Skessuhorn - 29.07.2022, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 202220
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Sumarlesari vikunnar
Sumarlesturinn á bókasafninu
gengur eins og í sögu, krakkarn-
ir eru búnir að lesa rúmlega 45
þúsund blaðsíður og sjóræningjar
koma oft í heimsókn.
Hvað heitir þú og hvað ertu
gömul?
Ég heiti Hanna og er að verða 8
ára.
Hvaða bók varstu að lesa - og
hvernig var hún?
Ég var með tvær bækur en ég ætla
að segja þér frá bókinni: „Vig-
dís bókin um fyrsta konu forseta,“
hún var mjög skemmtileg.
Hvernig bækur eru skemmti-
legastar?
Svona bækur sem að eru skemmti-
legar, bara svona bækur sem að
láta mig bara lesa og lesa og lesa af
því hún er svo skemmtileg.
Hvar/hvenær er best að lesa ?
Uppi í rúmi á kvöldin.
Ef þú gætir galdrað hvaða töfra-
mátt myndir þú velja?
Að geta skrifað 100 bækur í einu.
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór?
Rithöfundur.
Ef þú átt tímavél, hvert mund-
ir þú fara?
Ég mundi vilja fara aftur í magann
á mömmu og sjá hvernig það var,
af því ég man það ekki.
Þær Anna Eiríksdóttir, sóknar-
prestur Stafholtsprestakalls, og
Elínborg Sturludóttir, dómkirkju-
prestur og fyrrverandi sóknar-
prestur í Stafholti, standa í sumar
fyrir Pílagrímagöngu milli kirkn-
anna í sókninni.
Mánudaginn 6. júní var geng-
ið frá Hvammskirkju í Norður-
árdal, yfir Grjótháls og að Norð-
tungukirkju en leiðin er um ell-
efu km. Miðvikudaginn 13. júlí
hélt hópurinn svo frá Norðtungu-
kirkju, gekk með bökkum Þverár
og að Hjarðarholtskirkju þar sem
Þorvaldur Tómas Jónsson bóndi
í Hjarðarholti leiddi hópinn með
ánni en leiðin er tíu km. Áætlað
er að ganga frá Hjarðarholtskirkju
og að Stafholtskirkju sunnudaginn
21. ágúst næstkomandi og ljúka þar
með pílagrímagöngunni sem endar
á helgistund í Stafholtskirkju.
sþ
Dagbjört Birna Magnúsardótt-
ir á Akranesi hélt um liðna helgi
fjögurra daga myndlistarsýningu
í Gamla Iðnskólanum við Skóla-
braut á Akranesi. Þetta var fyrsta
sýning hennar, en Dagbjört Birna
er þrettán ára og fermist á næsta
ári. Á sýningunni voru 23 akríl- og
vatnslitamyndir.
Aðspurð segist Dagbjört Birna
hafa málað frá því hún var smá-
stelpa. Hún hefur aðstöðu í kjallar-
anum heima hjá sér og nýtur þess
að æfa sig þar og skapa. Hún seg-
ist tvisvar sinnum hafa farið á nám-
skeið í málun, hjá listafólkinu Baska
og Ernu Hafnes. mm
Gönguhópurinn fyrir framan Norðtungukirkju 6. júní.
Pílagrímar ganga í Borgarfirði
Gönguhópurinn fyrir framan Hjarðarholtskirkju 13. júlí.
Þrettán ára hélt myndlistarsýningu
Dagbjört Birna Magnúsar-
dóttir og móðir hennar Eva
Hauksdóttir.