Morgunblaðið - 02.04.2022, Page 23

Morgunblaðið - 02.04.2022, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar sem er 3,785 lítrar. Nú kostar gal- lonið að meðaltali um 4,20 dali, en það reiknast sem um það bil 153 kr. á hvern lítra. Bandarískir neytendur eru ekki vanir að greiða svo hátt verð fyrir sitt bensín, en til sam- anburðar má nefna að fyrir heims- faraldurinn kostaði gallonið að með- altali 2,6 bandaríkjadali árið 2019, en það eru um 86 kr. á lítra. „Pínan við pumpuna“ Vestanhafs hafa fjölmiðlar og stjórnmálamenn rætt mjög um „pín- una við pumpuna“, sem bandarískir neytendur þurfi nú að gjalda, og sagði Biden að aðgerðum sínum væri ætlað að „draga úr þjáningum“ þeirra fjölskyldna sem nú þyrftu að greiða meira fyrir bensínið. Biden kallaði þróunina „Pútín-hækkunina“ til að koma þeim skilaboðum á fram- færi að hana mætti alfarið rekja til styrjaldarrekstursins í Úkraínu. Hvort þau skilaboð Bidens og annarra helstu demókrata komist til skila er svo annað mál, því kannanir benda nú til þess að repúblikanar eigi mjög góða möguleika á að ná að minnsta kosti neðri deild Banda- ríkjaþings aftur á sitt vald, þegar kosið verður í nóvember. Forysta Repúblikanaflokksins á Bandaríkjaþingi gagnrýndi því ákvörðun Bidens mjög, og sagði að olíuforðann ætti ekki að nýta í „póli- tísk örþrifaráð“, heldur einungis þegar þjóðaröryggi eða veður- hamfarir lægju við. Leita lausna til lengri tíma En mun útspil Bidens hafa ein- hver áhrif? Bensínverð lækkaði ör- lítið eftir tilkynninguna í fyrradag, en sú lækkun gekk svo að einhverju leyti til baka. Rachel Ziemba, sem sæti á í hugveitunni Center for New American Security, sem einbeitir sér að þjóðaröryggismálum, sagði við vefinn Politico að aðgerðin væri hugsuð sem skammtímalausn með- an leitað væri leiða til að ná verðinu niður til lengri tíma. Meðal þess sem Bandaríkjastjórn hefur reynt er að fá OPEC-ríkin til að auka framleiðslu sína, en Banda- ríkjamönnum hefur gengið illa að ná eyrum forystumanna í þeim ríkjum. Þá gagnrýndi Biden í ræðu sinni á fimmtudaginn bandaríska olíu- framleiðendur fyrir að hafa dregið lappirnar við nýtingu þeirra leyfa sem þeir hafa fyrir olíuborun á landi sem bandaríska alríkið á. Gagnrýnendur Bidens segja hins vegar að hann hafi átt sinn þátt í ástandinu, þar sem eitt fyrsta verk hans í embætti var að stöðva útgáfu nýrra slíkra leyfa til olíuborunar á alríkislandi. Var sú aðgerð í sam- ræmi við kosningaloforð hans, en Biden einsetti sér að vera „græn- asti“ forseti í sögu Bandaríkjanna um leið og hann myndi ýta orku- skiptunum í fastari farveg en fyrri forsetar hafa gert. Rás atburðanna virðist hins vegar hafa sett strik í þann reikning, því að olíuframleiðsla í Bandaríkjunum hefur aldrei verið meiri en nú og mun hún enn aukast á þessu ári. AFP/Saul Loeb Hátt verð Sumir Bandaríkjamenn vilja kenna Biden um mikla hækkun á bensínverði að undanförnu. Óvíst um áhrif innspýt- ingarinnar á bensínverð - Þrjátíu ríki til viðbótar seilast í varabirgðirnar SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Joe Biden Bandaríkjaforseti til- kynnti í gær að þrjátíu ríki til við- bótar hefðu ákveðið að setja hluta af varabirgðum sínum af olíu á mark- að. Ríkin þrjátíu fylgja þar með í fótspor Bandaríkjanna, en Biden lýsti því yfir í fyrradag að þau myndu setja á markað 180 milljónir tunna næstu sex mánuði, eða sem nemur einni milljón tunna af olíu á dag. Þetta er langmesta magn af olíu sem Bandaríkjastjórn hefur sett á markað, en áætlað er að innspýt- ingin muni svara um 5% af daglegri eftirspurn í Bandaríkjunum. Með