Morgunblaðið - 02.04.2022, Síða 40

Morgunblaðið - 02.04.2022, Síða 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022 Olísdeild karla Grótta – Víkingur ................................. 33:21 Haukar – KA......................................... 27:24 Stjarnan – HK ...................................... 27:21 Afturelding – Valur .............................. 18:26 Staðan: Haukar 20 14 4 2 605:544 32 Valur 20 14 2 4 574:496 30 ÍBV 19 12 3 4 577:563 27 FH 19 12 2 5 537:491 26 Stjarnan 20 10 2 8 569:559 22 Selfoss 19 10 2 7 524:504 22 KA 20 9 2 9 550:567 20 Afturelding 20 6 7 7 554:557 19 Grótta 20 7 3 10 546:552 17 Fram 19 6 2 11 522:543 14 HK 20 1 2 17 521:589 4 Víkingur 20 1 1 18 459:573 3 Grill 66 deild karla ÍR – Berserkir ...................................... 36:22 Staðan: ÍR 19 15 1 3 660:547 31 Hörður 18 15 0 3 624:500 30 Þór 17 13 1 3 523:457 27 Fjölnir 18 13 0 5 552:508 26 Selfoss U 19 10 0 9 595:565 20 Haukar U 17 10 0 7 492:458 20 Valur U 18 8 1 9 542:514 17 Kórdrengir 19 4 1 14 481:554 9 Afturelding U 18 4 1 13 459:552 9 Vængir Júp. 18 3 1 14 436:553 7 Berserkir 19 2 0 17 456:612 4 Danmörk Bjerringbro/Silkeborg – Kolding..... 35:31 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 2 skot í marki Kolding. Svíþjóð 8-liða úrslit, annar leikur: Hammarby – Skövde........................... 24:30 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 4 mörk fyrir Skövde. _ Skövde er komið í 2:0 í einvíginu. Frakkland B-deild: Nice – Billere ....................................... 30:30 - Grétar Ari Guðjónsson varði 8 skot í marki Nice. E(;R&:=/D 1. deild karla Umspil, undanúrslit, fyrsti leikur: Höttur – Fjölnir................................ 107:106 Sindri – Álftanes................................... 98:90 Spánn Valencia – Tenerife............................. 92:88 - Martin Hermannsson skoraði 22 stig og gaf 5 stoðsendingar á 28 mínútum hjá Val- encia. _ Efstu lið: Barcelona 40, Real Madrid 38, Manresa 34, Joventut Badalona 34, Val- encia 34, Tenerife 30, Baskonia 28, Murcia 26, Gran Canaria 26, Breogan 24. Þýskaland Hamburg – Crailsheim ..................... 113:63 - Jón Axel Guðmundsson skoraði 7 stig og tók 1 frákast fyrir Crailsheim á 18 mín- útum. NBA-deildin Detroit – Philadelphia........................ 102:94 Brooklyn – Milwaukee ............. (frl) 119:120 Atlanta – Cleveland.......................... 131:107 Chicago – LA Clippers ............. (frl) 135:130 Utah – LA Lakers ............................ 122:109 _ Miami, Milwaukee og Boston eru komin í úrslitakeppni í Austurdeildinni. _ Phoenix, Memphis og Dallas eru komin í úrslitakeppni í Vesturdeildinni. >73G,&:=/D HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Eyjar: ÍBV – Stjarnan ........................... L14 Varmá: Afturelding – Fram .................. L16 KA-heimilið: KA/Þór – HK.................... L16 Hlíðarendi: Valur – Haukar .............. S16.30 Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Selfoss: Selfoss – ÍBV ............................ L16 Framhús: Fram – FH ....................... L18.30 1. deild karla, Grill 66-deildin: Ásvellir: Haukar U – Þór....................... L16 Hlíðarendi: Valur U – Þór ................. S14.30 Ásvellir: Haukar U – Afturelding U ..... S16 Ísafjörður: Hörður – Fjölnir ............. S18.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Seltjarnarnes: Grótta – Stjarnan U ...... S14 Eyjar: ÍBV U – Fjölnir/Fylkir............... S14 Selfoss: Selfoss – Fram U ...................... S14 Kórinn: HK U – Valur U ........................ S14 BLAK Bikarkeppni kvenna, undanúrslit: Digranes: Afturelding – Álftanes.......... L13 Digranes: KA – Þróttur F................. L15.30 _ Bikarúrslitaleikur karla fer fram í Digra- nesi kl. 13 á morgun og bikarúrslitaleikur kvenna kl. 15.15. KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, undanúrslit, oddaleikur: Seljaskóli: ÍR – KR (2:2) ................... L19.15 UM HELGINA! HANDBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Haukar og Valur, tvö efstu lið Olís- deildar karla í handbolta, mætast í leik sem gæti reynst hreinn úrslita- leikur um deildarmeistaratitilinn næstkomandi miðvikudag en þau fögnuðu bæði sigri í 20. umferðinni í gærkvöldi. Eftir leikina í gær eru Haukar í toppsætinu með 32 stig, tveimur stigum á undan Val. Liðin gerðu jafntefli í fyrri leiknum og nægir Val því sigur í leik liðanna á Hlíðarenda á miðvikudag til að ná toppsætinu. Valur mætir svo Selfossi í loka- umferðinni. Haukar eiga eftir leik- inn við Val og svo erkifjendurna í FH. Haukar mættu KA á heimavelli í gær og fögnuðu 27:24-sigri. KA- menn voru sterkari í fyrri hálfleik og var staðan í hálfleik 13:11, KA í vil. Haukar jöfnuðu í 15:15 í seinni hálf- leik og komust síðan tveimur mörk- um yfir þegar seinni hálfleikur var hálfnaður og tókst KA ekki að jafna eftir það. Guðmundur Bragi Ást- þórsson skoraði sex mörk fyrir Hauka og Heimir Óli Heimisson gerði fimm. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sjö fyrir KA og Patrekur Stefánsson fimm. Á sama tíma vann Valur öruggan 26:18-útisigur á Aftureldingu. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru Valsmenn mun sterkari í seinni hálfleik og vörn og markvarsla voru til fyrir- myndar. Björgvin Páll Gústavsson varði 15 skot í marki Vals og Arnór Snær Óskarsson skoraði sjö mörk, eins og Úlfar Páll Monsi Þórðarson fyrir Aftureldingu. Stjarnan upp um eitt sæti Stjarnan fór upp fyrir Selfoss og upp í fimmta sætið með 27:21-sigri á föllnu liði HK á heimavelli. Stjarnan kemst ekki ofar en í fimmta sæti og byrjar því á útivelli í úrslitakeppn- inni. Selfoss getur endurheimt 5. sætið með sigri á ÍBV í dag en Stjarnan og Selfoss eru bæði með 22 stig. KA er í sjöunda sæti með 20 og berjast þau um 5.-7. sætið. Starri Friðriksson var markahæstur hjá Stjörnunni með 5 mörk og Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði 9 fyrir HK. Grótta á enn möguleika Grótta á enn veika möguleika á að ná áttunda sætinu af Aftureldingu og komast í úrslitakeppnina eftir 33:21-sigur á föllnum Víkingum. Grótta verður að vinna ÍBV á útivelli og KA á heimavelli í tveimur síðustu umferðunum og treysta á að Aftur- elding tapi fyrir FH á útivelli og Fram á heimavelli. Andri Þór Helgason skoraði 8 mörk fyrir Gróttu og Einar Baldvin Baldvins- son varði 19 skot í markinu. Jóhann Reynir Gunnlaugsson skoraði átta fyrir Víking. Tveir leikir verða í deildinni í dag en ÍBV heimsækir Selfoss og Fram og FH eigast við í Safamýri. ÍBV er í þriðja sæti með 27 stig og FH í fjórða með 26 og eru liðin í hörðum slag um þriðja sætið. Fram er í tí- unda sæti og fer ekki í úrslitakeppn- ina og fellur ekki. Úrslitaleikur Vals og Hauka? - Valur getur farið upp fyrir Hauka Ljósmynd/Kristinn Steinn Toppliðin Haukar og Valur mætast í stórleik í toppbaráttunni í Olísdeildinni í handbolta á miðvikudaginn kemur eftir sigra í gærkvöldi. Íslands- og bikarmeistarar Hamars frá Hveragerði mæta KA frá Akur- eyri í úrslitum Kjörísbikars karla í blaki í Digranesi á morgun eftir að þau sigruðu andstæðinga sína í und- anúrslitum í gærkvöldi. Meistararnir lentu undir gegn HK eftir tap í fyrstu hrinu en svöruðu með sigrum í næstu þremur hrinum og varð 3:1-sigur Hamars niðurstað- an. Radoslaw Rybak var stigahæstur hjá Hamri með 18 stig og Jakub Ma- dej gerði 16. Hjá HK var Hristiyan Dimitrov stigahæstur með 27 stig. Lokatölurnar urðu einnig 3:1 í leik KA og Vestra. KA vann tvær fyrstu hrinurnar áður en Vestri minnkaði muninn með sigri í þriðju hrinu. KA tryggði sér hinsvegar sigurinn með sigri í fjórðu hrin- unni. Miguel Castrillo var stiga- hæstur hjá KA með 28 stig. Hjá Vestra var Carlos Rangel með 16 stig. Úrslitaleikurinn hefst klukk- an 13 á morgun. Afturelding og Álftanes og KA og Þróttur Fjarða- byggð mætast í undanúrslitum í kvennaflokki í dag. