Vesturbæjarblaðið - des. 2021, Síða 18

Vesturbæjarblaðið - des. 2021, Síða 18
18 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2021 Umhverfismál rædd á réttindaráðsfundi Margt var um að vera á réttindaráðsfundi í Vesturbæjarskóla. Börnin í Réttindaráði gengu um skólann og gerðu úttekt á nokkrum atriðum varðandi Réttindaskóla. Meðal þess sem var á gátlistanum var hvort Barnasáttmálinn og bekkjarsáttmáli væri sýnilegur og hvort bekkjarfundir væru haldnir í hverri viku. Úttektin gekk mjög vel og mun ráðið ganga aftur um skólann fljótlega og sjá hvort búið sé að gera úrbætur þar sem þarf. Á fundinum ræddum við um umhverfismál og skoðuðum hafið í sýndarveruleika. Við ræddum plastnotkun og hvað við getum gert til þess að hafa áhrif. Meðal þess sem börnin sögðu var að flokka, týna rusl, kaupa minna, breyta neysluhegðun okkar og endurnýta meira. Af þessu tilefni er hér bréf til foreldra frá Réttindaráði til vekja fólk til umhugsunar varðandi plastnotkun. Kæru foreldrar Við í Réttindaráði viljum benda á að við í Vesturbæjarskóla tökum afstöðu með umhverfinu og við minnum ykkur á að senda börnin með fjölnota umbúðir fyrir nesti. Nú eru jólin að koma og við viljum minnka plastmengun til dæmis með því að endurnýta gjafapappírinn og kaupa umhverfisvænari gjafir. Kveðja Réttindaráð Vesturbæjarskóla Réttindaráð í Vesturbæjar- skóla. Laugardaginn 20. nóvember fagnaði samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, eða barnasáttmálinn eins og við köllum hann alla jafna, 32 ára afmæli sínu. Frístundaheimili Tjarnarinnar tóku af því tilefni stóran hluta af nóvember undir það að setja sáttmálann og réttindi barna sérstaklega í brennidepilinn, en barnasáttmálinn skipar alla jafna veigamikinn sess í starfinu, honum var bara gert sérstaklega hátt undir höfði í afmælismánuðinum. Meðal annars eru fjögur af sjö frístundaheimilum okkar komin með vottun sem réttindafrístund Unicef, fimmta frístundaheimilið hefur hafið vinnuna við að fá vottun og öll, sama hvort þau eru með vottun sem réttindafrístund eða ekki vinna eftir grunnstefjum barnasáttmálans, sem einnig mynda grunntóninn í menntastefnu Reykjavíkurborgar. Ýmislegt var brasað og gert til að kynna börnin fyrir sáttmálanum og þeim réttindum sem hann tryggir þeim, bæði í gegnum leik og beina fræðslu. Samræður skipuðu stóran sess og m.a. var rætt um muninn á réttindum og forréttindum, en út frá því sköpuðust ýmsar áhugaverðar umræður eins og t.d. að sumum börnum finnst það t.d. vera réttindi en ekki forréttindi að eiga síma því sími sé öryggistæki og börn eigi rétt á öryggi! Það er erfitt að mótmæla svona góðum rökum og við erum ótrúlega stolt af því hvað börnin voru liðtæk í samræðunum og hvað þau er góð í að tjá sig og færa góð rök fyrir skoðunum sínum. Geri aðrir betur! En þetta var samt ekki allt eintómur dans á rósum. Ilkvittnir einræðisherrar sáu sér leik á borði og sviptu börnin á augabragði valfrelsi sínu og réttinum til að hafa eitthvað um daginn sinn að segja! Sem betur fer stóðu þau sterk saman og nýttu sér rödd sína og kraftinn sem felst í sameiningunni og veltu þessum ómögulegu einræðisherrum úr stóli og endurheimtu sín dýrmætu réttindi. Gott ef sumir kunna ekki bara betur að meta þau eftir þessa uppákomu. Starfsfólk í lykilstöðu Við sem störfum á vettvangi frítímans segjum oft að starfsfólk okkar sé í algjörri lykilstöðu til að hafa áhrif á viðhorf barna til frambúðar og því sé gríðarlega mikilvægt að við vöndum til verka og sinnum hlutverki okkar sem fræðarar af fagmennsku, metnaði og alúð. Við erum þó ekki þau einu sem geta sinnt þessu hlutverki, en börnin sjálf geta gegnt mjög mikilvægu hlutverki við að hafa áhrif á viðhorf fólks og fræða aðra. Því föndruðu þau spjöld sem þau gengu með um í nærumhverfi sínu þar sem þau minntu vegfarendur á réttindi barna, þau föndruðu falleg hjörtu og lauf sem þau skrifuðu tiltekin réttindi á og ýmist settu í póstkassa hjá fólki í nágrenninu eða hengdu á hurðarhúna og þau hengdu upp veggspjöld í búðum og fyrirtækjum í nágrenninu, allt til þess að fræða aðra um barnasáttmálann og réttindi barna. Og að sjálfsögðu gleymdu þau ekki ráðamönnum sem taka margar afdrifaríkar ákvarðanir varðandi málefni barna og því fór hópur frá okkur á fund borgarstjóra og afhenti honum afmæliskort þar sem hann var minntur á barnasáttmálann og þær skyldur sem hann ber sem borgarstjóri gagnvart honum og þeim sem börnum. Höfum við fulla trú á að þetta hafi skilið mikið eftir hjá öllum sem tóku þátt í þessum skemmtilegu verkefnum og við höfum engar áhyggjur af framtíðinni í höndum þessara krakka sem eru alin upp í anda lýðræðis, friðar og umburðarlyndis. Framtíðin er björt með þau í fararbroddi. Á myndunum má sjá ýmis verkefni sem börnin unnu í barnaréttindavikunni. Myndir - Tjörnin. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 32 ára Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Gómsæti í göngufæri Geirsgata 1 • Sími 511 1888 Vesturbæjarskóli Afmælisins minnst í Tjörninni

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.