Morgunblaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022 Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is „Ég hef verið að reyna að ná í Ólaf, en hann skellir bara á mig. Hann ætlar bara ekkert að gera í þessu,“ segir Hafsteinn Hafsteinsson, eldri borgari og fv. forstjóri Landhelgis- gæslunnar, um samskipti sín við Ólaf Arnarson, pistlahöfund og fv. for- mann Neytendasamtakanna. Málavextir eru þeir að 20. apríl 2019 var Hafsteinn að fara í Costco í Garðabæ. „Það var bíll sem bakkaði út úr bílastæði og ég keyrði inn í stæðið. Þegar ég er kominn út úr bílnum, kemur Ólafur Arnarson og segir að ég hafi tekið bílastæðið af honum og að hann hafi gefið stefnu- ljós. Ég sagðist ekki hafa séð hann, en fékk reiðilestur frá honum sem ég vil ekkert hafa eftir. Hann nálgaðist mig mjög ógnandi og sparkaði í aft- urhurðina á bíl mínum og dældaði hana. Mér fannst ég lítið geta gert og settist inn í bílinn. Ungur maður bankaði svo á gluggann hjá mér og sagðist hafa orðið vitni að þessu.“ Hafsteinn hringdi í lögregluna, sem tók af honum skýrslu og vitninu. Málið var tekið fyrir 18. maí 2020 og féll dómur 29. maí 2020 þar sem Ólafi var gert að greiða ríkissjóði 95.000 krónur og allan sakarkostnað máls- ins, 350.000 krónur. Kröfu Hafsteins um greiðslu viðgerðarkostnaðar á bílnum var vísað frá þar sem gögn þóttu vanreifuð, vegna áætlaðs kostnaðar í stað greiddra reikninga. Hafsteinn segist búinn að marg- reyna að ná í Ólaf án árangurs. „Svo birtir Fréttablaðið, þar sem Ólafur skrifar pistla, frétt í janúar 2020 þar sem hann segist alsaklaus. En því var ekkert fylgt eftir þegar dómur var felldur. Ég hef rætt þetta við rit- stjóra Fréttablaðsins og sent honum þrjú bréf, en þó að hann hafi fullyrt við mig að hann svaraði öllum bréf- um þá heyrist ekki múkk frá honum. Það er ekkert hlustað á eldri borg- ara.“ Þegar haft var samband við Ólaf vildi hann ekki láta hafa neitt eftir sér í tengslum við málið. „Ekkert hlustað á eldri borgara“ - Hafsteinn ósáttur við Ólaf Arnarson Morgunblaðið/Björn Jóhann Við bílinn Hafsteinn Hafsteinsson, fv. forstjóri Landhelgisgæslunnar, er ósáttur við að bera kostnað af 214 þúsund króna tjóni sem hann varð fyrir. Sameyki, fjölmennasta stéttarfélag opinberra starfsmanna, býr sig und- ir harða kjarabaráttu þegar kjara- samningar verða endurnýjaðir. Samþykkt var á aðalfundi Sameykis sl. fimmtudag með miklum meiri- hluta í atkvæðagreiðslu að hækka gjald félagsmanna til að styrkja vinnudeilusjóð félagsins. Haft er eftir Þórarni Eyfjörð, for- manni Sameykis, í tilkynningu í gær að í ljósi þess hvernig umræðan hef- ur verið í samfélaginu á vettvangi at- vinnurekenda og samtaka þeirra beri Sameyki að búa sig undir átök með því að efla vinnudeilusjóð. Hugsanlega séu atvinnurekendur að hlaða í átök. Þá segir Þórarinn að þrengt sé að lífgæðum með ásókn í opinbera innviði þjóðarinnar ásamt aðgerðaleysi stjórnvalda í jöfnun launa á milli markaða og Sameyki verði tilbúið undir þær deilur með sterkari vinnudeilusjóði. „Sagði Þór- arinn að síðasta stóra verkfallið hafi verið 2015 og fram undan má ætla að kjarasamningsviðræður verði erf- iðar og kröfugerðin fyrir næstu kjarasamninga verður önnur en í þeim síðustu þegar samið var á grundvelli samninga sem tókust á milli almenna vinnumarkaðarins og Samtaka atvinnulífsins,“ segir þar. Morgunblaðið/Ómar Baráttufundur Sameyki býr sig undir harðar vinnudeilur. Sameyki býr sig undir átök - Bætt í vinnudeilusjóð B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 LAXDAL er í leiðinni • laxdal.is Klassískir vorfrakkar Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Söfnunarsímar: 908-1101 fyrir 1000 kr. 908-1103 fyrir 3000 kr. 908-1105 fyrir 5000 kr. Landssöfnun Lions Rauða fjöðrin 31. mars - 3. apríl Til styrktar leiðsöguhundaverkefni Blindrafélagsins Hringdu núna! Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, hlaut Blaðamanna- verðlaun Blaðamannafélagsins fyrir viðtal ársins 2021 við hátíðlega at- höfn í húsakynnum Blaðamanna- félagsins í gær. Viðtalið tók hún við Óla Björn Pétursson, þar sem hann greinir frá grófu kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir á unglingsaldri. Í rökstuðningi fyrir verðlauna- veitingunni er frásögnin talin slá- andi en afar upplýsandi, enda sæki hún á lesandann sem fái raunsanna lýsingu á því hvernig unglingur er ginntur af barnaníðingi. Var Óla haldið með hótunum og ofbeldi en tókst honum síðar að losa sig og end- urheimta líf sitt. Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson, blaðamenn á Kjarn- anum, fengu verðlaun fyrir rann- sóknarblaðamennsku ársins. Verðlaun fyrir bestu umfjöllun ársins hlaut Sunna Karen Sigur- þórsdóttir, blaðamaður á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi, fyrir umfjöllun um tilefnislausar lífslokameðferðir af hálfu læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Loks hlaut Aðalsteinn Kjart- ansson, blaðamaður á Stundinni, blaðamannaverðlaun ársins fyrir umfjallanir sínar um fjölda mála á borð við eignatengsl íslenskra sjáv- arútvegsfyrirtækja, rannsókn lög- regluyfirvalda á Samherja, skæru- liðadeild Samherja og aflandsleka í svonefndum Pandóruskjölum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verðlaunahafi Ásdís hlaut verðlaunin fyrir viðtal við Óla Björn Pétursson þar sem hann greinir frá grófu ofbeldi. Ásdís með viðtal ársins - Hlaut Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélagsins 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.