Feykir - 18.08.2021, Síða 10
Úrsúla Ósk Lindudóttir á heima á Skálá
í Sléttuhlíð ásamt kærastanum sínum
Arnari Bjarka og átta mánaða dóttur
þeirra Heru. Þau eru með mjólkurbú,
naut, hesta, kindur og eina geit og
kiðlingana hennar. Arnar á labrador-
rakka sem heitir Simbi og Úrsúla á
Ástralska tík sem heitir Apríl.
Hve lengi hefur þú stundað hannyrðir?
Ég byrjaði auðvitað að læra í grunn-
skóla, reyndi svo einhvern tíman stuttu
eftir fermingu að prjóna mína fyrstu
peysu sem endaði með mikilli upp-
rakningu þannig ég gafst upp og hætti.
Það er ekki nema u.þ.b. ár sem ég lét
á þetta reyna aftur og fékk þá algjört
æði. Svo fór ég á saumanámskeið hjá
Verðandi endurnýtingarmiðstöð á
Hofsósi og saumaði snyrtibuddur.
Hvaða handavinna þykir þér skemmti-
legust? Ég er ekki komin lengra en
prjónið og ég hef mjög gaman að því að
prjóna þessar týpisku lokuðu peysur
með munstri. Er hrifnari af því að
prjóna upp heldur en niður.
Hverju ertu að vinna að um þessar
mundir? Ég er búin að vera í smá pásu
núna eftir að ég prjónaði yfir mig eftir
meðgönguna og fæðingarorlof. Það
gefst ekkert svakalega mikill tími til
þess að taka í prjónana eins og er en ég
stefni á að taka upp prjónana aftur.
Hvar fékkstu hugmyndina? Það er
margt fólk í kringum mig sem prjónar
og núna finnst mér eins og það hafi
byrjað einhver prjónabylgja og allir
farnir að prjóna og ég svo sannarlega
tók þátt í því, enda ótrúlega skemmti-
legt og gaman að geta átt svona eftir sig
og montað sig aðeins.
Hvaða handverk sem þú hefur unnið
ertu ánægðust með? Peysan Hófa-
dynur frá lopidesign sem ég gerði á
Arnar. Ég ætlaði ekki að tíma að gefa
honum peysuna fyrst en ég hef notað
hana mest megnis. Ætli ég endi ekki á
því að prjóna aðra á sjálfa mig.
Eitthvað sem þú vilt bæta við? Æfingin
skapar meistarann og þolinmæðin
kemur einhvers staðar á leiðinni.
- - - -
Úrsúla skorar á
Hugrúnu Líf Magnúsdóttur.
Þolinmæðin kemur einhvers staðar á leiðinni
( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) klara@nyprent.is
Úrsúla Ósk Lindudóttir á Skálá í Slétthlíð
Él frá lopidesign Hófadynur frá lopidesign
Ágætis byrjun frá stroff.is
Úrsúla Ósk Lindudóttir með Heru dóttur sína. AÐSENDAR MYNDIR
Nótt eftir nótt stroff.is
10 31/2021