framlagi hinna ríkjanna 30 munu tugir milljóna tunna bætast við þann forða, en markmiðið er að róa olíumarkaðinn, sem hefur of- hitnað nokkuð eftir innrás Rússa í Úkraínu, með tilheyrandi hækk- unum á eldsneyti sem aftur hefur sést í aukinni verðbólgu. Stríð ofan á orkukreppu Orkukreppan fyrir áramót hafði þegar þrýst olíuverði upp á við, og varð hækkunin mest í október 2021, en þá var verðið á hráolíu í Evrópu um 84 bandaríkjadalir á tunnu. Sú hækkun hafði gengið að nokkru til baka þegar Rússar hófu innrás sína í Úkraínu, sem aftur ýtti verðinu upp, en Rússland er þriðji stærsti olíuframleiðandi í heimi á eftir Bandaríkjunum og Sádi-Arabíu. Nú selst hver tunna af hráolíu á um 114 bandaríkjadali, miðað við rétt rúm- lega 65 dali á tunnu á þessum tíma fyrir ári. Hækkunin hefur ekki síst haft áhrif á bensínverð í Bandaríkjunum, en þar miða neytendur við gallon, Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Rússnesk stjórnvöld sögðu í gær að Úkraínumenn hefðu gert loftárás á olíubirgðastöð í borginni Belgorod, sem er um 40 kílómetra frá landa- mærum Rússlands að Úkraínu. Væri það í fyrsta sinn frá upphafi stríðsins sem Úkraínumenn gera loftárás á Rússland sjálft. Stjórnvöld í Kænu- garði vildu hvorki staðfesta né þver- taka fyrir að Úkraínuher hefði staðið að baki árásinni, en á myndböndum mátti sjá tvær úkraínskar herþyrlur fljúga mjög lágt og skjóta á stöðina, sem hefur séð rússneskum hersveit- um í nágrenni Karkív fyrir eldsneyti. Friðarviðræður Rússa og Úkra- ínumanna hófust aftur í gær og fóru fram að þessu sinni með fjarfunda- búnaði. Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns Rússlandsforseta, sagði hins vegar að þyrluárásin myndi ekki „skapa þægilegar aðstæður fyrir áframhald viðræðna“. Flúnir frá Kænugarði Brottför rússneskra hersveita í norðri hélt áfram í gær og náðu Úkraínumenn öllum helstu bæjum í nágrenni Kænugarðs aftur á sitt vald. Þar á meðal voru Hostomel- flugvöllurinn og borgin Bucha, en hart hefur verið barist um þessar borgir í stríðinu til þessa. Var Kænu- garðs-hérað aftur sagt að fullu á valdi Úkraínumanna um eftirmið- daginn og var búist við að hersveitir þeirra myndu fljótlega reka flótta Rússa aftur að landamærum Hvíta- Rússlands. Þá stóðu enn harðir bar- dagar yfir um borgina Kerson, sem er eina stórborgin sem Rússar hafa náð á sitt vald í innrásinni til þessa. Volodimír Selenskí, forseti Úkra- ínu, varaði hins vegar við því í gær- morgun að brotthvarf Rússa í norðri táknaði líklega að þeir hygðust setja meiri kraft í baráttuna um Donbass- héruðin tvö og Karkív, og að þeir væru að safna liði til gera öflugar árásir þar. Bandaríska varnarmála- ráðuneytið tók undir það mat, og sagði að tilfæringar Rússa gætu ver- ið ávísun á mun lengri og kostnaðar- samari átök í austur- og suðurhluta Úkraínu. Í suðri hélt umsátur Rússa um Maríupol áfram og lýsti Rauði kross- inn því yfir um eftirmiðdaginn að ekki hefði verið hægt að flytja al- menna borgara þaðan í gær, líkt og stefnt hafði verið að. Hugðust sam- tökin hins vegar reyna aftur í dag. Urðu fyrir geislavirkni Óstaðfestar fregnir fyrr í vikunni hermdu að sjö rútur hefðu flutt rúss- neska hermenn frá Tsérnóbyl-kjarn- orkuverinu og á sjúkrahús í Hvíta- Rússlandi, mögulega vegna geislun- ar sem þeir hefðu orðið fyrir í nágrenni versins. Ekki var enn vitað í gær, hvort þau tíðindi voru rétt, en Energoa- tom, kjarnorkumálastofnun Úkra- ínu, lýsti því yfir að rússneskir her- menn hefðu mjög líklega orðið fyrir geislavirkni á þeim fjórum vikum sem þeir voru við verið. Sagði stofnunin að