Morgunblaðið - 02.04.2022, Síða 38

Morgunblaðið - 02.04.2022, Síða 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022 –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 26. apríl 2022 Auglýsendur athugið SÉRBLAÐ B A BLAÐ 40 ÁRA Katrín er frá Fáskrúðsfirði en býr í Steinholti á Fljótsdalshéraði. Hún er þýskukennari við Mennta- skólann á Egilsstöðum. Katrín er í stjórn Kennarafélags ME, starfs- mannafélagsins Búbótar og Kvenfélags Eiðaþinghár. „Áhugamál Katrínar er samvera með góðu fólki. „Ekki skemm- ir ef skíðin eða veiðistöngin er með í för.“ FJÖLSKYLDA Eiginmaður Katrínar er Björgvin Steinar Friðriksson, f. 1979, véltæknifræðingur hjá Verkráði. Börn þeirra eru Daníel Friðrik, f. 2005, Freyja, f. 2011, Elínborg, f. 2014, og Haukur Högni, f. 2016. Foreldrar Katr- ínar: Högni Skaftason, f. 1946, d. 2017, skipstjóri og Ingeborg Eide Hansdóttir, f. 1947, leiðbeinandi á leikskóla og hús- móðir. Hún er búsett á Egilsstöðum. Katrín Högnadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Peningar renna milli fingranna á þér um þessar mundir vegna óvæntra útgjalda og óhaminnar eyðslu. Ræddu sameiginlega ábyrgð við maka og gakktu frá smáatriðum. 20. apríl - 20. maí + Naut Líttu á björtu hliðarnar og gerðu þér sem flest að gamni. Skrifaðu, málaðu, syngdu, allt eftir þínu höfði og þú munt yngjast um mörg ár! 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það er óðs manns æði að leggja út í vandasamar samningaviðræður án þess að kynna sér málin fyrst ofan í kjölinn. Stígðu varlega til jarðar. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Farðu varlega í samskiptum þínum við vini og vandamenn. Varastu að dæma hlutina af fyrstu kynnum því oft ber yf- irborðið ekki með sér hvað undir býr. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú hefur lokað á sköpunarhæfileika þína um tíma svo nú verður ekki lengur við unað. Láttu það eftir þér að gera eitthvað það, sem hugurinn þinn stendur til. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú stendur á krossgötum þessa dag- ana. Vinátta sem rænir þig krafti og ást- arsambönd sem ýta undir allt annað en ást- ríki verða að heyra sögunni til. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ert fullur af orku og veist ekki alveg hvernig þú átt að þér að vera. Einbeittu þér að heimili og fjölskyldu í dag. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú hefur hæfileika, en stund- um er erfitt að vita hvernig maður á að nota þá sem best. Samstarf þitt við aðra byggist á því að þú getir breytt til. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Nú þarftu að taka þig á hvort sem þér líkar betur eða verr. Enginn bíður af því meiri hnekki en þú sjálfur ef þú reynir að olnboga þig áfram á annarra kostnað. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú þarft að færa fórnir, en þær eru ekki of erfiðar þegar þú gerir þér grein fyrir öllu það góða sem af þeim getur leitt. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú færð tækifæri til þess að hitta skemmtilegt fólk og skalt njóta augna- bliksins. Skyldan kallar svo þú þarft að gera þitt besta til að skipuleggja þig. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Nú þarft þú að taka frumkvæðið og laða svo aðra til samstarfs við þig. Sýndu fyrirhyggju og gerðu áætlanir um framtíðina og mættu erfiðleikum með bros á vör. brennandi áhuga á sögu og bók- menntum og hefur sótt mörg nám- skeið við Endurmenntun Háskóla Íslands því tengd og les mikið enn í dag. Samfélagsmál hafa einnig átt hug hennar, enda alin upp hjá þekktum vinstrimanni. Sjálf var hún í framboði fyrir Framsóknar- flokkinn í bæjarstjórnarmálum og sótti líka fundi hjá Rauðsokkum. Í gegnum nám og störf sín sem atvinnurekandi og á sjúkrahús- unum hefur Hrafnhildur eignast stóran og tryggan vinahóp sem hef- ur verið henni mjög mikilvægur og kær. Hún hefur ferðast mikið og var tíður gestur á heimili barna sinna en þau dvöldu langtímum er- lendis við nám og störf og býr yngsta dóttirin enn erlendis. „Maður er búinn að eiga svo margar góðar stundir og það sem lífið býður upp á, en mínar bestu stundir voru á kvöldin þegar ég breiddi yfir öll börnin mín þrjú og kyssti þau á heitar og rjóðar kinn- arnar. Þá fannst mér ég vera full- komlega hamingjusöm.