Skessuhorn - 29.07.2022, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 202222
Síðastliðinn miðvikudag héldu
pútthópar eldri borgara á Akra-
nesi og í Borgarbyggð annað mót
sumar sins af þremur. Þetta er
tíunda árið í röð sem félögin halda
þessa púttkeppni. Í júní var keppt í
Borgarnesi, nú í júlí á Akranesi og 4.
ágúst næstkomandi ráðast úrslitin
á Nesvelli í Reykholtsdal. Fyrir-
komulagið er þannig að árangur sjö
bestu kylfinga úr hvoru félagi telur.
Fyrir keppnina á miðvikudag höfðu
Borgfirðingar 34 högga forskot, en
það minnkaði í 24 högg. Veðrið lék
við þá 53 keppendur sem þátt tóku
á miðvikudaginn, eins og meðfylgj-
andi myndir frá deginum bera með
sér. Keppnin fór fram á tveimur
púttvöllum á Garðavelli.
mm
Fyrsti starfsvetur Íþróttafélagsins
Undra í Dalabyggð gekk glimr-
andi vel. Boðið var upp á fótbolta
og íþróttagrunn fyrir börn á yngsta
stigi grunnskóla, íþróttagrunn og
körfubolta fyrir miðstig og blak og
fótbolta fyrir elsta stig. Einnig var
félagsmönnum eldri en 16 ára boð-
ið á æfingar elsta stigs í blaki og fót-
bolta einu sinni í viku ásamt því að
boðið var upp á körfuboltaæfingu
einu sinni í viku. Foreldrar og for-
ráðamenn voru einkar duglegir að
skutla börnum sínum á æfingar og
erum við þeim þakklát fyrir það.
Fótboltamót var haldið fyrir
yngsta stig og var nágrönnum okk-
ar á Reykhólum og Hólmavík boð-
ið að vera með. Mótið heppnaðist
einstaklega vel og var sammælst um
að það yrði haldið aftur að ári.
Tvö lið frá Undra kepptu á Smá-
bæjarleikunum á Blönduósi og var
fjör og mikil gleði þrátt fyrir að
veðrið hafa ekki leikið við þátttak-
endur.
Hið árlega Sauðfellshlaup var
haldið 19. júní á vegum Rjóma-
búsins Erpsstaða og eins og áður
rennur allur ágóði til styrktar góðu
málefni í heimabyggð. Í ár varð
Íþróttafélagið Undri fyrir valinu og
erum við þeim hjónum á Erpsstöð-
um innilega þakklát fyrir stuðn-
inginn. Styrkurinn verður nýttur til
kaupa á búnaði fyrir næsta vetur en
nýjungar eru á dagskránni.
Bæjarhátíðin Heim í Búðardal
var haldin 30. júní til 3. júlí og lét-
um við í Undra ekki okkar kyrrt
eftir liggja og buðum upp á keppni í
undarlegum íþróttagreinum. Keppt
var í pörum, annað hvort einn full-
orðinn og eitt barn eða tvö börn
saman í liði. Rúmlega 60 manns
tóku þátt í keppninni þar sem
keppt var í pokahlaupi, pokarjóma-
þeytingu, stígvélakasti, barnsburði
og smiðshöggi. Veðrið var fínt og
var mikið hlegið og skemmtu kepp-
endur og áhorfendur sér vel.
Stjórnin er byrjuð að leggja drög
að dagskrá vetrarins og verður boð-
ið upp á nýjar æfingagreinar. Við
hlökkum mikið til að kynna æfinga-
töflu vetrarins á aðalfundi félagsins
í lok ágúst.
Með sumarkveðju,
Stjórn íþróttafélagsins Undra
Keppnin um sterkustu konu Íslands
fór fram á Akureyri síðastliðinn
laugardag. Sex keppendur voru
mættir til leiks, þeirra á meðal Ellen
Lind Ísaksdóttir sem hefur unnið
titilinn seinustu þrjú ár og Ragn-
heiður Ósk Jónasdóttir sem hefur
verið í öðru sæti þessi þrjú ár síðan
hún sjálf vann titilinn 2019. Hörð-
ust varð keppnin þeirra á milli en
það fór þó svo að Ragnheiður vann
með 28 stigum en Ellen varð í öðru
með 24 og fer titillinn því fimmta
árið í röð í Vogana þar sem bæði
Ellen og Ragnheiður eru búsettar.
