Skessuhorn - 29.07.2022, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 202218
Í júlí í fyrra var í fyrsta skipti haldin
Hinseginhátíð Vesturlands og var
hún haldin með pompi og prakt
í Borgarnesi. Þetta árið verður
fjörið í Snæfellsbæ og aðalatriði
helgarinnar verður Gleðigangan
laugardaginn 23. júlí klukkan 14 í
Ólafsvík þar sem fjölbreytileikan-
um verður fagnað til að styðja við
réttindabaráttu hinsegin fólks á
Vesturlandi.
Hátíðin hefst á föstudaginn þar
sem samfélagsmiðlar af Vestur-
landi verða skreyttir í regnboga-
litunum með myllumerkjunum
#hinseginvest #hinseginvest22.
Systur halda sína fyrstu opinberu
tónleika frá því að þær tóku þátt í
Eurovision í Frystiklefanum á Rifi
klukkan 20.30 og kvöldinu lýkur
með Pallaballi í Grundarfirði.
Laugardagurinn hefst með
Regnbogakrossfiti á Smiðjugötu
5 á Rifi klukkan 10 og sjálf Gleði-
gangan fer síðan af stað klukkan 14
móts við Ólafsbraut 66, síðan er
gengið eftir Ólafsbraut, hring upp
Kirkjutún og endað í Sjómanna-
garðinum. Skemmtidagskrá verð-
ur í garðinum eftir göngu þar sem
kynnir verður dragdrottningin
Miss Agatha P. Meðal þeirra sem
koma fram eru Systur, hljómsveitin
Eva, Bolli og Bjalla úr Stund-
inni okkar, Fævý Blær Þórdísar og
Guðrún Steinunn Guðbrandsdótt-
ir forseti Hinsegin Vesturlands.
Hoppukastalar verða á svæðinu og
Regnbogabúð og sjoppa Hinseg-
in Vesturlands. DJ AlexanderAr-
on verður síðan með Queer AF
diskó á rekS frá klukkan 22 til 01
á laugardagskvöldinu og hátíðinni
lýkur síðan á sunnudeginum með
Regnbogasundlaugardiskói fyrir
alla fjölskylduna í Sundlaug Snæ-
fellsbæjar í Ólafsvík milli klukkan
13 og 14.
Sól og blíða og fjör
Skessuhorn heyrði í Guðrúnu
Steinunni Guðbrandsdóttur og
segir hún að undirbúningurinn
fyrir hátíðina hafi gengið mjög vel.
Hann hófst fljótlega eftir áramótin
en síðan hefur allt farið á fullt á
síðustu vikum. Að sögn eru þau í
mjög góðu samstarfi við Snæfells-
bæ og dagskráin verði á svipuð-
um nótum og í fyrra. „Við verðum
með þekkta tónlistarmenn og lítt
þekktari af Vesturlandi og einnig
fjölbreytt skemmtiatriði af ýmsum
toga. Við vonumst eftir fjölmenni
um helgina, við höfum fengið mjög
jákvæð viðbrögð og miðað við
undanfarna atburði eins og í Osló
nýverið þá vill fólk koma saman
og sýna stuðning og baráttuvilja.“
Gunna, eins og hún er jafnan köll-
uð, lofar góðri skemmtun í Snæ-
fellsbæ um helgina og segir að það
verði sól og blíða og fjör, það sé
stefnan og hún segir einnig að á
hátíðinni verði tilkynnt hvar næsta
Hinsegin hátíð Vesturlands verði
á nýju ári. „Við erum annars rosa
spennt fyrir helginni, þetta verður
megastuð frá föstudegi til sunnu-
dags. Endilega að koma og fagna
fjölbreytileikanum og styðja jafn-
réttisbaráttu og mæta með gleðina
að vopni,“ sagði Gunna að lokum,
ofurspennt fyrir helginni. vaks
Reykholtshátíð er ein elsta og
virtasta tónlistarhátíð landsins og
er haldin í júlí á hverju ári í Reyk-
holti í Borgarfirði. Hátíðin var fyrst
1997 og telst því til elstu tónlistar-
hátíða landsins. Hátíðin í ár fer
fram um næstu helgi, hefst föstu-
daginn 22. júlí og lýkur sunnu-
daginn 24. júlí.
Erlendu gestir hátíðarinnar
að þessu sinni verða víóluleikar-
inn Rita Porfiris og fiðluleikarinn
Anton Miller en saman skipa þau
Miller-Porfiris Duo. Farfuglarn-
ir í ár eru fiðluleikarinn Ari Þór
Vilhjálmsson og barintónsöngvar-
inn Oddur Arnþór Jónsson. Ari er
búsettur í Tel Aviv þar sem hann
starfar með Fílharmóníusveitinni
í Ísrael og Oddur er búsettur í
Salzburg. Nína Margrét Gríms-
dóttir píanóleikari mun leika bæði
kammer tónlist og með Oddi Arn-
þóri á hátíðinni.
