Skessuhorn - 29.07.2022, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 202210
Grundarfjarðarbær hefur staðið
fyrir öflugu tómstundastarfi fyrir
börn í sumar. Sveitarfélagið hlaut
tveggja milljóna króna styrk frá
Barnamenningarsjóði í júní til að
sinna liststarfi með börnum í sum-
ar og fram á haust. Börn í Grundar-
firði hafa þess vegna haft ýmislegt
fyrir stafni undanfarnar vikur og
munu áfram hafa næstu vikur.
Sumarnámskeið
Sumarnámskeið var í þrjár vikur í
júní og mun koma til með að halda
áfram í ágúst. Þá stóð þriggja vikna
námskeið í kofasmíði til boða í
júní. Þar byggðu börnin kofa undir
handleiðslu Thors Kolbeinssonar. Í
ágúst verður boðið upp á vegglist,
golfnámskeið og íþróttaæfingar. Þá
starfaði vinnuskólinn í fimm vikur.
Hestanámskeið verður svo einnig í
boði í samstarfi við grunnskólann
með haustinu.
Prufusveitarfélag
í þróun nýs námsefnis
Grundarfjarðarbær hefur verið
prufusveitarfélag í að útbúa náms-
efni fyrir ungmenni í vinnuskóla
sveitarfélagsins. Þróað hefur ver-
ið kennsluefni í öflugu forvarnar-
starfi með aðaláherslu á vinnuvernd
og er það kennt í vinnuskólanum.
Lögð er áhersla á að vinnuskólinn
sé fyrsti vinnustaður þeirra og
nemendum kynnt atriði sem koma
sér vel þegar þau fara svo út á hinn
almenna vinnumarkað. Auk þess
að læra um vinnuvernd kynnast
krakkarnir umhverfisvitund, vinnu-
markaðinum og hvernig samfélag-
ið virkar þar sem þau fara í vinnu-
staðaheimsóknir, kynnast félags-
starfi, íþróttastarfi og fleiru. Með-
al annars heimsóttu þau Björgu
Ágústsdóttur sveitarstjóra og fengu
innsýn í rekstur bæjarfélagsins.
Vinnuskólinn líka skóli
VÍS, Vinnuverndarskóli Íslands og
Grundarfjarðabær gerðu samning
um þróun námsefnisins og mun svo
öðrum sveitarfélögum standa til
boða að nýta efnið sem er rafrænt
og gagnvirkt. Björg Ágústsdótt-
ir bæjarstjóri segir vinnuskólann
hafa verið mjög vel heppnaðan en
nokkur ár hafa farið í að þróa náms-
efnið. ,,Það hefur tekið nokkur ár
að reyna að þróa námskrá og stilla
upp fræðslu við hæfi, í bland við
vinnuna. Það eru engar námskrár
fyrir ungmenni í vinnuskólum en
Umboðsmaður barna hefur hvatt
sveitarfélögin til meiri metnað-
ar í rekstri vinnuskólanna. Vinnu-
skólinn okkar var líka einstak-
lega vel heppnaður og við erum að
vinna markvisst að því að vinnu-
skóli sé líka skóli, ekki bara að reyta
arfa,“ segir Björg.
sþ
Starfsmenn verkefnisins Römpum
upp Ísland voru á Akranesi í síð-
ustu viku og settu upp fimm rampa,
en búið er að finna um það bil 20
römpum stað á Akranesi og lík-
legt að fleiri bætist við í kjölfar-
ið. Rampar voru undir vikulok-
in komnir upp við verslanir Model
og Hans og Grétu, Rauða krossinn,
Hákot og tveir við Gamla Kaupfé-
lagið. Markmiðið með römpunum
er að bæta aðhengi hreyfihamlaðra
að þjónustu, verslun og veitinga-
húsum á miðsvæði Akraness og við
þá staði sem mest eru sóttir.
Á fimmtudaginn var vígsla á sjö-
tugasta rampinum við veitinga-
staðinn Gamla Kaupfélagið og hélt
bæjarstjórinn Sævar Freyr Þráins-
son stutta tölu um verkefnið. Þar
minntist hann á framlag frum-
kvöðulsins Haraldar Þorleifsson-
ar sem væri alveg einstakt. Þá hefði
íslenska ríkið og sveitarfélögin á
hverjum stað komið myndarlega
að því að tryggja að þetta verkefni
gæti orðið að veruleika ásamt þeim
fjölda fyrirtækja sem hefðu stutt við
þetta verkefni.
Það var Hreggviður Steinn
Hendriksson sem fékk þann heið-
ur að klippa á borðann og þar með
vígja ramp númer sjötíu en Römp-
um upp Ísland stefnir að því að lok-
ið verði við uppsetningu þúsund
nýrra rampa um allt Ísland innan
fjögurra ára.
vaks
Vígsla á rampi númer sjötíu á Akranesi
Það var vel mætt í vígsluna og allir tilbúnir í hópmynd. Hreggviður að klippa á borðann.
Starfsmenn Römpum upp Ísland tóku sig vel út.
Rétt áður en að vígslu sjötugasta rampsins kom luku starfsmenn Römpum upp
Ísland við að lagfæra innganginn að verslunum Módel og Hans og Grétu á Þjóð-
braut 1.
Fjölbreytt tómstundastarf barna í Grundarfirði
Vinnuskólinn þróar námskrá og stillir upp fræðslu við hæfi í bland við vinnuna
Mynd frá lokadegi
vinnuskólans í
Grundarfirði.
Börn gátu m.a. farið á þriggja vikna kofasmíðanámskeið. Hér eru ungir kofasmiðir með lærimeisturum sínum en Thor Kolbeinsson leiðbeindi börnum á námskeiðinu.