Vesturbæjarblaðið - dec 2021, Qupperneq 2

Vesturbæjarblaðið - dec 2021, Qupperneq 2
2 Vesturbæjarblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími: 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son Um brot: Valur Kristjánsson Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Póstdreifing ehf. 12. tbl. 24. árgangur Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107, 102 og 101. V ið síðustu aldamót ríkti bjartsýni. Járntjaldið var fallið. Sovétríkin höfðu liðast í sundur. Kínverjar höfðu sýnt andlit verslunar og viðskipta í stað Maoismans. Í byrjun aldar blómstraði viðskiptalíf. Einkum um hinn vestrænna heim en einnig víðar. Bankar og sjóðir þöndust út. Eins og peninga væri alls staðar að finna. Þessi þróun og bjartsýni lét Ísland ekki ósnortið. Ný einkavæddir bankar tóku kapphlaupið á fullri ferð. Fé – einkum lánsfé streymdi inn í landið sem aldrei fyrr. Íslendingar vildu mynda fyrirmyndar fjármálaríki á örskammri stundu. Allir áttu að græða. Reyndin varð allt önnur. Bæði hér og víðar. Með falli Lehman brothers bankans vestra fór af stað skriða kreppu. Einkum um Vesturlönd. Hér á landi féll hið nýskapaða bankakerfi á einni viku. Bankahrunið hafði margvísleg áhrif eins og menn þekkja. Vart höfðu þjóðir heims náð að jafna sig á hruninu þegar næsta vofa birtist og öllu skæðari en menn höfðu getað hugað sér. Veirufaraldur barst frá Kína og dreifðist með ógnarhraða um víða veröld. Faraldur sem haft hefur mikil áhrif og alls ekki er séð fyrir endann á. Þrátt fyrir þýðu sem vonast var eftir milli heimshluta hafa samskipti þeirra ekki batnað. Fyrir Rússum virðist vaka að endurheimta einhvern hluta gömlu Sovétríkjanna og framleiða hergögn í óða önn. Kínverjar fara fremur leið viðskipta til vesturs en reyna einnig að innlima nágrannasamfélög sem þeir telja sig eiga. Popúlískir hægriöfgaflokkar hafa skotið upp kollinum á Vesturlöndum. Sums staðar hafa þeir náð nokkrum áhrifum en óvíst er um framtíð þeirra. Hér er hafði annað kjörtímabil ólíkra stjórnmálaflokka. Á síðasta kjörtímabili var ágreiningarefnum þeirra á milli ýtt til hliðar. Litlar líkur eru til annars en svo verði áfram. Íslenska þjóðareðlið er seinþreytt til mikilla breytinga. Svo er sýnin við komandi áramót. Að áramótum DESEMBER 2021 Netverslun: systrasamlagid.is ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR www.husavidgerdir.is/hafa-samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á Fegrun og lenging líftíma steyptra mannvirkja er okkar áhugamál. Við höfum náð góðum árangri í margs konar múr- og steypuviðgerðum, múrfiltun, steiningu og múrklæðningum. Hafðu samband Við skoðum og gerum tilboð! Hluta nemenda Hagaskóla er nú kennt á Hótel Sögu og í Háskólabíó. Alls er um að ræða tvo þriðju hluta af nemendum skólans. Þetta gerðist eftir að mygla fannst í húsnæðinu þar sem ákveðnir bekkir stunda nám. Skólastjóri Hagaskóla segir stöðuna í skólanum sérstaka. Aðeins einn árgangur sé eftir í húsnæði skólans þar sem mygla hefur fundist í álmum áttunda og níunda bekkjar. Þá sé einnig mögulegt að mygla leynist í álmu tíunda bekkjar. Unnið er að endurbótum en ómögulegt er að segja hversu langan tíma það muni taka. Sýni hafi verið tekin víða í húsnæði skólans síðustu vikur. Frumniðurstöður sýna myglu í rými 9. bekkjar. Ekki er ljóst hvar kennsla 9. bekkjar fer fram næstu vikur og þurfa skólastjórnendur einn til tvo daga til að finna húsnæði og skipuleggja kennslu. Rakaskemmdir fundust á gangi álmunnar sem nemendur 10. bekkjar eru í. Álman er í frekari skoðun og er endanleg ástandsskýrsla verkfræðistofunnar Eflu í vinnslu. Nemendum kennt á Sögu og í Háskólabíó Rakaskemmdir hafa fundist í Hagaskóla. Mygla í Hagaskóla Vinn ingstil laga í hönn un ar sam keppni um nýja brú yfir Foss vog hefur litið dagsins ljós. Hún ber nafnið Alda og var unn in af Eflu verk fræðistofu. Alls bárust 15 til lög ur á fyrra þrepi keppn inn ar, en til lög urn ar þrjár sem hlutu flest stig á fyrra stigi áttu það sam eig in legt að upp fylla skil yrði útboðs­ hald ara og að vera fal legt kenni leiti Verk efn in Alda, Hval bak og Sjón arrönd hlutu flest stig í keppninni. Á kynningarfundi þar sem vinningstilögurnar voru kynntar kom fram að í til lög um Öldu væri horft til þess að vest an meg in á brúnni væri hröð hjólandi um ferð. Aust an meg in á henni væri hæg hjólandi um ferð og um ferð gang andi og í miðjunni væri svo ak rein fyr ir borg ar línu vagna. Vinningstillaga um Fossvogsbrú Tölvugerð mynd af vinningstillögunni.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.