Sellóleikarinn Sigurgeir Agnars-
son og flautuleikarinn Berglind
Stefánsdóttir eru tónleikagestum
Reykholtshátíðar að góðu kunn en
Sigurgeir var listrænn stjórnandi
hátíðarinnar í átta ár. Þau snúa nú
aftur til að spila í kirkjunni. List-
rænir stjórnendur hátíðarinnar,
víóluleikarinn Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir og sellóleikarinn Sig-
urður Bjarki Gunnarsson, leika
einnig á hátíðinni. Á efnisskránni
verða verk eftir Mozart, Karólínu
Eiríksdóttur, Schumann, Errolynn
Wallen, Weber, Malnborg Ward,
Dvorak, Jón Leifs, Strauss, Jór-
unni Viðar, Rossini, Huga Guð-
mundsson, Atla Heimi Sveinsson
og Beethoven.
Nánari upplýsingar um flytjend-
ur og dagskrá má nálgast á heima-
síðu hátíðarinnar reykholtshatid.is
og miðasala er á tix.is
vaks
Hátíðin Á góðri stundu er vina-
leg fjölskylduhátíð sem hugsuð
er fyrir Grundfirðinga, innfædda,
aðflutta og brottflutta, vini þeirra
og vandamenn og aðra gesti sem
eiga leið í bæjarfélagið. Í ár verð-
ur hátíðin í þeim anda sem var árið
2019, stór þriggja daga hátíð með
skreytingum og mörgum atriðum.
Eins og fyrr er áhersla lögð á að
þetta sé fjölskylduhátíð og einnig
sköpuð umgjörð fyrir þjónustu
og veitingaaðila til að sýna gest-
um hversu mikið bærinn hefur upp
á að bjóða og því verður mikið af
viðburðum gerðir af heimafólki. Í
vikunni fyrir hátíðina taka hverfin
í bænum boltann og skreyta sem
aldrei fyrr til að gera vel sjáanlegt
að hátíðin sé að renna í garð og
heyra svo á gestum hversu fallega
bærinn er skreyttur.
Fjörið hefst á morgun, fimmtu-
dag, með krakkaþjófstarti á Græna
og seinna um kvöldið skemmta
í hátíðartjaldinu Bjartmar Guð-
laugs, Karlakórinn Kári, Bryn-
dís Ásmunds, Rokkpiltarnir og
Söngdívur. Á föstudaginn býð-
ur Páll Óskar ungu kynslóðinni á
skemmtun í hátíðartjaldi, Kjörbúð-
in býður í grill, BMX Brós hjóla-
strákar verða á svæðinu, Íþrótta-
álfurinn, Brekkusöngur verður með
Sylvíu Rún og leynigestum, Ung-
mennaball og Páll Óskar verður
síðan með stórdansleik um kvöldið.
Á laugardaginn verða alls kyns
uppákomur, sýningar, söng-
skemmtanir, sérstakar hátíðar-
veitingar, eldfimi, froðugaman,
listsýningar, fróðleikur og erindi.
Keppnin Hvaða fjölskylda eru
snillingar Grundarfjarðar verður
um allan bæ, skrúðganga, tónleik-
ar og skemmtun á hátíðarsvæði,
pop up gleði og skemmtun hingað
og þangað eins og segir á FB síðu
hátíðarinnar.
„Við höfum lagt okkur fram við
að skipuleggja hátíð þar sem fjöl-
skyldan getur unnið og skemmt
sér saman og að það séu atriði og
skemmtun fyrir alla aldurshópa og
það er trú okkar að það líti vel út.
Það er alveg sama hvað við skipu-
leggjum og reynum að leggja okk-
ur fram, það verður engin hátíð án
þess að Grundfirðingar taki þátt
og ykkar framlag er mikilvægast.
Grundfirðingar taka þátt með því
að skreyta hverfin og hús sín og
koma á viðburði full af gleði og
stolti yfir þessum einstaka bæ sem
býr yfir miklum fjölda af hæfileika-
ríku fólki. Það er von okkar að þið
takið þátt og gerið hátíðina 2022
ógleymanlega.“
vaks
Hinseginhátíð
Vesturlands í
Snæfellsbæ um helgina
Regnbogagatan í Ólafsvík er nú tilbúin, en hún verður lokuð fyrir bílaumferð fram yfir hátíðina. Ljósm. Snæfellsbær
Reykholtshátíð
haldin um
næstu helgi
Á góðri stundu árið 2006. Ljósm úr safni.
Á góðri stundu í
Grundarfirði hefst á morgun