bæði hefðu farartæki Rússa þyrlað upp geisla- virku ryki og hermennirnir hefðu einnig grafið skotgrafir við verið, um það bil á þeim stað þar sem mest geislavirkni væri í jörðu. Sagði Va- lerí Seida, yfirmaður versins, að það væri mögulegt að hermennirnir í þeim skotgröfum hefðu orðið fyrir „umtalsverðu magni af geislavirkni“. Rafael Grossi, framkvæmdastjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinn- ar IAEA, sagði hins vegar að stofn- unin hefði ekki fengið neinar tilkynn- ingar um slík tilvik. Sagði hann einnig að geislavirkni við verið mældist í eðlilegu magni, en hún hefði hækkað aðeins bæði þegar bryndrekar Rússa komu og aftur þegar þeir yfirgáfu verið á fimmtu- daginn. Er stofnunin nú að leita staðfestingar á því hvort hermenn hafi orðið fyrir geislun. Vara Kínverja við Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, varaði í gær Xi Jinping, forseta Kína, við því að veita Rússum stuðning í herför þeirra gegn Úkra- ínu þegar forsvarsmenn ESB fund- uðu með honum í gegnum fjarfunda- búnað. Sagði hún að slíkur stuðningur gæti skaðað viðskipta- tengsl Kínverja og Evrópu. „Enginn Evrópubúi myndi skilja hvers kyns stuðning við getu Rússa til að heyja stríð. Að auki myndi það stórskaða orðspor Kína hér í Evr- ópu,“ sagði hún á fjarfundinum og bætti við að evrópsk fyrirtæki fylgd- ust náið með afstöðu ríkja í stríðinu. Von der Leyen hvatti um leið Jinping til að beita áhrifum sínum til þess að binda enda á stríðið og fá Rússa til að samþykkja friðsamlega lausn við samningaborðið. Kínverskir ríkisfjölmiðlar sögðu að Jinping hefði sagt að Kínverjar og Evrópuríkin gætu leikið „uppbyggi- legt hlutverk“ í stórum álitamálum sem vörðuðu heimsfriðinn og þróun- armál, sem og veitt stöðugleika í „órólegum heimi“. Sprengdu birgðastöð í Rússlandi - Rússar búnir að hörfa alfarið frá Kænugarði - Vara við hertum átökum í austur- og suðurhluta Úkraínu - Segja líklegt að rússneskir hermenn hafi orðið fyrir geislavirkni - ESB og Kína funda AFP Árás Mikill eldur kviknaði í olíubirgðastöðinni í Belgorod og glímdu rúss- neskir slökkviliðsmenn við eld í olíutönkum langt fram eftir degi. Embættismenn í bandaríska fjár- málaráðuneytinu sögðu í gær að hagkerfi Rússlands myndi dragast saman um 10% vegna refsiaðgerða vesturveldanna. Sögðu þeir jafn- framt að styrking rúblunnar síðustu daga væri einungis svikalogn. „Efnahagslegu afleiðingarnar sem Rússland stendur frammi fyrir eru miklar, há verðbólga sem mun bara aukast og djúp kreppa sem mun bara dýpka,“ sagði háttsettur emb- ættismaður í fjármálaráðuneytinu við fjölmiðla í gær. Sagði hann að Rússum hefði verið ýtt út í horn til að verða að „lokuðu hagkerfi“ og sagði að þeir myndu ekki ná sér á strik, þar sem hagkerfi þeirra treysti mjög á innflutning á framleiðslutólum og neysluvörum, en Rússar framleiði aðallega hráefni. „Sem lokað hagkerfi geta Rússar bara neytt þess sem þeir framleiða, sem kallar á mikla breytingu,“ sagði hann. Annar embættismaður í ráðuneyt- inu spáði því að þjóðarframleiðsla Rússa myndi skerðast um 10% vegna kreppunnar, og að verðbólgan legðist þar ofan á. Rúblan hríðféll eftir að Rússar hófu innrás sína, en gengi hennar hefur styrkst nokkuð síðustu daga. Sagði embættismaðurinn að sú styrking væri eingöngu komin til vegna inngripa rússneskra stjórn- valda. Bætti hann við að heimildir Bandaríkjastjórnar gæfu til kynna að rúblur væru nú seldar á svörtum markaði á mun lægra gengi en því opinbera. Spá miklum sam- drætti í Rússlandi - Styrking rúblunnar ekki varanleg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.