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hávörn Landsliðsmaðurinn Hafsteinn Valdimarsson úr Hamri leitar leiða framhjá hávörn HK-inga í undanúrslitum í Digranesi í gærkvöldi. KA mætir meistur- unum í úrslitum Höttur og Sindri eru komnir í 1:0 í einvígum sínum í undanúrslitum umspilsins í 1. deild karla í körfubolta eftir sigra í gærkvöldi. Höttur hafði betur gegn Fjölni á heimavelli, 107:106, eftir æsispennandi leik. Fjölnir náði mest 13 stiga for- skoti en Höttur neitaði að gefast upp og vann eftir spennandi lokakafla. Timothy Guers skoraði 35 stig og gaf 9 stoðsendingar fyrir Hött. Mirza Sarajlija og Dwayne Foreman gerðu 32 stig hvor fyrir Fjölni. Í Hornafirði hafði Sindri betur gegn Álftanesi, 98:90. Sindri lagði grunninn að sigrinum með góðum fyrri hálf- leik. Detrek Browning gerði 28 stig fyrir Sindra og Dino Stipcic 27 fyrir Álftanes. Leikir númer tvö í einvígunum fara fram næstkomandi mánudag. Þau lið sem eru fyrri til að vinna þrjá leiki mætast í úrslitum um sæti í efstu deild á næstu leiktíð, en Haukar hafa þegar tryggt sæti sitt í úrvalsdeildinni eftir sigur í 1. deild. Höttur og Sindri byrja betur Adam Eiður Ásgeirsson Friðrik Ingi Rúnarsson er hættur störfum sem þjálfari karlaliðs ÍR í körfuknattleik og ætlar jafnframt að hætta alfarið í þjálfun eftir lang- an feril. Friðrik hefur þjálfað í meistaraflokki frá 22 ára aldri, árið 1991. Hann hefur stýrt liðum í 444 deildaleikjum og í 130 leikjum í úr- slitakeppni sem hvort tveggja er Ís- landsmet og tvisvar stýrt Njarðvík og einu sinni Grindavík til Íslands- meistaratitils, ásamt því að verða bikarmeistari fjórum sinnum sem þjálfari. Friðrik Ingi er hættur Morgunblaðið/Unnur Karen Reyndur Friðrik Ingi Rúnarsson á langan þjálfaraferil að baki. _ Guðmundur Ágúst Kristjánsson komst í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi á Limpopo-mótinu í golfi í Suður-Afríku. Mótið er hluti af Áskor- endamótaröð Evrópu. Guðmundur lék fyrsta hring á 68 höggum og annan hring á 69 höggum og er á sjö höggum undir pari. Verr gekk hjá Haraldi Franklín Magnús en hann lék báða hringina á 71 höggi og er úr leik á sam- anlagt tveimur höggum undir pari. _ Harry Kane, sóknarmaður Totten- ham, var í gær út- nefndur besti leikmaður mars- mánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann skoraði fjögur mörk og lagði upp tvö í fjórum leikjum Tottenham í deild- inni í mars en lið- ið vann þrjá þeirra. Þetta er í sjöunda sinn sem Kane er valinn leikmaður mánaðar og hann jafnaði þar með met Sergio Agüero, fyrrverandi framherja Manchester City. _ Mikel Arteta var valinn besti knatt- spyrnustjóri marsmánaðar í ensku úr- valsdeildinni. Undir hans stjórn vann Arsenal þrjá af fjórum leikjum sínum í mars og styrkti stöðu sína í fjórða sætinu. Arteta var einnig valinn bestur í september og þetta er í fyrsta sinn síðan 2007-08 sem stjóri Arsenal er valinn tvisvar á sama tímabilinu. Þá var það Arsene Wenger. _ Úkraínski knattspyrnumaðurinn Oleksiy Bykov er kominn til liðs við KA-menn. Hann kemur í láni frá úr- valsdeildarliðinu Mariupol, frá borg- inni sem hefur orðið verst úti í innrás Rússa í Úkraínu. Bykov er 24 ára mið- vörður sem ólst upp hjá Shakhtar Do- netsk og á 61 leik að baki í úkraínsku úrvalsdeildinni. Hann var fyrr í vetur í láni hjá Lokomotiv Plovdiv í Búlgaríu og lék þar í efstu deild. Bykov á að baki níu leiki með 21-árs landsliði Úkraínu. _ Bandaríski kylfingurinn Scot- tie Scheffler er kominn í efsta sæti heimslistans í golfi. Er þetta í fysta skipti sem hann toppar listann yfir bestu kylfinga heims. Scheffler, sem er 25 ára gamall, hefur þegar unnið þrjú mót á PGA- mótaröðinni á árinu. _ Kristján Flóki Finnbogason, fram- herji KR-inga, missir af fyrstu mán- uðum Íslandsmótsins í knattspyrnu. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.