“ Fjölskylda Hrafnhildur giftist 26.5. 1951 Guðbirni Guðjónssyni, f. 21.6. 1925, d. 6.6. 2000, bryta og síðar stór- hún æfðu úrvalsliði á að skipa.“ Enn fremur segir: „Yfir staðnum og sumarstarfinu þar svífur andi húsmóðurinnar Hrafnhildar Helga- dóttur. Henni hefur tekist að setja mildan, hlýjan og persónulegan svip á þetta stóra gestaheimili eins og góðri húsfreyju best sæmir.“ Eftir 13 ára hótelstjórn í Bifröst í Borgarfirði tók hún sér stutt leyfi frá hótelrekstri en opnaði síðan Sumarhótelið að Hallormsstað í barnaskólanum þar í skóginum og rak það í sex sumur. Eftir að þessum starfsferli lauk, hóf hún nám að nýju og innritaði sig við öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð sem þá hafði nýtekið til starfa og lauk þaðan stúdents- prófi vorið 1976. „Mér fannst námið afar skemmtilegt og naut ég þess að stunda nám á þessum árum með öðrum „öldungum“.“ Eftir stúd- entsprófið lá leiðin í nám í líf- eindafræði við Tækniskólann sem Hrafnhildur lauk árið 1977. Hún starfaði síðan í 4 ár á Landakots- spítala og síðan á ísatópastofu Landspítalans í 19 ár. „Þetta var mikil vinna eins og kvartað er yfir í dag, en maður vann með úrvalsfólki og hitti fullt af öðru góðu fólki.“ Hrafnhildur hefur alltaf haft H rafnhildur Helgadótt- ir fæddist 3. apríl 1932 á Hrafnagili sem stóð við Vest- mannabraut 29 í Vestmannaeyjum. Hún verður því níræð á morgun. Í æsku bjó Hrafnhildur hjá for- eldrum sínum í Vestmannaeyjum, fyrst á Hrafnagili ásamt Guðmundi afa sínum og Soffíu ömmu, síðan á Brekku við Faxastíg 4 með stuttu stoppi á Hásteinsvegi 7, en síðan á Heiðarvegi 40, þar til hún flutti frá Vestmannaeyjum árið 1952. „Ég minnist ástríks og góðs uppeldis í foreldrahúsum en um leið fjölda ævintýra með bestu æskuvinkonu minni Laugu [Guðlaugu Kristínu Runólfsdóttur]. Við nutum frjáls- ræðisins í Eyjum með því að busla í sjónum við Eiðið eða ganga á fjöll. Þá voru ótal stundirnar úti í Hrauni þar sem faðir minn var með kartöflugarð.“ Hrafnhildur lauk landsprófi frá Gagnfræðaskólanum í Vestmanna- eyjum árið 1949 og nam síðan við Menntaskólann á Laugarvatni vet- urinn 1950-51. Þá starfaði skólinn sem útibú frá Menntaskólanum í Reykjavík. Hins vegar kölluðu skyldurnar hana út til Eyja að nýju og var hún því bara eitt námsár á Laugarvatni en hún átti eftir að bæta það upp síðar. Einkunnarorð skólans á Laugarvatni voru mann- gildi, þekking og atorka og má segja að hún hafi gert þau að sín- um og flestir sem til hennar þekkja telja að þau lýsi henni vel. Sumarið 1953 tóku þau hjónin að sér að hefja rekstur gistihúss að Bifröst í Borgarfirði á vegum SÍS. Guðbjörn, eiginmaður Hrafnhildar, var með menntun frá svissneskum hótelskóla og Hrafnhildur vann með honum í þessu brautryðjanda- starfi og tók alfarið við stjórn Hót- els Bifrastar árið 1956. Í tímaritinu Samvinnan frá 1961 segir: „Hún breytir á skömmum tíma námssetri í gististað og gerir það af slíkri prýði að frægt er. Hún býr þannig að starfsstúlkum sínum að þær vilja vinna undir hennar stjórn sumar eftir sumar, þess vegna hefir kaupmanni og forstjóra. Fór Hrafnhildur í nokkrar siglingar með honum er hann var bryti, m.a. á Hamrafellinu. Foreldrar Guð- björns voru hjónin Guðjón Júlíus Jónsson, f. 22.7. 1896, d. 4.7. 1968, málarameistari á Akranesi, og Anna Björnsdóttir, f. 19.10. 1899, d. 30.11. 1979, húsfreyja. Hrafnhildur Hrafnhildur Helgadóttir, lífeindafræðingur og fv. hótelstjóri – 90 ára Fjölskyldan Stödd í Gautaborg árið 1996 þegar yngsta dóttirin varði doktorsgráðu í læknisfræði við Gautaborgarháskóla. Búin að eiga margar góðar stundir Með langömmubarni Hrafnhildur og yngsti afkomandinn. Afmælisbarnið Hrafnhildur í stúd- entsveislu sonarsonar síns 2000. Kría Burgess og Laufey Lilja Leifs- dóttir máluðu myndir og seldu þær í Laugardalnum í Reykjavík. Þær söfn- uðu 10.738 kr. til styrktar Úkraínu. Hlutavelta Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.