Morgunblaðið - 02.04.2022, Page 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022
„ÞAU HJÁLPA ÞÉR KANNSKI AÐ MUNA
HVERS VEGNA ÞÚ ENDAÐIR HÉR.“
„EIGUM VIÐ AÐ FLÝTA KLUKKUNNI UM
4000 ÁR EÐA SEINKA HENNI UM SAMA
ÁRAFJÖLDA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þægindaramminn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VEISTU, ÉG TRÚI ÞVÍ AÐ
ÞÚ SÉRT GÓÐUR INN VIÐ
BEINIÐ
ÞAÐ ER BARA SVOLÍTIÐ
DJÚPT Á ÞVÍ
HVERNIG
HEFURÐU ÞAÐ,
KÆRA HER-
TOGAYNJA?
ÉG HEF VERIÐ
ÓSKÖP
NIÐURDREGIN!
ÉG HEF SJÁLF VERIÐ
NOKKUÐ ÓSÁTT.
HRÓLFUR VILL
FLYTJA TIL ÚTLANDA!
MEINARÐU ÞETTA Í
ALVÖRUNNI, EÐA ERTU
BARA AÐ SEGJA ÞETTA TIL AÐ
GLEÐJA MIG?
SMELL!
LÍFTÆKNILYF
og Guðbjörn hófu búskap í Laug-
arnesinu og bjuggu síðan í stuttan
tíma við Skólabraut á Seltjarn-
arnesi en lengst af bjuggu þau á
Digranesvegi 55 og síðar á Digra-
nesvegi 89 (nú Digranesheiði 11) í
Kópavogi. Þau skildu 1978. Hrafn-
hildur býr núna á heimili sínu í
Lerkihlíð í Reykjavík, ásamt sínum
ástkæra ketti, Grímu Líf.
Börn Hrafnhildar og Guðbjörns:
1) Hulda Guðbjörnsdóttir, f. 27.12.
1951 í Eyjum, d. 16.5. 2010, hjúkr-
unarfræðingur. Synir hennar eru
Hrafn, f. 1970, verkamaður og
Steingrímur, f. 1977, verkamaður;
2) Björn Guðbjörnsson, f. 10.6. 1955
í Reykjavík, læknir og prófessor.
Kona hans er Kolbrún Alberts-
dóttir, svæfingarhjúkrunarfræð-
ingur og vinnur einnig við ritstörf.
Börn þeirra eru Guðbjörn Logi, f.
1979, heilbrigðisverkfræðingur og
líffræðingur, Aron Hjalti, f. 1990,
læknir, Helgi Hrafn, f. 1991, verk-
fræðingur og Hulda Hrund, f. 1995,
læknir; 3) Hrafnhildur Soffía Guð-
björnsdóttir, f. 5.3. 1962 í Reykja-
vík, læknir og prófessor. Maður
hennar er Kristján Kárason, læknir
og dósent. Börn þeirra eru Kári, f.
1992, stærðfræðingur og háskóla
nemi, Hrafn, f. 1994, heimspek-
ingur og háskólanemi, Saga, f.
1999, háskólanemi og Ísar, f. 2005,
nemi.
Langömmubörn Hrafnhildar eru
orðin fimm og eru á aldrinum 9
mánaða til 25 ára.
Systir Hrafnhildar er Helga, f.
12.1. 1943 á Hásteinsvegi 7 í Vest-
mannaeyjum. Maður Helgu er
Georg Valdimar Hermannsson, þau
búa í Borgarnesi.
Foreldrar Hrafnhildar voru hjón-
in Helgi Guðmar Þorsteinsson, f.
2.12. 1904 á Upsum í Svarfaðardal,
d. 23.6. 1978, vélstjóri og Steinunn
Hulda Guðmundsdóttir, f. 20.6.
1911 í Stakkagerði í Vestmanna-
eyjum, d. 9.1. 2009, hárgreiðslu-
kona, en þau giftust 1932.