Nýliðinn Erika Mjöll Jónsdóttir úr
Borgarnesi mætti sterk til leiks og
hafnaði í þriðja sæti, aðeins þrem-
ur stigum á eftir Ellen. Þá gerði
Ragnheiður sér lítið fyrir og bætti
Íslandsmetið í drumbalyftu og varð
fyrsta íslenska konan til að lyfta 100
kg.
Mótið um sterkustu konu Íslands
hefur nú verið haldið óslitið frá
2009, en var einnig haldið nokkrum
sinnum á níunda áratug síðustu
aldar. Í ár er þriðja árið í röð sem
mótið er tekið upp og sýnt í sjón-
varpi, og hefur stærð sportsins hjá
konunum og umgjörð stækkað ár
frá ári, en einnig hafa keppendur
orðið öflugri.
mm
Kári gerði sér ferð út fyrir land-
steinana á laugardaginn þegar þeir
mættu KFS í Vestmannaeyjum í 3.
deild karla í knattspyrnu og urðu að
sætta sig við tap, 2-1. Lítið mark-
vert gerðist í fyrri hálfleik en á sex
mínútna kafla um miðjan seinni
hálfleikinn skoruðu þeir Tómas
Bent Magnússon og Ás ge ir Elíasson
sitt hvort markið fyrir heimamenn
og komu KFS í tveggja marka for-
ystu. Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson
minnkaði muninn fyrir Kára sex
mínútum fyrir leikslok en lengra
komst Kári ekki og lokastaðan
naumur sigur KFS, 2-1.
Kári er nú í áttunda sæti deildar-
innar með 17 stig eftir tólf umferð-
ir en efst og jöfn eru KFG og Víð-
ir með 24 stig og neðstu tvö sætin
skipa lið ÍH og KH sem eru með
níu og átta stig. Næsti leikur Kára
er á móti Sindra næsta laugardag
í Akraneshöllinni og hefst klukk-
an 14.
vaks
KFB og Skallagrímur áttust við í A
riðli í 4. deild karla í knattspyrnu
á mánudaginn og fór leikurinn
fram á Álftanesi. KFB hafði unnið
einn sigur í tíu leikjum í riðlinum
til þessa á meðan Skallagrímur er
í baráttu um sæti í úrslitakeppn-
inni. Sergio Jorda kom Skallagrími
yfir eftir tæplega hálftíma leik og
þannig var staðan í hálfleik. Í þeim
seinni hrukku Skallarnir í gang og
skoruðu fimm mörk. Steindór Mar
Gunnarsson var með tvö mörk og
Viktor Ingi Jakobsson með eitt eft-
ir klukkutíma leik og síðan bættu
þeir Viktor Már Jónasson og Alexis
Alexandrenne við sitt hvoru mark-
inu eftir það, lokastaðan 0-6 fyrir
gestina úr Borgarnesi.
Staðan í riðlinum eftir tíu
umferðir er sú að Hvíti riddarinn er
efstur með 28 stig, Árbær er í öðru
sæti með 25 stig og Skallagrímur
með 24 stig. Liðin eiga eftir fjóra
leiki í riðlinum og bæði Skallagrím-
ur og Árbær eiga eftir leik við Hvíta
riddarann sem sker líklega úr um
hvaða tvö lið fara í úrslitakeppni
4. deildar í sumar. Næsti leik-
ur Skallagríms í riðlinum er næsta
mánudag gegn Kríu á Skallagríms-
velli og hefst klukkan 20. vaks
Skallagrímur með
stórsigur á KFB
KFS vann Kára út í Eyjum
Borgfirðingar og
Skagamenn á árlegu púttmóti
Fréttir af Íþróttafélaginu
Undra í Dölum
Keppt í pokahlaupi, pokarjómaþeytingu, stígvélakasti, barnsburði og smiðshöggi
Lið sem keppti á Fótboltafjöri Undra í mars.
Keppnin um sterkustu konu Íslands
Frá vinstri: Snæfríður, Hanna, Erika Mjöll, Ragnheiður, Ellen og Veiga.
Ljósm. Árni Már Árnason
Ragnheiður snarar
hér 100 kílóa
drumbi á loft og
varð fyrsta íslenska
konan til að lyfta
þeirri þyngd.