Feykir - 18.08.2021, Síða 12
Á prestskaparárum séra
Sigfúsar Jónssonar á
Mælifelli [í Skagafirði]
var það í smalamennsku
að prestur vildi verða að
liði í göngunum og fór í
fyrirstöðu, líklega á
Háubrekku eða hálsin-
um milli Mælifellsdals
og Hamraheiðar. Einhverra hluta vegna lenti allt í
handaskolum hjá presti svo að féð streymdi fram hjá
honum hvaðanæva og rann ýmsum smalamönnum í
skap er þeir urðu þessa vísir. Guðni Guðnason á Mið-
völlum var gangnastjóri og líkaði stórilla svo að hann
fékk ekki orða bundist er hann hitti prest, gleymdi þó
ekki formlegheitunum en sagði allæstur: ,,Þér standið
yður skítt, séra Sigfús. /Byggðasaga Skagafjarðar 3. bindi
Byggðasögumoli | palli@feykir.is
Þér standið yður skítt,
séra Sigfús
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
31
TBL
18. ágúst 2021 41. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Síðastliðna viku fóru Körfuboltabúðir
Tindastóls fram á Sauðárkróki frá mánudegi til
föstudags. Rúmlega 40 krakkar úr 14 félögum á
aldrinum 12 til 16 ára sóttu búðirnar og stór
hluti þeirra var í fullu fæði og húsnæði á Hótel
Miklagarði. Helgi Freyr Margeirsson er
yfirþjálfari körfuboltabúðanna og átti
blaðamaður Feykis samtal við hann er hann
heimsótti búðirnar í síðustu viku.
„Markmiðið fyrst og fremst er að skapa gott umhverfi
fyrir krakkana til þess að einbeita sér að körfubolta í
heila viku, þetta er bara númer eitt, tvö og þrjú, þau
eru að lifa atvinnumannalífi í raun. Þau eru að fá
frábæra þjálfun og fá hana í toppumhverfi.“
Helgi stóð ekki einn að þjálfuninni því með
honum var einvalalið þjálfara. Má þar nefna Ísak Óla
Traustason, Árna Eggert Harðarson, Sigurð Gunnar
Þorsteinsson, Söru Rún Hinriksdóttur, Friðrik Hrafn
Jóhannsson, Örvar Frey Harðarson, Bjarka Ármann
Oddsson og Snædísi Árnadóttur sem sér einnig um
verkefnastjórn ásamt Evu Rún Dagsdóttur.
„Fyrir okkur þjálfarana erum við að nýta okkar
þekkingu og reynslu, læra hvert af öðru sem er líka
mikilvægt fyrir okkur og svo fyrir klúbbinn og
bæjarfélagið. Þetta er í rauninni bæði frumsýning og
generalprufa fyrir framtíðina finnst mér, því þetta er
eitthvað sem koma skal.“
Helgi segir að stefnt sé að því að halda búðirnar
árlega héðan í frá. Hér sé allt til staðar á einum og
sama blettinum og öll aðstaða eins og best verður á
kosið. /SMH
Körfuboltabúðir Tindastóls
Krakkarnir fengu að lifa
atvinnumannalífi í viku
RÉTTIR food festival 2021- 10 daga matarhátíð
á Norðurlandi vestra er hafin. Hátíðin var sett á
laggirnar sumarið 2019 en þar sýna matvæla-
framleiðeiðendur og veitingastaðir á svæðinu
heimafólki og gestum sínar bestu hliðar í mat
og drykk.
Í ár fer hátíðin fram frá 13. til 22. ágúst með fjölda
viðburða á öllu svæðinu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir ráðherra ferðamála, dró fána hátíðarinnar
að hún við veitingastaðinn Sjávarborg á Hvamms-
tanga sl. fimmtudagskvöld.
Hátíðin í ár er býsna fjölbreytt þar sem gestgjafar
eru ýmist að hampa því, sem þeir eru að fást við
dagsdaglega og þá jafnvel með einhverju nýju tvisti
eða eru hreinlega að kynna eitthvað nýtt. Kynning á
nýlegri ostavinnslu á Brúnastöðum í Fljótum eða
námskeið í bruggun á Kombucha heilsudrykk vekja
eflaust forvitni margra. En svo eiga „gamlir
kunningjar“ eins og Bílakaffihlaðborðið í Stóragerði
eða þriggja rétta seðillin „Brot af því besta“ hjá
Sjávarborg á Hvammstanga eftir að gleðja marga
bragðlaukana.
Það er sérlegt ánægjuefni að tveir glænýir veit-
ingastaðir, Retro mathús á Hofsósi og Harbour
restaurant á Skagaströnd, taki þátt og verði með við-
burði á hátíðinni.
Uppleggið að hátíðinni er mjög nálægt upprun-
anum, þrátt fyrir aðstæður, en gestgjafar eru spenntir
að fá að sýna og sanna hversu vel Norðurland vestra
býr þegar kemur að matvælum úr héraði og
hugmyndaríkum veitingamönnum- og konum.
Við ítrekum að allir gestgjafar eru mjög vakandi um
að sinna öllum þeim ráðstöfunum, sem aðstæðurnar
þessar vikurnar kalla á og við væntum þess að gestir
sinni því á sama hátt. /Fréttatilkynning
Verði ykkur að góðu!
RÉTTIR hefjast
Þáttakendur og þjálfarar í Körfuboltabúðum Tindastóls. MYNDIR: KÖRFUBOLTABÚÐIR TINDASTÓLS
Menntun, skemmtun körfubolti á Króknum.