Hrafnhildur
Helgadóttir
Guðbjörg Sigurðardóttir
vinnukona á Brekkum í Hvolhr., Rang., varð úti
Þorkell Guðmundsson
trésmiður og járnsmiður
í Reykjavík
Soffía Þorkelsdóttir
húsfreyja í Stakkagerði
Guðmundur Ólafsson
útvegsbóndi og vélstjóri í
Stakkagerði í Vestmannaeyjum
Hulda Guðmundsdóttir
hárgreiðslukona og
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Vilborg Þorbjörnsdóttir
húsfreyja á Skíðbakka
Ólafur Ögmundsson
bóndi á Skíðbakka í Austur-Landeyjum
Hólmfríður Gísladóttir
húsfreyja á Upsum
Benedikt Jónsson
bóndi og bóksali í Miðsamtúni
í Kræklingahlíð, Eyjaf.
Anna Björg Benediktsdóttir
húsfreyja á Upsum
Þorsteinn Jónsson
bóndi og formaður á Upsum í Svarfaðardal
Rósa Sigríður Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Upsum
Jón Magnús Magnússon
bóndi og formaður á Upsum
Ætt Hrafnhildar Helgadóttur
Helgi Guðmar Þorsteinsson
vélstjóri í Vestmannaeyjum
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Bærist hún í brjósti manns.
Belgingur er hér til sanns.
Mun svo tróna á mæni ranns.
Munnur litla barnungans.
Guðrún B. á þessa lausn:
Golu síðast geispa má.
Gola í montnum dela.
Gola á toppi, túða grá,
en tók munngolan pela?
Sjálfur skýrir Guðmundur
gátuna svona:
Bærist gola í brjósti manns.
Belging nefna golu má.
Trónir gola á toppi ranns.
Túli er gola barnungans.
Þá er limra:
„Mikil er blessuð blíðan,
og betri er nú mín líðan,
eg lifna við allur
og yngist,“ kvað Hallur,
en geispaði golunni síðan.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Daginn líður óðum á,
ekki lengur drolla má,
um hádegi mig hef á stjá,
hérna gátu líta má:
Orð um tóskap höfum hér.
Hetjudáð, sem lofa ber.
Það í mínu úri er.
Ávallt það oss vanda ber.
Hér er limra eftir Pál Jónasson í
Hlíð:
„Við síladráp áður ég undi,“
sagði aldraður værukær lundi.
„Þá hræddist ég fátt
og hafið var blátt
og gaman á Grímseyjarsundi.“
Heimir Pálsson yrkir og kallar
„Fjeritigi kringlur í Rússlandi“:
Ég hef andstyggð á þessu auðmagni
sem æðir um heiminn á nauðvagni
þeirra sem eiga
ekkert né mega;
ég óttast að það verði að dauðmagni.
Þorsteinn Gylfason orti:
„Ég var eins og vera ber,“
mælti Vera. „En ekki hver?
Fæst má nú gera…“
Og fyrr má nú vera
að vera eins og Vera ber.
Jón frá Garðsvík orti:
Ekki má á milli sjá
meiri fjöll þó augum leiði.
Höfuðborgin Esju á
Akureyri Vaðlaheiði.
Guðmundur Ketilsson Illuga-
stöðum orti:
Velríðandi var ég fyr,
við það kannast nenni.
það er eins og þrotinn byr,
þar fór nú hann Renni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er gola í honum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Betri svefn
Melissa Dream er
hannað til að stuðla
að djúpri slökun og
værum svefni.
Þessi blanda inniheldur ekki efni
sem hafa sljóvgandi áhrif.
Valið besta
bætiefni við streitu
hjá National Nutrition
í Kanada
Þvílíkur munur!
„Ég sofna fyrr og sef fastar, ligg ekki lengur andvaka á koddanum né
vakna upp á nóttinni. Nú vakna ég endurnærð og úthvíld á morgnanna.
Ég mæli hiklaust með Melissa Dream fyrir alla“
Elsa M. Víðis.