
sjá til þess að ákvörðunin byggði
á nægjanlega traustum undirbún-
ingi og meðferð málsins hefði verið
í samræmi við lög. Í ljósi lögmælts
hlutverks sveitarstjórnarinnar yrði
slík ákvörðun því ekki tekin nema
af henni sjálfri, bæði að formi og
efni til. Af þessu leiddi að viðhlít-
andi upplýsingar yrðu að liggja fyr-
ir sveitarstjórn um þau atriði sem
talin væru hafa þýðingu við saman-
burð umsækjenda þannig að henni
væri í reynd unnt að taka efnislega
afstöðu að þessu leyti. Sömuleiðis
yrði málsmeðferð sveitarstjórnar að
bera með sér að svo hafi verið gert
í reynd og haggaði aðkoma utanað-
komandi aðila ekki þessari ábyrgð
stjórnvaldsins.“
Þá segir í álitinu að umboðsmað-
ur hafi bent á að bæjarstjórn hefði
hvorki haft beina aðkomu að við-
tölum sem tekin voru við umsækj-
endur né annarri vinnu ráðning-
arhópsins, m.a. ákvörðunum um að
þrengja umsækjendahópinn. Í álits-
gerð ráðningarhópsins, sem lögð
var fyrir bæjarstjórn, hefði ekki ver-
ið fjallað um að hvaða marki aðr-
ir af þeim umsækjendum, sem val-
ið að lokum stóð á milli, uppfylltu
hæfniskröfur samkvæmt auglýsingu
eða hverjir væru kostir þeirra og
gallar. Veitti álitsgerðin því í reynd
engar upplýsingar um eiginleika
annarra umsækjenda en þess sem
ráðinn var að öðru leyti en því að
það væri samdóma álit innan hóps-
ins að sá umsækjandi stæði fram-
ar öðrum. Þrátt fyrir þetta leitað-
ist bæjarstjórnin ekki við að upplýsa
málið frekar að þessu leyti áður en
ákvörðun var tekin.“
Í álitinu telur umboðsmaður
að leggja verði til grundvallar að
umrædd ákvörðun bæjarstjórn-
ar um ráðningu í starf slökkviliðs-
stjóra hefði í reynd grundvallast á
álitsgerð ráðningarhópsins einni
saman og þá án þess að undirliggj-
andi gögn eða upplýsingar í öðru
formi kæmu til efnislegrar skoðun-
ar af hennar hálfu. „Við meðferð
málsins hefði því skort á að bæj-
arstjórnin fullnægði rannsóknar-
skyldu sinni og stæði, sem handhafi
veitingarvalds, undir þeirri ábyrgð
sem af þessari skyldu leiddi. Beindi
umboðsmaður þeim tilmælum til
Akraneskaupstaðar að leita leiða til
að rétta hlut A [kæranda í málinu,
innsk. blm]. Að öðru leyti væri það
dómstóla að meta réttaráhrif ann-
marka á málsmeðferð sveitarfélags-
ins, kysi A að fara þá leið. Þá var
því beint til sveitarfélagsins að taka
framvegis mið af þeim sjónarmið-
um sem kæmu fram í álitinu.“ mm
Sementsverksmiðjan
býður samkeppnisaðila
sínum sementsviðskipti
Lagnir
lagðar í
Skóga-
hverfi 3A
Slökkviliðsmenn við æfingu. Ljósm. úr safni/mm
Umboðsmaður Alþingis telur bæjarstjórn
ekki hafa fullnægt rannsóknarskyldu sinni