Feykir


Feykir - 18.08.2021, Side 10

Feykir - 18.08.2021, Side 10
Úrsúla Ósk Lindudóttir á heima á Skálá í Sléttuhlíð ásamt kærastanum sínum Arnari Bjarka og átta mánaða dóttur þeirra Heru. Þau eru með mjólkurbú, naut, hesta, kindur og eina geit og kiðlingana hennar. Arnar á labrador- rakka sem heitir Simbi og Úrsúla á Ástralska tík sem heitir Apríl. Hve lengi hefur þú stundað hannyrðir? Ég byrjaði auðvitað að læra í grunn- skóla, reyndi svo einhvern tíman stuttu eftir fermingu að prjóna mína fyrstu peysu sem endaði með mikilli upp- rakningu þannig ég gafst upp og hætti. Það er ekki nema u.þ.b. ár sem ég lét á þetta reyna aftur og fékk þá algjört æði. Svo fór ég á saumanámskeið hjá Verðandi endurnýtingarmiðstöð á Hofsósi og saumaði snyrtibuddur. Hvaða handavinna þykir þér skemmti- legust? Ég er ekki komin lengra en prjónið og ég hef mjög gaman að því að prjóna þessar týpisku lokuðu peysur með munstri. Er hrifnari af því að prjóna upp heldur en niður. Hverju ertu að vinna að um þessar mundir? Ég er búin að vera í smá pásu núna eftir að ég prjónaði yfir mig eftir meðgönguna og fæðingarorlof. Það gefst ekkert svakalega mikill tími til þess að taka í prjónana eins og er en ég stefni á að taka upp prjónana aftur. Hvar fékkstu hugmyndina? Það er margt fólk í kringum mig sem prjónar og núna finnst mér eins og það hafi byrjað einhver prjónabylgja og allir farnir að prjóna og ég svo sannarlega tók þátt í því, enda ótrúlega skemmti- legt og gaman að geta átt svona eftir sig og montað sig aðeins. Hvaða handverk sem þú hefur unnið ertu ánægðust með? Peysan Hófa- dynur frá lopidesign sem ég gerði á Arnar. Ég ætlaði ekki að tíma að gefa honum peysuna fyrst en ég hef notað hana mest megnis. Ætli ég endi ekki á því að prjóna aðra á sjálfa mig. Eitthvað sem þú vilt bæta við? Æfingin skapar meistarann og þolinmæðin kemur einhvers staðar á leiðinni. - - - - Úrsúla skorar á Hugrúnu Líf Magnúsdóttur. Þolinmæðin kemur einhvers staðar á leiðinni ( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) klara@nyprent.is Úrsúla Ósk Lindudóttir á Skálá í Slétthlíð Él frá lopidesign Hófadynur frá lopidesign Ágætis byrjun frá stroff.is Úrsúla Ósk Lindudóttir með Heru dóttur sína. AÐSENDAR MYNDIR Nótt eftir nótt stroff.is 10 31/2021

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.