Skessuhorn - 10.11.2021, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 202128
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Freydís Björg Óttarsdóttir og
Steinunn Hallgrímsdóttir á Akra-
nesi hafa í faraldrinum verið að
steypa kerti sem þær selja í gegnum
Facebook eða fyrir framan Bón-
us á Akranesi. Í október steyptu
þær kerti sem voru í laginu eins og
kvenmannslíkami en í stað annars
brjóstsins var slaufa. Kertin seldu
þau til styrktar Krabbameinsfélagi
Akraness og nágrennis og söfn-
uðu 100 þúsund krónum sem þær
afhentu félaginu í byrjun þessa
mánaðar. Blaðamaður Skessuhorns
kíkti í heimsókn til Freydísar fyrir
helgi og ræddi við hana um kerta-
gerðina.
„Það var nú Steinunn sem byrj-
aði á að gera svona kerti en þegar
ég sá þetta hjá henni langaði mig að
læra og við byrjuðum að gera þetta
saman. Steinunn er mikill föndrari
og heklar mikið. Ég hef alltaf haft
gaman að því að föndra og gert það
svona annað slagið en í Covid hef
ég verið að föndra mikið meira.
Við ákváðum að fara saman í þessa
kertagerð fyrir svona hálfu ári og
pöntuðum okkur nokkur form sem
við erum að nota,“ segir Freydís og
sýnir blaðamanni hvernig kerti þær
eru að gera, en formin eru til dæm-
is karlmannslíkami, kvenmanns-
líkami, líkami ófrískrar konu og
konu með barn á brjósti. Auk þess
gera þær líka kerti í glösum. En öll
kertin sem þær nota eru með ilm.
„Við tökum á móti öllum kertaaf-
göngum hjá fólki en svo kaupum
við líka kerti sem við bræðum yfir
vatnsbaði og hellum í formin. Oft
erum við að nota ilmkerti en ef við
erum með lyktarlaust vax notum
við ilmdropa sem við setjum í það,“
segir Freydís.
Langaði að styrkja
gott málefni
Aðspurð segir hún þær hafa ákveðið
að styrkja Krabbameinsfélag Akra-
ness og nágrennis því þær langaði
að styrkja gott málefni. „Við áttum
þetta form, af konu með eitt brjóst
og slaufu þar sem hitt brjóstið á að
vera. Okkur fannst tilvalið að nota
það til að gera kerti til að styrkja
þetta góða málefni. Okkur þótti líka
tilvalið að nota október til að selja
svona kerti. Við þekkjum sjálfar
fólk sem hefur farið vegna krabba-
meins og þetta málefni snertir okk-
ur öll,“ segir Freydís og bætir við
að sjálf hafi hún einu sinni upp-
lifað óttann við krabbamein. „Ég
varð mjög bólgin og fannst ég finna
hnút sem hafði ekki verið áður. En
sem betur fer reyndist það ekki vera
neitt. En þarna upplifði ég í smá
stund þennan ótta.“
En er þetta eitthvað sem þær
ætla að gera aftur? „Ekki spurning.
Okkur langar að styrkja góð mál-
efni og við getum það með þess-
um hætti og munum sko gera það
aftur. Við höfum talað um að gera
svipað í Mottumars en svo er aldrei
að vita nema við gerum meira af
þessu,“ segir Freydís og brosir. Enn
eiga þær eftir nokkur kerti með
slaufunni og þó október sé liðinn
mun ágóði þeirrar kertasölu renna
til Krabbameinsfélags Akraness og
nágrennis. Einnig er hægt að fylgj-
ast með kertasölunni og hafa sam-
band við Freydísi í gegnum Face-
book síðuna Kerti Freydísar. arg
Kerti í laginu eins og líkami.
Styrktu Krabbameinsfélag Akraness
og nágrennis með kertasölu
Freydís Björg Óttarsdóttir.
Freydís og Steinunn þegar þær afhentu Krabbameinsfélagi Akraness og nágrenni
ágóða af sölu kerta í október. Ljósm. aðsend
Kerti sem Freydís og Steinunn selja til
styrktar Krabbameinsfélagi Akraness
og nágrennis. Líkami ófrískrar konu. Kona með barn á brjósti.
Ein útgáfa af kerti fallegu kerti sem
þær Freydís og Steinunn eru að selja.